Papar neyddir til nafnabreytingar „Hljómsveitin Papar er ákveðið vörumerki sem maður á hlut í að hafa byggt upp. Einn daginn fór ég að fá símtöl og var spurður hvort ég væri að syngja hér og þar. Ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ segir Matthías Matthíasson, kenndur við Papa. Tónlist 6. febrúar 2009 08:00
Popplandsliðið minnist Rúnars Synir Rúnars Júlíussonar skipuleggja nú stórtónleika í Laugardalshöll þar sem íslenska popplandsliðinu mun minnast fallins félaga. Lögin sem Rúnar söng verða flutt af stjörnum eins og Páli Óskari, KK og Björgvini Halldórssyni og hljómsveitum eins og Sálinni hans Jóns míns og Hjálmum. Tónlist 5. febrúar 2009 08:00
Morrissey átti að herma eftir Sigur Rós Tónlistarmaðurinn Morrissey situr ásamt hljómsveit sinni nakinn fyrir innan í umslagi nýjustu smáskífu sinnar, I"m Throwing My Arms Around Paris. Tónlist 5. febrúar 2009 07:00
Þrjár mínútur skipta öllu Það kemur í ljós á laugardaginn eftir rúmlega viku hvaða lag verður Eurovision-framlag Íslands í ár. Átta lög eru komin í úrslit eftir snarpa keppni. Hvaða lag er sigurstranglegast? Keppendur síðasta árs spáðu í spilin. „Þetta er alltaf eins, góð lög og svo nokkur örlítið slappari. Það er mikið af nýjum flytjendum núna, sem mér finnst gott. Tónlist 5. febrúar 2009 06:00
Veðurguðirnir enda með plötu „Ég get nú ekki sagt að Idol hafi hjálpað mér mikið. Ég þurfti eiginlega að vinna mig út úr því. Menn komu til mín steinhissa eftir gigg og sögðu: Þetta var helvíti gott hjá þér, varst þú ekki í Idol? Eftir Idol gerðu eiginlega allir þær kröfur til manns að maður væri alveg vonlaus,“ segir Ingó í Veðurguðunum. Tónlist 5. febrúar 2009 06:00
Minningartónleikar um Rúnar Minningartónleikar um Rúnar Júlíusson verða haldnir í Laugardalshöllinni 2. maí. Synir Rúnars, þeir Baldur og Júlíus, sjá um skipulagninguna í samvinnu við Bravo. Flestir forkólfar íslenskrar dægurlagamenningar hafa boðað komu sína. Tónlist 5. febrúar 2009 06:00
Gaf út smáskífu í Danmörku Akureyrski tónlistarmaðurinn Rúnar Eff gaf nýverið út sína fyrstu smáskífu í Danmörku. Á henni er Aha-lagið Take on Me og You, sem bæði eru á fyrstu sólóplötu hans Farg. Tónlist 5. febrúar 2009 06:00
Syngur eigið lag í Sesame Breski grínistinn Ricky Gervais ætlar að koma fram í bandaríska barnaþættinum Sesame Street. Í þættinum, sem verður tekinn upp í New York í næsta mánuði, mun Gervais syngja eigið lag með hjálp rauða skrímslisins Elmo. Tónlist 5. febrúar 2009 06:00
Dönsku rokkararnir klikkuðu hvergi Dönsku rokkararnir í D-A-D voru trúir sjálfum sér og héldu kraftmikla og vel heppnaða tónleika á Nasa á laugardagskvöld síðasta. Einkum fór bassaleikarinn á kostum á sínum tveggja strengja bassa, ber að ofan uppi á hátalarastæðum og bassatrommu, í níðþröngum buxum með áletrunina „nasty“ á rassinum – sem hann var ekki að fela fyrir hljómleikagestum. Upp í hugann kom óhjákvæmilega „mockumentary“, myndin um Spinal Tap, og gestir voru vel með á nótunum. Tónlist 27. janúar 2009 04:30
Coldplay og Duffy líkleg til sigurs Duffy og Coldplay fengu flestar tilnefningar til Brit-verðlaunanna sem verða afhent 18. febrúar í London. Fengu þær hvor um sig fjórar tilnefningar, þar á meðal fyrir bestu bresku plötuna árið 2008. Tónlist 22. janúar 2009 04:15
Þriggja stjörnu diskórokk Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu. Tónlist 22. janúar 2009 03:30
D-A-D nýtir Íslandsferðina vel Danska rokksveitin D-A-D hyggst ekki sitja auðum höndum og eyða sínum tíma í einhverju vitleysu þegar þeir koma hingað til lands og spila á á Nasa. Þeir ætla sér að taka upp myndband við nýtt lag sveitarinnar og það staðfestir Finni Jóhannsson hjá True North fyrirtækinu sem mun aðstoða dönsku rokkarana við myndbandsgerðina. Tónlist 16. janúar 2009 04:30
Grapevine á Grand Fyrsta tölublað Grapevine með nýjum ritstjóra, Hauki S. Magnússyni, er komið á götuna. Til að fagna áfanganum verða haldnir ókeypis tónleikar á Grand Rokk í kvöld kl. 22. Hljómsveitirnar Agent Fresco, Reykjavík! og Sudden Weather Change koma fram, auk bandaríska tónskáldssins Nico Muhly, sem gaf út plötuna Mothertongue í fyrra og hefur dvalið hér langdvölum. Dj Sveppi P verður við fóninn svo ein mínúta fari ekki til spillis. Tónlist 16. janúar 2009 03:45
Kvennagrúppa spilar Kvennagrúppan Trio Nordica hefur um fimmtán ára skeið haldið saman og spilað margbreytilega tónlist fyrir landann og erlenda áheyrendur, tekið upp hljómplötur og gefið út. Á sunnudaginn koma þær fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í Bústaðakirkju. Tónlist 15. janúar 2009 06:00
Undirbýr sólóplötu Corey Taylor, forsprakki grímurokkaranna í Slipknot, er að undirbúa sína fyrstu sólóplötu. „Ég finn að ég þarf að gera þessa plötu," sagði Taylor í viðtali við Billboard. „Ég er þannig náungi að ef ég get ekki gert hana þá heldur það aftur af mér í öðru sem ég geri." Tónlist 15. janúar 2009 06:00
Bretar hrifnir af Hjaltalín Breskir gagnrýnendur eru ákaflega hrifnir af plötu íslensku hljómsveitarinnar Hjaltalín, Sleepdrunk Seasons. Gagnrýnandi Guardian, Michael Hann, biður hlustendur um að standast þá freistingu að líkja hljómsveitinni við Sigur Rós, tónlist þeirra eigi fátt ef eitthvað sameiginlegt. Hann fer síðan fögrum orðum um plötuna og hrósar söngvaranum, Högna Egilssyni. „Hann er ekki fullkominn söngvari en það er einmitt þessi ófullkomleiki sem kemur í veg fyrir að platan lendi í sætabrauðsflokknum,“ skrifar Hann. Tónlist 13. janúar 2009 08:00
Tíunda sólóplatan Gítarleikari Red Hot Chili Peppers, John Frusciante, gefur út sína tíundu sólóplötu 26. janúar. Platan nefnist The Empyrean og koma þar við sögu Flea, bassaleikari Red Hot, og Johnny Marr, fyrrverandi gítarleikari The Smiths. Tónlist 13. janúar 2009 04:15
Nýtt lag frá Lifun Hljómsveitin Lifun vakti athygli síðasta sumar með laginu „Hörku djöfuls fanta ást“ eftir Björgvin Ívar Baldursson við texta Bjartmars Guðlaugssonar. Björgvin er sonarsonur Rúnars Júlíussonar. Tónlist 13. janúar 2009 03:30
Tónlistarárið mikla hafið Fjöldi hljómsveita verður á faraldsfæti árið 2009 og ætlar sér stóra hluti úti í hinum stóra heimi. Lay Low, Emilíana Torrini, Hjaltalín og Gus Gus verða öll áberandi. Tónlist 12. janúar 2009 06:00
Búlgaríuplata tafðist í kreppu Fyrsta plata hljómsveitar Hauks Gröndals, Narodna Muzika, tafðist í framleiðslu erlendis á síðasta ári og kom því ekki út fyrr en rétt fyrir jólin. „Svona þjóðlagamúsík er maður ekki að fara að selja eins og Bubbi Morthens hér á landi. Þeir eru ekki að setja þig í rosalegan forgang,“ segir hann og játar að vera pínulítið svekktur. Tónlist 12. janúar 2009 03:00
Little Boots slær í gegn á árinu Little Boots er talin líklegust til að slá í gegn á árinu 2009 að mati 134 breskra tónlistarspekinga. Hin 24 ára elektró-poppsöngkona heitir réttu nafni Victoria Hesketh og kemur frá Blackpool í Englandi. Tónlist 11. janúar 2009 06:00
Zeppelin hættir við Umboðsmaður Jimmys Page, Peter Mensch, hefur dregið til baka fyrri yfirlýsingar sínar og segir að Led Zeppelin muni ekki halda áfram störfum án söngvarans Robert Plant. Tónlist 11. janúar 2009 06:00
Plata með Timbaland Chris Cornell, fyrrum söngvari Soundgarden og Audioslave, hefur tekið upp nýja sólóplötu með hjálp upptökustjórans Timbaland. Platan nefnist Scream og kemur út 9. mars. Tónlist 11. janúar 2009 06:00
Fjórir trommarar á plötu Ske Fjórir trommarar spila inn á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Ske sem er væntanleg á næstu vikum. Aðaltrommari Ske og sá sem kemur mest við sögu á plötunni er Englendingurinn Paul Maguire sem hefur spilað með hljómsveitinni The La"s. Hinir þrír eru Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós, Sigtryggur Baldursson og Kjartan Gunnarsson. Tónlist 11. janúar 2009 06:00
Íslendingar spila í Belgíu Hjaltalín, Dísa, Kira Kira, Sam Amidon og Rökkurró eru hluti af tónleikaröðinni 101 Reykjavík sem verður haldin í menningarsetri Belgíu í bænum Maldegem 17. janúar til 29. mars. Tónlist 10. janúar 2009 09:30
D-A-D aðdáendur spenntir Bergur Geirsson bassaleikari bíður spenntur eftir komu dönsku rokkaranna í D-A-D. Hann minnist þess að hafa enn verið með sítt hár þegar hann féll fyrir hljómsveitinni. Tónlist 10. janúar 2009 08:00
Hebbi endurgerður Party Zone, dansþáttur þjóðarinnar á Rás 2, byrjar í kvöld að spila fyrstu remixin sem komu í hús eftir að blásið var til heljarinnar Herberts Guðmundssonar endurhljóðblöndunarveislu í desember Tónlist 10. janúar 2009 06:00
Spennandi plötur streyma út Þrátt fyrir efnahagslegan samdrátt er auðvitað ekkert lát á útgáfu nýrra platna, enda engin sérstök kreppa á meðal listamanna. Tónlistaráhugafólk hefur yfir mörgu að hlakka á næstunni enda nóg af spennandi plötum að koma út. Tónlist 8. janúar 2009 08:15
Zeppelin heldur áfram Umboðsmaður Jimmy Page hefur staðfest að Led Zeppelin muni á næstunni fara á tónleikaferð og taka upp nýja plötu án söngvarans Roberts Plant. Sögusagnir hafa verið á kreiki að sú yrði raunin og eftir að Plant tilkynnti í desember að hann tæki ekki þátt í frekari endurfundum hefur allt verið sett á fullt í leit að nýjum söngvara. Tónlist 8. janúar 2009 07:00
Kassagítarrokk frá Kuroi Hljómsveitin Kuori heldur útgáfutónleika á Grand Rokki á laugardaginn til að kynna nýja EP-plötu sína. Sveitin leikur kassagítarrokk undir áhrifum frá sveitum á borð við Led Zeppelin, Sunny Day Real Estate og Alice in Chains. Tónlist 8. janúar 2009 06:00