Fimm bestu lögin sem stappa í mann stálinu í skammdeginu Bóas Hallgrímsson, söngvari Reykjavíkur!, velur hér fimm bestu lögin sem stappa í mann stálinu í skammdeginu. Harmageddon 8. desember 2011 14:00
Föstudagurinn langi Hljómsveitin Úlfur Úlfur sendir frá sér fyrstu plötuna sína á laugardaginn. Yrkisefni plötunnar er einlæg blanda af drykkju, partíi, ríðingum og öllu því. Harmageddon 8. desember 2011 13:00
Við gerum það sem við gerum HAM rankaði heldur betur við sér í sumar og sendi frá sér plötuna Svik, harmur og dauði. Platan hefur fengið frábæra dóma og tónleikar hljómsveitarinnar, þótt fáir séu, eru ávallt eins og í gamla daga: Troðfullir af sveittum aðdáendum. Harmageddon 8. desember 2011 11:45
Kempur teknar inn í Frægðarhöllina Hljómsveitirnar Guns N‘ Roses, Red Hot Chili Peppers og Beastie Boys eru á meðal þeirra sem teknar verða inn í Frægðarhöll rokksins á næsta ári. Athöfnin fer fram í Cleveland í Bandaríkjunum á næsta ári. Harmageddon 8. desember 2011 11:30
Skytturnar að norðan snúa aftur eftir sjö ára hlé Rapphljómsveitin Skytturnar snýr aftur á föstudag eftir að hafa legið sjö ár í hýði. Nýtt efni verður á dagskrá sem varð til í vikulangri sumarbústaðaferð. Tónlist 7. desember 2011 16:00
Íslendingar taki lagið saman „Við þurfum svolítið að fagna saman,“ segir Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður. Sigtryggur er einn skipuleggjenda Dags íslenskrar tónlistar sem haldinn verður hátíðlegur á morgun, á sjálfan fullveldisdaginn. Lífið 30. nóvember 2011 09:00
Regína Ósk mætir aftur í Eurovision - Syngur stuðlag Maríu Bjarkar „Þetta er svona ekta stuðlag sem fær alla til að vilja dansa og dilla sér,“ segir María Björk Sverrisdóttir lagahöfundur um framlag sitt í forkeppni Eurovision í ár. Lag Maríu Bjarkar ber titilinn Hjartað brennur og er samið í samstarfi við sænsku lagahöfundana Marcus Frenell og Fredrik Randquist. Það er engin önnur en söngkonan Regína Ósk Óskarsdóttir sem flytur lagið, en María Björk segir að söngkonan hafi verið hennar fyrsti kostur frá byrjun. Tónlist 26. nóvember 2011 17:00
Ómar endurvekur Gáttaþef á jólaballi „Þetta verður í anda gömlu stóru jólaballanna, þar sem börnin taka þátt og syngja með,“ segir fréttamaðurinn og skemmtikrafturinn Ómar Ragnarsson. Tónlist 26. nóvember 2011 16:00
Sesar A fagnar afmæli íslensku rappplötunnar "Íslenskt rapp í dag er á allt öðrum stað en fyrir tíu árum,“ segir Sesar A, sem fagnar því að tíu ár eru liðin frá útgáfu fyrstu sólóplötu hans, Storminum á eftir logninu, sem var jafnframt fyrsta platan þar sem eingöngu var rappað á íslensku. Tónlist 26. nóvember 2011 15:45
Bluegrassið á líka heima á Íslandi Andi Suðurríkjanna hefur svifið yfir vötnum á tónleikum íslensku bluegrass-sveitarinnar Brother Grass undanfarið ár. Í dag kemur fyrsta plata sveitarinnar út, en hún kallast Didn‘t Leave Nobody But the Baby. Tónlist 26. nóvember 2011 11:00
Sonic Youth að hætta? Mikil óvissa ríkir nú um framtíð rokksveitarinnar Sonic Youth eftir að eitt langlífasta par rokksins, Thurston Moore söngvari og Kim Gordon bassaleikari, tilkynntu um skilnað sinn eftir nærri 30 ára hjónaband. Tilkynningin kom í október þegar hljómsveitin var á tónleikaferðalagi í Suður-Ameríku. Moore og Gordon giftu sig árið 1984 þegar hljómsveitin hafði starfað í þrjú ár. Aðdáendur sveitarinnar voru því flestir jafnframt aðdáendur hjónabandsins, og haft var eftir eyðilögðum ungum manni að skilnaðurinn hefði orðið til þess að hann tryði ekki lengur á sanna ást. Tónlist 25. nóvember 2011 15:00
Gylfi Ægis með aukatónleika í kvöld Nú eru hátt í 200 miðar seldir en salurinn tekur 300 manns. Þannig að það eru nokkrir miðar eftir, segir Gylfi Ægisson söngvari og lagasmiður. Tónlist 25. nóvember 2011 15:00
Frumsýna glænýtt myndband við lagið Ást og áfengi Hljómsveitin Klaufar frumsýnir hér nýtt glænýtt myndband við smellinn Ást og áfengi og fer ekki milli mála að hér er alvöru kántrísveit á ferðinni. Klaufarnir hafa starfað í fimm ár og leikið kántrí vítt og breytt um landið fyrir landann. Sveitin samanstendur af þeim Guðmundi Annas Árnasyni söngvara, Sigurgeir Sigmundssyni fetilgítarleikara, Birgi Nielsen trommara, Friðriki Sturlusyni bassaleikara og Kristjáni Grétarssyni gítarleikara. Tónlist 25. nóvember 2011 15:00
Klára prófin og kynna svo Nology, fyrsta breiðskífa dúósins Nolo, er komin út. Gripnum verður fylgt eftir um leið og þeir hafa lokið jólaprófunum. Fyrsta plata dúósins Nolo í fullri lengd nefnist Nology og kom nýverið út á vegum Kimi Records. Platan hefur verið fáanleg á tónlistarveitunni Gogoyoko síðustu viku og hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá tónlistarunnendum. Tónlist 25. nóvember 2011 10:00
Áhrifin beint frá Nietzsche Rapparinn Kanye West segist ekki hafa stolið texta lagsins Stronger frá lagahöfundinum Vincent Rogers. Sá síðarnefndi hefur kært West og heldur því fram að rapparinn hafi hermt eftir lagi sem hann samdi árið 2006 og heitir sama nafni. Í báðum lögunum eru tilvísanir í þýska heimspekinginn Friedrich Nietzsche og fyrirsætuna Kate Moss. Lögfræðingar West segja að textinn við lag hans sé undir beinum áhrifum frá Nietzsche og orðum hans: „Það sem drepur þig ekki gerir þig sterkari.“ Vísa þeir því ásökunum Rogers algjörlega á bug. Tónlist 25. nóvember 2011 06:00
Grípandi danspopp Rihönnu Söngkonan hæfileikaríka Rihanna er mætt með sína sjöttu hljóðversplötu. R&B og danspoppið er sem fyrr afar fyrirferðarmikið. Tónlist 24. nóvember 2011 21:00
Upptökur í búgarði gítarleikara Strokes The Vaccines er ein af heitustu hljómsveitum Bretlands um þessar mundir. Hljómsveitin sendir frá sér lagið Tiger Blood á næstunni en gítarleikari The Strokes stýrði upptökum á laginu. Árni Hjörvar, bassaleikari hljómsveitarinnar, er ánægður með samstarfið. Harmageddon 24. nóvember 2011 10:30
Engin pressa Hljómsveitin Dikta hefur verið til í meira en áratug, en varð gríðarlega vinsæl fyrir tveimur árum. Þá sendi hún frá sér plötuna Get It Together og í kjölfarið byrjuðu lög á borð við Thank You og Just Getting Started að óma á flestum útvarpsstöðvum, pöbbum, félagsheimilum, leikskólum og elliheimilum landsins. Nú hefur hljómsveitin snúið aftur með nýja plötu í farteskinu. Harmageddon 24. nóvember 2011 09:30
The Prodigy spilar lög af nýrri plötu Hljómsveitin The Prodigy er komin aftur á stjá og ætlar að spila ný lög af væntanlegri plötu sinni á Download-hátíðinni í Bretlandi næsta sumar. Platan verður sú sjötta í röðinni og hefur ekki fengið nafn enn sem komið er. Sú síðasta hét Invaders Must Die og kom út fyrir tveimur árum. Rokksveitirnar Metallica og Black Sabbath, sem er að koma saman á nýjan leik með Ozzy Osbourne í fararbroddi, spila einnig á hátíðinni. Tónlist 24. nóvember 2011 04:00
Ísland hentar Vampillia afar vel Japanska hljómsveitin Vampillia er stödd hér á landi til að taka upp nýja plötu, auk þess sem hún hitar upp fyrir Ham á föstudagskvöld. Tónlist 24. nóvember 2011 04:00
Syngur um íslensku konuna á fyrstu sólóplötunni Valur var eitt sinn kenndur við hljómsveitina Buttercup, en sendir frá sér fyrstu sólóplötuna á næstunni. Valur segir rólega stemningu á plötunni. Tónlist 23. nóvember 2011 13:30
Músíkalskt par gefur út Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur hafa gefið út plötuna Glæður. Þar eru fjórtán hugljúf lög, þar af þrjú frumsamin. Platan varð til upp úr samstarfi þessa músíkalska pars, sem hefur undanfarin ár haldið fjölda dúettatónleika við sívaxandi vinsældir. Á meðal laga á plötunni eru Við gengum tvö, Enn syngur vornóttin, One of Us með ABBA og Boat on the River. Glæður var hljóðrituð á einu kvöldi í Stúdíó Sýrlandi með völdum hópi áheyrenda. Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, Daði Birgisson og Taylor Selsback spiluðu inn á plötuna. Tónlist 23. nóvember 2011 11:00
Plata með tónleikum Aðdáendur Quarashi geta nú keypt lokatónleika sveitarinnar sem voru haldnir á Nasa í sumar. Tónleikaplatan er aðeins gefin út stafrænt og fæst einungis á Tónlist.is. Einnig fá þeir sem kaupa Anthology-safnpakka Quarashi tónleikaplötuna frítt í kaupbæti. Aukalögin tvö, Shady Lives og An Abductee, sem eru ekki í pakkanum, fylgja einnig með í kaupbæti. Þetta verður allra síðasta útgáfa Quarashi en bæði Steini og Tiny eru langt komnir með fyrstu sólóplötur sínar. Tónleikaupptaka af laginu Pro fer í útvarpsspilun í vikunni. Einnig er hægt að heyra lagið á Fésbókarsíðu Quarashi. Tónlist 23. nóvember 2011 11:00
Syngur Heims um ból á miðjum Mercury-tónleikum Fernir tónleikar til heiðurs Freddie Mercury, söngvara Queen, verða haldnir í Hörpu í kvöld og annað kvöld. Friðrik Ómar segist vera í hörkuformi. Tónlist 23. nóvember 2011 07:00
Erfiðast að semja textana Hljómsveitin Pollapönk hefur gefið út sína þriðju plötu, Aðeins meira Pollapönk. Fyrstu tvær plöturnar hafa selst í hátt í sex þúsund eintökum. Tónlist 22. nóvember 2011 07:00
Akkúrat rétta umgjörðin Todmobile er að gefa út sína sjöundu plötu og heldur af því tilefni útgáfutónleika í Eldborgarsal Hörpunnar í kvöld þar sem öllu verður tjaldað til. Tónlist 18. nóvember 2011 06:00
Stjarnfræðilegar vinsældir lélegustu hljómsveitar heims Ótrúlega margar frábærar hljómsveitir hafa komið frá Kanada undanfarin ár. Arcade Fire, Wolf Parade og Broken Social Scene eru aðeins lítill hluti af hópi sem Nickelback tilheyrir ekki. Tónlist 17. nóvember 2011 21:30
Dr. Dre tekur sér frí Rapparinn og upptökustjórinn Dr. Dre ætlar að taka sér frí frá tónlistinni eftir 27 ár í bransanum án teljandi hvíldar. Tónlist 17. nóvember 2011 14:00
Bono kenndi mér að dansa Florence Welch úr hljómsveitinni Florence and the Machine segir að Bono, söngvari U2, hafi kennt sér að dansa á háum hælum uppi á sviði. Hljómsveitin hitaði upp fyrir U2 á 360-tónleikaferð hennar um heiminn. Tónlist 17. nóvember 2011 13:00