Vér einir getum sótt ruslið Það þarf ekki annað en að horfa á slátt og umhirðu í görðum borgarbúa og á lóðum einkafyrirtækja annars vegar og svo ástand borgarlandsins hins vegar til að sjá að margt geta einkaaðilar gert betur en Reykjavíkurborg. Það er ekki nokkur einasta ástæða til að ætla að Gámaþjónustan standi sig verr í að hirða lífrænan úrgang en borgin sjálf. Fastir pennar 30. ágúst 2013 07:00
Skýrt misrétti og óútskýrt Bandalag háskólamanna kynnti í vikunni enn eina launakönnunina sem sýnir fram á að grátlega lítill árangur hefur náðst í að draga úr kynbundnu launamisrétti á vinnumarkaði. Fastir pennar 28. ágúst 2013 06:00
Heimurinn situr hjá Stjórnvöld í Sýrlandi hafa nú í meira en tvö ár beitt vel búnum her sínum gegn eigin borgurum. Sameinuðu þjóðirnar telja varlega áætlað að um hundrað þúsund manns hafi fallið í átökunum. Allar fyrri viðvaranir og hótanir "alþjóðasamfélagsins“ um að sturlaðir einræðisherrar verði ekki látnir komast upp með að murka lífið úr eigin þjóð hafa reynzt innantómar. Örlög Gaddafís voru ekki það víti til varnaðar sem margir vonuðust til á sínum tíma. Fastir pennar 27. ágúst 2013 07:00
Upplýst aðhald Svokölluð lesskimun meðal sjö ára barna í öðrum bekk grunnskóla hefur reynzt prýðilegt tæki til að bæta lestrarkennslu og grípa inn í til að veita þeim sérstakan stuðning sem þess þurfa snemma á skólagöngunni. Fastir pennar 24. ágúst 2013 07:00
Þingmönnunum sjálfum að kenna Stundum koma niðurstöður vísindalegra rannsókna á óvart. Stundum staðfesta þær hins vegar bara það sem allir vissu. Það þýðir ekki að rannsóknin hafi verið óþörf; það getur verið gott að fá fræðilega staðfestingu á því sem við töldum okkur vita, þannig að fólk geti þá hætt að velta fyrir sér öðrum skýringum á viðkomandi fyrirbæri. Fastir pennar 23. ágúst 2013 07:15
Sniðgöngum hatur, ekki íþróttaleika Nýleg lög í Rússlandi, sem brjóta á réttindum samkynhneigðra, hafa orðið tilefni gagnrýni og mótmæla um allan heim. Þau banna meðal annars að hafa "áróður“ fyrir samböndum samkynhneigðra fyrir börnum. Slíkur "áróður“ getur falizt í því að samkynhneigðir leiðist eða kyssist á almannafæri, að fólk beri tákn mannréttindabaráttu samkynhneigðra, að ekki sé talað um að einhver haldi því fram opinberlega að samkynhneigð sé náttúruleg og eðlileg. Fastir pennar 21. ágúst 2013 07:00
Órætt og órætt Æ snúnara verður að henda reiður á stefnu ríkisstjórnarinnar í samskiptum við Evrópusambandið, sem virðist býsna óræð. Það fer að verða mikilvægt, bæði fyrir almenning og ekki síður fyrir andann í stjórnarsamstarfinu, að forystumenn stjórnarinnar útskýri Evrópustefnuna á mannamáli (eða því sem næst) og einni röddu. Fastir pennar 20. ágúst 2013 07:15
Hvernig verður hjólunum snúið? Greint var frá því í fréttum okkar á Stöð 2 í fyrrakvöld að hagvöxtur á Íslandi í ár stefndi í að verða í samræmi við svartsýnustu spár sem settar hafa verið fram, aðeins rúmt prósent. Hagvöxturinn í fyrra var líka undir væntingum, um 1,6 prósent. Íslenzkt efnahagslíf framleiðir ekki nóg og útflutningur hefur dregizt saman. Fastir pennar 17. ágúst 2013 07:00
Sáttinni snúið á haus Ríkisstjórnin vill skoða þann kost að bæta við virkjanir í Þjórsá með því að ráðast í Norðlingaölduveitu. Fastir pennar 16. ágúst 2013 07:00
Vigdís á að víkja Vitað var að Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, ætti hvorki Íslandsmet í snjöllum pólitískum tímasetningum né dómgreind. Ummæli hennar um Ríkisútvarpið í þættinum Í bítið á Bylgjunni í gærmorgun eru hins vegar meira en bara broslegur klaufaskapur. Fastir pennar 15. ágúst 2013 07:00
Skemmandi ofbeldi venjulega fólksins Skrif tveggja þekktra manna um gleðigönguna í Reykjavík síðastliðinn laugardag hafa vakið athygli. Fastir pennar 14. ágúst 2013 07:00
Eru netþjófar betri þjófar? Forsvarsmenn deildu.net, skráadeilisíðu sem hefur misserum saman dreift höfundarréttarvörðu efni ólöglega á internetinu, ákváðu fyrir skemmstu að leyfa notendum síðunnar að deila sín á milli íslenzku efni, en ekki einvörðungu erlendu. Fastir pennar 13. ágúst 2013 07:00
Ipaleg umræða Ekki þurfti að koma nokkrum manni á óvart að Evrópusambandið skrúfaði fyrir IPA-styrkina svokölluðu, sem eiga að búa umsóknarríki undir aðild að sambandinu. Fastir pennar 12. ágúst 2013 07:00
Fokk – og þó Margir sem vilja þjóðkirkjunni vel hafa sjálfsagt brugðizt eins við og Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Guðríðarkirkju, þegar hún sá að kirkjan legði nafn sitt við svokallaða Hátíð vonar, sem verður haldin í Laugardalshöllinni í næsta mánuði. "Fokk“ skrifaði presturinn á Facebook-síðuna sína. Fastir pennar 10. ágúst 2013 07:00
Stóru tölurnar Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa barmað sér yfir því að erfitt verði að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári. Í nýrri skýrslu um efnahagshorfur á Íslandi tekur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) undir það og bendir á ýmis hættumerki í ríkisrekstrinum á þessu ári. Fastir pennar 9. ágúst 2013 07:00
Nýfrjálst ríki í 95 ár Sagnfræðingurinn og alþingismaðurinn Elín Hirst skrifaði grein í Fréttablaðið í gær þar sem hún segir meðal annars: „En ég tel að hagsmunum Íslands sé mun betur borgið utan ESB og hef fært fyrir því ýmis rök, til dæmis að framsal á fullveldi komi ekki til greina fyrir nýfrjálsa þjóð eins og okkur Íslendinga.“ Fastir pennar 20. júlí 2013 07:00
Sprengjusérfræðingur óskast Lífeyrismál opinberra starfsmanna hafa verið í brennidepli undanfarið. Í skýrslu Fjármálaeftirlitsins um stöðu lífeyrissjóða kemur fram að staða sjóða með ábyrgð ríkis og sveitarfélaga – sem sagt skattgreiðenda – sé "sem fyrr mjög slæm“. Um áramót vantaði nærri 574 milljarða upp á að þessir lífeyrissjóðir ættu fyrir skuldbindingum. Skoðun 19. júlí 2013 06:15
Meðsekt ráðherra Skýrsla Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga á síðasta ári er að sumu leyti endurtekið efni. Bent er á sömu veikleikana í ríkisrekstrinum og sömu stofnanirnar fara fram úr fjárlögum ár eftir ár. Fastir pennar 18. júlí 2013 07:00
Dólgakapítalismi? Mikið er búið að skamma Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra fyrir ummæli hans á Bylgjunni á laugardag, þar sem hann sagði koma til greina að fleiri en ríkið tækju að sér rekstur heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisráðuneytið ætti að vera stefnumótandi en aðrir kynnu að vera færari um að annast reksturinn. Fastir pennar 17. júlí 2013 07:00
Úrelt lög um ríkisstarfsmenn Niðurskurðarhópur ríkisstjórnarinnar, sem var skipaður í síðustu viku, á að "fara yfir stóra útgjaldaliði ríkisins s.s. fjölda stöðugilda, skipulag, rekstur, innkaup og skoða hvort gera megi kerfisbreytingar sem leiða til aukinnar framleiðni og betri nýtingar fjármuna“. Fastir pennar 15. júlí 2013 10:22
Þora þau? Við sögðum frá því í fréttum okkar á Stöð 2 í fyrrakvöld að hinn svokallaði niðurskurðarhópur ríkisstjórnarinnar hefði umboð til að Fastir pennar 13. júlí 2013 06:00
Spurning um trúverðugleika Fréttablaðið fjallaði í gær um þá staðreynd að engar sérstakar hæfiskröfur eru gerðar til þeirra sem Alþingi kýs í bankaráð Seðlabanka Íslands. Fastir pennar 12. júlí 2013 06:00
Sáttin um sjávarútveginn Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tók rétta ákvörðun þegar hann ákvað að staðfesta lögin um lækkun veiðigjaldsins. Fastir pennar 11. júlí 2013 06:00
Gróðinn og griðastaðirnir Að undanförnu hefur fólk í vaxandi mæli áttað sig á þeim hættum og vandamálum, sem fylgja tækifærunum í örri uppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi. Fastir pennar 10. júlí 2013 06:00
Moska í fjölmenningarborg Eftir þrettán ára vandræðagang, þar sem annars sæmilega skipulögðu og skilvirku kerfi Reykjavíkurborgar hefur ítrekað mistekizt að verða við einföldum óskum Félags múslíma um lóð fyrir mosku, hillir loksins undir að úr málinu leysist. Fastir pennar 9. júlí 2013 06:00
Sjálfsvirðing borgar í órækt Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar lögðu til á fundi fyrr í vikunni að ráðizt yrði í átak í umhirðu borgarlandsins. Fastir pennar 6. júlí 2013 06:00
Framsókn, loforðin og ábyrgðin Talsverðri gagnrýni sætti að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð skyldi ekki koma út fyrir kosningar. Það var eðlileg gagnrýni; gera mátti ráð fyrir að nefndin fjallaði meðal annars um pólitíska ábyrgð á þeim mistökum sem leiddu til afleitrar stöðu sjóðsins. Það eru upplýsingar sem kjósendur hefðu átt að hafa í höndum þegar þeir tóku afstöðu til flokka í kosningunum. Fastir pennar 4. júlí 2013 07:00
Stjórnlaus ríkisbanki Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð (ÍLS) er í stíl við skýrslu fyrri rannsóknarnefndar um bankana; samfelldur áfellisdómur bæði yfir stjórnendum fjármálastofnunarinnar sem um ræðir, stjórnmálunum, stjórnsýslunni og eftirlitsstofnunum. Fastir pennar 3. júlí 2013 07:30
Sama fólkið, annar vasi Fréttablaðið sagði frá því á föstudaginn að ríkisstjórnin hygðist ekki efna loforð fyrrverandi stjórnar við lánsveðshópinn svokallaða, sem á yfirveðsettar eignir og hefur tekið lán hjá lífeyrissjóðum með veði í eign annars fólks. Fastir pennar 1. júlí 2013 12:00