Leika bókatitla á aðfangadagskvöld Á heimili Aldísar Guðmundsdóttur, sálfæðikennara við MH, hefur sá siður komist á að leika Actionary við opnun pakkanna á aðfangadagskvöld. Sá getspakasti má svo opna einn pakka. Jólin 1. nóvember 2011 00:01
Krónhjartar-carpaccio með brómberjasósu 200 g krónhjartar-fillet eða lund salt og nýmalaður pipar 2 msk. olía Kryddið krónhjartar-fillet með salti og pipar og steikið í olíu á vel heitri pönnu á öllum hliðum, þangað til kjötið er orðið fallega brúnt. Breiðið plastfilmu yfir og frystið í a.m.k. 4 klst. Jólin 1. nóvember 2011 00:01
Jólastrætó skreyttur af leikskólabörnum Það er jólalegt í umferðinni þessa dagana, því strætisvagnar Strætó bs. skarta nú skrautlegum jólamyndum að utan og innan. Óhætt er að segja að listamennirnir séu ungir og upprennandi, því það voru leikskólabörn hvaðanæva að af höfuðborgarsvæðinu sem hönnuðu skreytingarnar. Með þessu verkefni vill Strætó leggja sitt af mörkum til að færa borgina í hátíðarbúning um leið og ungviðið er hvatt til að virkja sköpunargleðina. Jólin 1. nóvember 2011 00:01
Prúðbúin jólakrútt Spariklædd börn spígspora glöð og hrein á milli jólaballa og -boða og kalla víða fram bros á vör. Sjaldan gefast fleiri tækifæri til að klæðast sínu fínasta pússi. Jólin 1. nóvember 2011 00:01
Hjá tengdó á aðfangadagskvöld „Ég er aðeins byrjaður að undirbúa jólin með fjölskyldunni, skreyta og þess háttar. Svo er ég að gíra mig upp í að fara út og skreyta trén fyrir utan húsið," segir Sjonni Brink tónlistarmaður sem gefur út plötu fyrir þessi jól, 10 ný íslensk lög eftir hann sjálfan og Guðmund Jónsson. „Ég verð reyndar að viðurkenna að ég er mjög spenntur fyrir þessi jól, hlakka mikið til." Þegar talið berst að aðfangadagskvöldi segir Sjonni: „Ég verð heima hjá tengdamömmu minni á aðfangadagskvöld með fjölskyldunni. Það verður margrétta eins og alltaf, sumir borða rjúpur og aðrir hamborgarahrygg. Jólin eru frekar hefðbundin og heimilsleg hjá okkur. Við reynum að hitta fjölskyldumeðlimi og spila." Jól 1. nóvember 2011 00:01
Unnur Birna: Hugsar til ömmu á jólunum „Jólin þegar amma heitin, Jórunn, var hjá okkur og kenndi öllum við borðhaldið að skála rétt og almennilega en að hennar mati gerðum við hin þetta ekki alveg nógu „vel". Við höfum skálað henni til heiðurs á hverju aðfangadagskvöldi síðan," segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir brosandi aðspurð um eftirminnileg jól sem hún gleymir ekki. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Alíslenskar jólarjúpur „Ég sá næstum eftir því að hafa lofað að búa til jólaskraut því þegar ég fór að líta í kringum mig og skoða jólaskraut á netinu komst ég að því að mér þykir jólaskraut almennt ekki fallegt," segir Móeiður Helgadóttir leikmyndahönnuður hlæjandi og bætir við að flest jólaskraut þyki henni einum of mikið „kitsch". Jól 1. nóvember 2011 00:01
Englaspilið klingir Sigríður Eyrún Friðriksdóttir á fallegt englaspil sem hún tekur fram fyrsta sunnudag í aðventu og leyfir því að klingja á jólaföstunni milli þess sem hún sinnir söng og leik. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Jólaís Helgu Möller Helga Möller gaf okkur uppskriftina af jólaísnum sem hún útbýr hver einustu jól. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Með sínum heittelskaða á jólunum „Það er allur gangur á því. Ég er voða lítið með einhverjar hefðir. En maður skreytir alltaf og gerir kósý heima. Ég, Reynir og Una, fósturdóttir mín, skreytum jólatréð saman. Ég bakaði í fyrra og það var gaman og gefandi," segir Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona aðspurð um jólahefðirnar á hennar heimili. Hvað kemur þér í jólagírinn? „Nú til dæmis að baka og finna ilminn og hlusta á klassísk jólalög. Fara í göngutúr með sínum heittelskaða og vera með Unu, - hún er svo skemmtileg." „Við ætlum að vera tvö saman heima hjá okkur þar sem að Una okkar er í útlöndum," segir Elma Lísa spurð með hverjum og hvar hún verður á aðfangadagskvöld. „Góða bók eða gott ilmkerti og ást og hlýju," segir hún að lokum spurð hvaða hana langar í jólagjöf. -elly@365.is Jól 1. nóvember 2011 00:01
Lyktin af hangikjöti ómissandi partur af jólunum „Þegar ég var yngri var það um leið og jólaserían var sett á svalirnar heima og það er ein af þeim hefðum sem ég hef haldið eftir að við konan fórum að búa að setja jólaseríu á svalahandriðið og konan býr alltaf til aðventukrans. Fyrsti í aðventu er því svona sá tímapunktur þar sem jólaundirbúningurinn hefst." Jól 1. nóvember 2011 00:01
Búin að setja seríur í gluggana „Þegar ég hugsa um eftirminnileg jól dettur mér fyrst í hug þegar ég var sirka 11 ára og við bjuggum í Los Angeles þá fékk ég alltaf svo mikla heimþrá á jólunum af því fyrir utan ljós og skreytingar er ekki mjög jólalegt þar," segir leikkonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Smákökur sem nefnast Köllur Þessar kökur líkjast Sörum, en heita Köllur, að sögn Karenar Þórsteinsdóttur sem sendi jólavefnum uppskriftina. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Lúsíubrauð Lúsíubrauð er bakað í Svíþjóð fyrir Lúsíudaginn 13. desember og afgangurinn geymdur í frysti til jólanna. Brauðin eru sólgul smábrauð sem ilma af kryddi og heita á frummálinu Lusekatter. Þau eru formuð eins og geislar sem eiga að undirstrika ljósið sem dýrðlingurinn Lúsía kemur með í myrkrinu. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Gottakökur Þessa uppskrift sendi Ásta Lóa, sem segir þessar kökur vera ómissandi hjá sinni fjölskyldu um jólin. Crisco er vörutegund af jurtafeiti sem fæst sjaldan á Íslandi, en hægt er að nota smjör eða smjörlíki í staðinn. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Jólatrukkar með tölvuleikjahelli og stofu jólasveinsins Þessir vel skreyttu og ríkulega búnu jólatrukkar Coca Cola munu leggja fyrir framan stærri verslunarkjarna landsins og bjóða fólki inn á hverjum degi út aðventuna. Jólin 1. nóvember 2011 00:01
Réttu kvikmyndirnar fyrir jólaskapið Margir nýta jólin til kvikmyndaáhorfs og oftar en ekki verða fyrir valinu myndir sem hverfast með einum eða öðrum hætti um jólin þótt þau séu ekki endilega meginviðfangsefnið. Hér fer listi yfir nokkrar slíkar sem ættu að koma manni í rétta jólaskapið: Jól 1. nóvember 2011 00:01
Marsipan-nougat smákökur Uppskriftina að þessum girnilegu marsipan-nougat smákökum sendi Karen Þórsteinsdóttir okkur. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Súkkulaðikókoskökur Þetta er allt hnoðað saman, gott að geyma inn í ísskáp í eins og 1 klst. Jól 1. nóvember 2011 00:01
Hátíðarbrauð frá Ekvador Einn pk. þurrger, 1/4 bolli sykur, 1/3 bolli volgt vatn, 6 eggjarauður, 1 tsk. vanilludropar, 1/2 tsk. raspaður sítrónubörkur, 1/2 tsk. salt, 2 til 3 bollar hveiti, 8 msk. mjúkt smjör, 1/3 bolli súkkat, 1/4 bolli dökkar rúsínur, 1/4 bolli ljósar rúsínur, 1 bolli hakkaðar pekanthnetur eða valhnetur, 2 msk. bráðið smjör. Jól 1. nóvember 2011 00:01