Akureyri lagði HK Einn leikur var á dagskrá í N1 deild karla í handbolta í dag. Akureyri vann þá nauman sigur á HK 26-25 eftir að hafa verið yfir 13-11 í hálfleik. Jónatan Magnússon skoraði 9 menn fyrir norðanmenn en Ólafur Ragnarsson og Ragnar Hjaltested 6 hvor fyrir HK. Handbolti 13. apríl 2008 18:56
Valsmenn lögðu Aftureldingu Tveir leikir fóru fram í N1 deild karla í handbolta í dag. Valsmenn lögðu Aftureldingu í Mosfellsbæ 23-18 og Stjarnan mátti gera sér að góðu jafntefli gegn ÍBV í Mýrinni 26-26. Handbolti 12. apríl 2008 19:07
Aron: Byggjum þetta skref fyrir skref „Það er mikil vinna á bakvið þennan titil, menn hafa lagt mikið á sig í vetur og við erum bara að uppskera eftir því núna," sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir að hans lið innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. Handbolti 11. apríl 2008 20:53
Haukar Íslandsmeistarar Haukar eru Íslandsmeistarar í handbolta 2008. Þeir unnu öruggan sigur á Fram á Ásvöllum í kvöld. Handbolti 11. apríl 2008 18:59
Fannar í Stjörnuna Liðin í N1-deild karla vinna greinilega hörðum höndum þessa dagana að mynda leikmannahópa sína fyrir næsta tímabil. Fannar Þorbjörnsson hefur samið við Stjörnuna og gengur til liðs við félagið í sumar. Handbolti 10. apríl 2008 18:46
Tryggvi og Hafsteinn í Hauka Tryggvi Haraldsson og Hafsteinn Ingason munu leika með Haukum í handboltanum næsta tímabil samkvæmt heimildum vefsíðunnar handbolti.is. Þeir hafa síðustu ár leikið með Ribe í Danmörku. Handbolti 10. apríl 2008 17:04
Patrekur tekur við Stjörnunni Patrekur Jóhannesson mun taka við þjálfun Stjörnunnar í sumar þegar að Kristján Halldórsson lætur af störfum. Handbolti 2. apríl 2008 15:14
Buday hættur hjá Fram Ferenc Buday hefur látið af störfum sem þjálfari Fram í DHL-deild karla en samningur hans átti að renna út í sumar. Viggó Sigurðsson mun taka við liðinu í lok tímabilsins. Handbolti 1. apríl 2008 09:40
Rúnar framlengir við Fram Rúnar Kárason, leikmaður Fram í handbolta, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011. Handbolti 31. mars 2008 16:00
HK lagði Stjörnuna í Mýrinni HK skaust í kvöld í þriðja sæti N1 deildar karla þegar liðið vann góðan útisigur á Stjörnunni 29-25 í Mýrinni í Garðabæ. Heimir Örn Árnason skoraði 11 mörk fyrir heimamenn en Ragnar Hjaltested skoraði 6 mörk fyrir HK, sem er komið upp að hlið Fram í 2.-3. sæti deildarinnar. Handbolti 30. mars 2008 22:39
Haukar með aðra höndina á titlinum Haukar náðu í kvöld átta stiga forystu á toppi N1 deildar karla þegar þeir lögðu Valsmenn 27-23 á Ásvöllum í Hafnarfirði, en Valsmenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik 14-11. Handbolti 30. mars 2008 18:03
ÍBV skellti Fram Mjög óvænt úrslit urðu í N1 deild karla í handbolta í dag þegar botnlið ÍBV skellti Frömurum í Safamýrinni 34-29. Framarar misstu þarna af mjög dýrmætum stigum í toppbaráttunni þar sem Haukar geta náð 8 stiga forystu með sigri á Val á morgun. Handbolti 29. mars 2008 16:56
Sverre í Digranes Sverre Jakobsson, leikmaður Gummersbach, hefur komist að samkomulagi við HK um að leika með liðinu næsta vetur jafnframt því að hann verður aðstoðarþjálfari liðsins. Þetta er samkvæmt heimildum handbolti.is. Handbolti 25. mars 2008 17:05
Haukar í vænlegri stöðu Haukar náðu í dag sex stiga forskoti á toppi N1 deildar karla í handbolta eftir góðan sigur á HK á Ásvöllum 30-25. Liðið hefur nú sex stiga forskot á Fram sem er í öðru sætinu og sjö á Íslandsmeistara Vals sem eru í þriðja sætinu. Handbolti 15. mars 2008 17:44
Fram tók annað sætið af Val Fram vann í kvöld tveggja marka sigur á Val, 29-27, og komst þar með í annað sæti N1-deildar karla á kostnað Íslandsmeistara Vals. Handbolti 13. mars 2008 22:03
HK vann Fram á meðan Haukar lögðu Aftureldingu Haukar styrktu stöðu sína í N1 deild karla í kvöld. Liðið hefur nú fimm stiga forystu í deildinni eftir að hafa unnið Aftureldingu á útivelli. Leikurinn endaði 26-32. Handbolti 11. mars 2008 21:38
Akureyri vann Stjörnuna Fyrsta leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta er lokið. Akureyri vann Stjörnuna fyrir norðan 34-32 en heimamenn höfðu þriggja marka forystu í hálfleik. Handbolti 11. mars 2008 19:36
Heil umferð í N1 deild karla Heil umferð verður í N1 deild karla í kvöld en þá verður 20. umferðin leikin. Umferðin hefst með leik fyrir norðan þar sem Akureyri tekur á móti Stjörnunni klukkan 19:00. Aðrir leikir kvöldsins verða klukkan 20. Handbolti 11. mars 2008 17:00
Haukar unnu Stjörnuna Haukar endurheimtu fjögurra stiga forskot á toppi N1-deildar karla með fjögurra marka sigri á Stjörnunni, 32-28. Handbolti 8. mars 2008 17:26
Öruggur sigur HK á ÍBV Einum leik er lokið í N1-deild karla í handbolta en HK vann öruggan sigur á ÍBV á heimavelli, 35-27. Handbolti 8. mars 2008 16:26
Fram lagði Aftureldingu Einn leikur fór fram í N1 deild karla í handbolta í kvöld og einn í kvennaflokki. Fram vann nauman sigur á Aftureldingu 28-26 í N1 deild karla og situr sem fyrr í öðru sæti deildarinnar. Handbolti 6. mars 2008 22:21
Viggó Sigurðsson tekur við Fram Viggó Sigurðsson hefur náð samkomulagi við handknattleiksdeild Fram um að taka við liðinu næsta sumar. Viggó hefur gert tveggja ára samning við Safamýrarfélagið, en hann hefur ekki þjálfað síðan hann stýrði Flensburg tímabundið í lok árs 2006. Handbolti 6. mars 2008 21:44
Valsmenn bikarmeistarar Valsmenn urðu í dag bikarmeistarar í handbolta eftir 30-26 sigur á Fram í skemmtilegum úrslitaleik í Laugardalshöll. Valsmenn höfðu yfirhöndina frá fyrstu mínútu í leiknum, en Framarar gáfust þó aldrei upp og héldu spennu í leiknum. Handbolti 1. mars 2008 17:30
Valsmenn með 7 marka forystu í hálfleik Valsmenn eru í góðum málum eftir fyrri hálfleik bikarúrslitaleiksins gegn Fram þar sem þeir hafa yfir 16-9. Valsmenn komust í 3-0 í leiknum og hafa verið með öruggt forskot allan hálfleikinn. Sigurður Eggertsson meiddist um miðbik hálfleiksins og getur væntanlega ekki spilað meira í dag. Handbolti 1. mars 2008 16:45
Afturelding vann botnslaginn Það var sannkallaður botnslagur í N1 deild karla í handbolta í dag þegar tvö neðstu lið deildarinnar mættust. Afturelding tók á móti ÍBV og vann sigur 28-25 eftir að hafa verið yfir 18-14 í hálfleik. Handbolti 24. febrúar 2008 16:42
Klárlega einn af leikjum ársins í N1-deildinni Fram og Haukar mætast í toppbaráttuleik N1-deildar karla í handbolta í Framhúsinu í Safamýri kl. 16:00 í dag. Liðin skildu jöfn 29-29 í Framhúsinu í lok september og Haukarnir unnu 26-20 tæpum mánuði síðar að Ásvöllum í N1-deildinni fyrr í vetur. Handbolti 24. febrúar 2008 09:15
Vorum fjórum til fimm skrefum á eftir þeim Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsmanna var ekki ánægður eftir átta marka tap liðsins gegn HK í Digranesi í kvöld. "Þeir voru miklu betri í dag, þeir voru allir heitir og Petkevicius var að verja allan tímann." Handbolti 22. febrúar 2008 22:30
HK burstaði Val HK tók Val í kennslustund í Digranesinu í leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta. HK menn sigruðu 31-23 eftir að hafa verið yfir 19-12 í hálfleik. Tomas Eitutis skoraði 11 mörk fyrir HK og Ólafur Ragnarsson 6, en Arnór Malmquist skoraði 7 mörk fyrir Val. Handbolti 22. febrúar 2008 21:46
Jafnt í Mýrinni hjá Stjörnunni og Fram Síðari leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta lauk með jafntefli líkt og þeim fyrri þegar Framarar heimsóttu Stjörnumenn í Mýrina og náðu jafntefli 29-29. Fram er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Haukum, en Stjarnan erí fjórða sætinu, tveimu stigum á eftir Fram. Handbolti 21. febrúar 2008 21:50
Jafnt á Akureyri Akureyri og Haukar skildu jöfn í fyrri leik kvöldsins í N1 deild karla í handbolta í kvöld. Heimamenn voru skrefinu á undan lengst af en Haukarnir tryggðu sér jafntefli 27-27 með því að skora tvö síðustu mörk leiksins á lokamínútunum. Handbolti 21. febrúar 2008 21:04