Lögreglumál

Lögreglumál

Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Fréttamynd

Hopp segir mál öku­manns í höndum lög­reglu

Lögregla hafði afskipti af ökumanni sem ók deilibíl frá Hopp á hjólastíg í Fossvogi í Reykjavík í kvöld. Óljóst er hvað ökumanni gekk til og segir framkvæmdastjóri að málið sé í höndum lögreglu. Ekki sé talið að ökumaður hafi valdið skemmdum.

Innlent
Fréttamynd

Sími undir dýnu á skipti­borði tengdur inn­flutningi am­feta­mín­basa

Tveir menn eru grunaðir um að hafa í sameiningu skipulagt innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínbasa til Íslands með Dettifossi, gámaskipi Eimskips, í apríl. Mennirnir fengu tvo skipverja Eimskips til að aðstoða við innflutninginn. Mennirnir fjórir hafa verið í gæsluvarðhaldi frá því í apríl en búast má við því að gefin verði út ákæra í málinu á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu

Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í  Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 

Innlent
Fréttamynd

Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést

Rannsókn stendur yfir hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eftir að öldruð kona féll fram af svölum á hjúkrunarheimili í Reykjavík og lést. Forstjóri segir um hörmulegt slys að ræða og að hann viti ekki til þess að annað eins hafi gerst á hjúkrunarheimilinu. 

Innlent
Fréttamynd

Vegum lokað og bílar taldir

Töluvert af öryggisráðstöfunum verða gerðar á Vestfjörðum vegna almyrkvans þann 12. ágúst næstkomandi. Til að mynda verður veginum um Bolafjall lokað og fari of margir í átt að Látrabjargi verður veginum lokað.

Innlent
Fréttamynd

„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“

Lögregluþjónn hjá rannsóknardeild spyr sig hvers vegna svona mikil eftirspurn sé eftir kókaíni og amfetamíni á Íslandi enda ekki um ódýr fíkniefni að ræða. Þegar sé búið að slá met í fíkniefnahaldlagninu í ár en met var síðast slegið í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni

Lögregla réðst í húsleit víða á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn á 106 kílógrömmum af kókaíni sem fundust í álflutningaskipi við álverið í Straumsvík í síðustu viku. Níu hafa verið handteknir. Aldrei áður hefur verið lagt hald á jafnmikið magn af kókaíni í einni sendingu en virði fíkniefnanna er metið á hátt í þrjá milljarða króna.

Innlent
Fréttamynd

Tvö hundruð prósent fleiri til­kynningar um vændi

Tilkynntum kynferðisbrotum fjölgaði um níu prósent fyrstu þrjá mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Þá hafa tilkynningar um vændi þrefaldast miðað við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára, fjölgað um tvö hundruð prósent. Konur voru í miklum meirihluta brotaþola.

Innlent
Fréttamynd

Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar

Öryggisbrestur hjá Embætti héraðssaksókna er nú til skoðunar hjá Persónuvernd. Embættið tilkynnti sjálft um öryggisbrestinn sem varðar nöfn fimm einstaklinga sem sættu sakamálarannsókn og birtust í kynningarmyndbandi sem ísraelska fyrirtækið Cellebrite gerði um embættið.

Innlent
Fréttamynd

Með kylfur og mikið magn vímu­efna

Lögregla fékk í gær tilkynningu um þrjá menn sem voru á gangi í miðborginni með kylfur í hendi. Í ljós kom að þeir höfðu einnig mikið magn vímuefna í fórum sínum og voru þeir kærðir fyrir brot á vopnalögum og vörslu fíkniefna.

Innlent
Fréttamynd

Fósturfaðirinn á­fram í gæslu

Fertugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald, grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn barni á grunnskólaaldri sem hann hafði í fóstri á heimili sínu. Rannsókn málsins er langt komin.

Innlent
Fréttamynd

Segir ríkis­valdið hafa fallið á lyfja­prófi

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstarréttarlögmaður skorar á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur eftir að ný umferðarlög tóku gildi árið 2020. Hann segir ótækt að ráðherra hafi ekki séð sér fært um að kveða á um vanhæfismörk með nánari hætti en skjólstæðingur hans var sýknaður í Landsrétti eftir að hafa fjórum sinnum ekið bíl undir áhrifum uppáskrifaðs óxýkódon.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tekinn ölvaður á rafhlaupahjóli

Ökumaður á rafhlaupahjóli var handtekinn í Grafarvogi í gærkvöldi þar sem hann stýrði hjólinu ölvaður. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem segir að sjö séu nú vistaðir í fangageymslu.

Innlent
Fréttamynd

Einn fluttur á spítala eftir líkams­á­rás

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í dag. Einn hafi verið fluttur til aðhlynningar og sagður „nokkuð slasaður“. Greint er frá málinu í tilkynningu frá lögreglu en atvikinu er ekki lýst nánar.

Innlent