Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar kosningum til sveitarstjórna sem fram fara 16. maí 2026.

Fréttamynd

Alma stolt af syninum

Alma Möller heilbrigðisráðherra segist stolt af syni sínum sem var í kvöld kjörinn oddviti. Hún segist aðallega hafa lagt honum lið í kosningabaráttu með því að passa dætur hans.

Lífið
Fréttamynd

Orri á­fram odd­viti Fram­sóknar í Kópa­vogi

Á fundi fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Kópavogi í dag var Orri Vignir Hlöðversson kjörinn oddviti Framsóknar í Kópavogi og mun leiða flokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum. Orri er bæjarfulltrúi Framsóknar og formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar. Hann leiddi lista Framsóknar í sveitarstjórnarkosningunum 2022.

Innlent
Fréttamynd

Þor­valdur og Hall­dór með Einari og Magneu í Fram­sókn

Búið er að velja þau fjögur sem skipa fjögur efstu sætin á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningum í vor.  Þorvaldur Daníelsson framkvæmdastjóri Hjólakrafts skipar þriðja sætið og Halldór Bachmann kynningarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins það fjórða.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er náttúru­lega bara rotið og galið“

Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, telur flokksstarfi sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn lokið eftir að hann laut í lægra haldi gegn Berglindi Ósk Guðmundsdóttur í oddvitaslag. Hann segir margt rotið innan flokksins á Akureyri. 

Innlent
Fréttamynd

Hjólar í borgina: Hafi engan á­huga á at­kvæðum hjólreiðafólks

Stofnleið hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu í vesturbæ Reykjavíkur sem lokað var fyrir þremur árum síðan vegna framkvæmda er enn lokað. Formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segir augljóst að bílstjórar og verktakar séu í forgangi hjá borginni en ekki hjólreiðafólk. Þar séu atkvæði og peningar fyrir stjórnmálamenn í aðdraganda kosninga.

Innlent
Fréttamynd

Berg­lind rétt marði Þór­hall

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður, er nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Berglind hlaut 51 prósent atkvæða gegn 46 prósentum Þórhalls Jónssonar varabæjarfulltrúa sem sóttist einnig eftir oddvitasætinu. Þrír skiluðu auðu.

Innlent
Fréttamynd

Hlédís Maren fram fyrir Mið­flokkinn

Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur og fyrrverandi blaðamaður hyggst bjóða sig fram fyrir Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Hún segir Reykjavík frábæra borg en aðkallandi verkefni séu mörg, hugmyndafræðilegar kreddur hafi borið heilbrigða skynsemi ofurliði.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ekkert hæft í þessu“

Frosti Logason verður ekki oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningum í vor. Flokkurinn mælist samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum með tvo borgarfulltrúa inni þrátt fyrir að hafa ekki kynnt hver mun leiða lista flokksins í borginni.

Innlent
Fréttamynd

Biggi lögga lamaður eftir að of­beldi var borið upp á hann

Birgir Örn Guðjónsson, deildarstjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu, sem betur er þekktur sem Biggi lögga þá er hann starfaði í lögreglunni hefur staðið í prófkjörsbaráttu en hann vill leiða Viðreisn í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Nú segir hann að reynt sé að bregða fyrir hann fæti með lygasögu um ofbeldi.

Innlent
Fréttamynd

„Flókið að koma saman fram­boði með fjóra flokka“

Enn er óvíst hvort einhverjir þeirra flokka sem áttu aðild að Í-listanum í Ísafjarðarbæ muni bjóða fram sameiginlegan lista í komandi sveitarstjórnarkosningum eða hvort þeir bjóði fram í eigin nafni. Viðræðum um áframhaldandi samstarf var slitið í vikunni eftir að ekki náðist samstaða um uppstillingu á lista undir formerkjum Í-listans. Sitjandi oddviti listans segir kjarnann úr hópnum hafa áhuga á að halda áfram og sjálfur hyggst hann gefa kost á sér. Það eigi eftir að koma í ljós hvort það verði í nafni Viðreisnar eða annars sameiginlegs framboðs.

Innlent
Fréttamynd

Samninga­við­ræðum slitið og á­fram­haldandi sam­starf Í-listans úr sögunni

Samningaviðræðum um áframhaldandi samstarf aðildarflokka Í-listans í Ísafjarðarbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefur verið slitið. Þannig ekki útlit fyrir að boðið verði fram undir merkjum Í-listans í sveitarfélaginu í komandi kosningum en ástæðan er sú að ekki náist samstaða milli aðildarflokkanna um uppstillingu framboðslista né heldur að samræma ólíkar áherslur.

Innlent
Fréttamynd

Fær á­fram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert

Helgi Áss Grétarsson fær áfram tæpa hálfa milljón króna í laun á mánuði sem fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir að hann hafi sagt sig úr flokknum og gegni engum trúnaðarstörfum lengur. Oddviti flokksins telur óeðlilegt að á meðan fái staðgengill Helga ekkert greitt.

Innlent
Fréttamynd

Páll Edwald vill sæti á lista Mið­flokksins

Páll Edwald hefur ákveðið að gefa kost á sér á lista Miðflokksins í Reykjavík í vor. Hann er lögfræðingur og athafnamaður og líkt og nafnið gefur til kynna sonur Ara Edwald fyrrverandi forstjóra Mjólkursamsölunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja turna tal í Reykja­vík

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út.

Innlent
Fréttamynd

Mið­flokkurinn býður fram í Vest­manna­eyjum

Miðflokkurinn ætlar að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta verður í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu en flokkurinn lýsir nú eftir áhugasömum til að taka sæti á lista flokksins í Eyjum fyrir kosningarnar í vor.

Innlent
Fréttamynd

Segir af sér þing­mennsku að á­kveðnu skil­yrði upp­fylltu

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það létti að hafa unnið sannfærandi sigur í leiðtogaprófkjöri flokksins í Reykjanesbæ í gær. Hann kveðst afar þakklátur og ætlar að sinna þingstörfum og kosningabaráttu fram að sveitarstjórnarkosningum í maí.

Innlent
Fréttamynd

Spennt að mæta fyrr­verandi yfir­manni í kapp­ræðum

„Það þarf að létta á kerfinu. Við þurfum að átta okkur á því fyrir hvern við erum að vinna, hvert er hlutverkið? Er þetta nauðsynlegt verkefni? Og svo framvegis. Það þarf klárlega að fara í einhverja endurskoðun á hvernig kerfið er. Þarna er ég ekki að tala um þjónustuna inni í skólunum og frístundarheimilunum. Ég er að tala um þessa miðlægu stjórnsýslu. Við verðum að skýra hana betur.“

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan hafi verið Við­reisn til sóma

Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir baráttuna fyrir kosningar til oddvitasætis Viðreisnar í Reykjavík hafa verið Viðreisn til sóma. Hann hafnaði þar í öðru sæti á eftir Björgu Magnúsdóttur.

Innlent
Fréttamynd

„Lúxus­vanda­mál“ að velja og hafna á listann

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík segir næsta mál á dagskrá að stilla upp sigurstranglegum lista. Hún segir öflugt fólk hafa boðið sig fram gegn sér í oddvitaslagnum og að það verði skoðað af alvöru hvort ekki verði hægt að fá eitthvað þeirra til að taka sæti.

Innlent
Fréttamynd

Björg sökuð um brot á kosningareglum Við­reisnar

Björg Magnúsdóttir, einn fjögurra frambjóðenda í leiðtogaprófkjöri Viðreisnar í Reykjavík, er sökuð um að hafa brotið kosningareglur flokksins með því að hafa samband við flokksmenn sem væru bannmerktir í gagnagrunni flokksins og ekki mætti hafa samband við. Um hugsanleg brot á persónuvernd er að ræða, að sögn kjörstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Fjórðungur kosið í próf­kjöri Við­reisnar

Fjórðungur Viðreisnarmanna á kjörskrá hefur þegar greitt atkvæði í prófkjöri flokksins í Reykjavík í dag, að sögn formanns kjörstjórnar. Fjórir sækjast eftir því að vera borgarstjóraefni Viðreisnar.

Innlent