Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Ráðamenn í Sádi-Arabíu eru sagðir skipuleggja stórsókn gegn Hútum í Jemen. Meðal annars kemur til greina að reka Húta frá stöndum Bab el-Mandebsunds, en vera þeirra þar gerir Hútum kleift að loka öðrum enda Rauðahafs. Sóknin yrði leidd af sveitum ríkisstjórnar Jemen, og nyti stuðnings Sáda úr lofti og ráðgjafar og upplýsinga frá Bandaríkjamönnum. Erlent 2.10.2026 22:45
Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Stjórnvöld í Íran segja að deilan við Bandaríkin og Ísrael verði aðeins leyst með diplómatískum leiðum. Þetta kom fram í máli Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í gær, degi eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hafi hafnað tillögu Írana um að opna Hormússund og binda enda á átökin. Erlent 28.9.2026 06:40
Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa boðað yfirmenn herafla Tyrklands og Pakistan á fund þar sem ræða á hvernig ríkin tvö geta stutt Sáda vegna árása Húta í Jemen. Æðstiklerkur Sádi-Arabíu hefur kallað eftir því að hermenn konungsríkisins verði tilbúnir til að leggja lífið að veði í baráttunni gegn Hútum. Erlent 25.9.2026 07:52
Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Erindrekar frá Pakistan komu í dag viðvörun á framfæri við ráðamenn í Íran. Klerkastjórnin var beðin um að koma böndum á Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra á Sádi-Arabíu, ellegar væri hætta á því að átök á svæðinu gætu stigmagnast verulega. Erlent 9. september 2026 23:21
Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Hútar skutu í nótt tugum dróna og eldflauga að fjórum borgum í Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árásirnar og ollu þær meðal annars skemmdum á olíuvinnsluinnviðum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu heita umfangsmiklum viðbrögðum en átök hafa harðnað í Jemen að undanförnu. Erlent 8. september 2026 20:50
Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Útlit er fyrir að sómalskir sjóræningjar séu aftur byrjaðir að láta til sín taka á Adenflóa og Rauðahafi, eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara um árabil. Fyrr í vikunni réðust sjóræningjar um borð í tyrkneskt skip sem var meðal annars að flytja vopn og sigldu því til Sómalíu. Erlent 20. ágúst 2026 16:14
Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran. Erlent 23. júlí 2026 12:54
Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu. Viðskipti erlent 23. júlí 2026 10:26
Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað. Erlent 23. júlí 2026 07:18
Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið. Erlent 21. júlí 2026 08:25
Báðir segjast hættir, í bili Útlit er fyrir að átökunum milli Ísrael og Íran, sem blossuðu upp á nýjan leik í gærkvöldi, sé lokið eða í það minnsta í bili. Ráðamenn í báðum ríkjum segjast hættir árásum en halda möguleikanum á því að hefja þær að nýju opnum. Erlent 8. júní 2026 13:34
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18. maí 2026 07:58
Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. Erlent 28. mars 2026 23:41
Hútar skjóta eldflaugum að Ísrael Hútar frá Jemen sendu flugskeyti í átt að Ísrael í morgun en þetta er fyrsta árás þeirra eftir að átök milli Bandaríkjanna, Ísraela og Írana hófst. Erlent 28. mars 2026 10:02
Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Her Sádi-Arabíu gerði í morgun loftárásir á höfnina í Mukalla í Jemen sem sagðar eru hafa beinst að vopnasendingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu vöruðu í kjölfarið furstadæmin við því að aðgerðir þeirra og stuðningur við vopnaðan hóp sem kallast STC væri einkar hættulegur. Erlent 30. desember 2025 09:41
Ógnaði öryggi hermanna með Signal-spjalli Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ógnaði öryggi hermanna með því að ræða yfirvofandi hernaðaraðgerðir gegn Hútum í Jemen. Það gerði hann í einkasíma sínum gegnum samskiptaforritið Signal, en blaðamaður var í einum hópnum sem Hegseth var í og var honum bætt í hópinn fyrir mistök. Erlent 4. desember 2025 21:32
Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Leiðtogar Húta í Jemen hafa gefið til kynna að þeir séu hættir árásum á bæði Ísrael og fraktskip á Rauðahafi. Er það vegna óstöðugs vopnahlés á Gasaströndinni, samkvæmt bréfi sem Qassam stórfylkin, hernaðarvængur Hamas, birti nýverið. Erlent 11. nóvember 2025 14:56
Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Uppreisnarmenn Húta í Jemen réðust í dag inn í starfsstöðvar Sameinuðu þjóðanna í höfuðborg landsins og tóku ellefu starfsmenn í hald. Þetta gerist í framhaldi af því að Ísraelsmenn felldu forsætisráðherra ríkisstjórnar Húta, Ahmed Ghaleb Nasser al-Rahawi al-Yafei, í loftárás á Sanaa á fimmtudag. Innlent 31. ágúst 2025 22:54
Felldu talsmann hernaðararms Hamas Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir að Abu Obeida, talsmaður al-Qassam-sveita Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í loftárás í gær. Heilbrigðisstarfsmenn á Gasaströndinni segja að minnsta kosti 43 Palestínumenn liggja í valnum frá því í gær. Flestir þeirra í Gasaborg, sem Ísraelar hafa lýst yfir að sé nú átakasvæði. Erlent 31. ágúst 2025 14:04
Tugir drukknuðu og margra enn saknað 68 drukknuðu og 74 er enn saknað eftir að bát hvolfdi nálægt ströndum Jemen í gærmorgun. Um 150 eþíópískir ríkisborgarar voru um borð en einungis tólf var bjargað. Erlent 4. ágúst 2025 08:06
Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Björgunaraðgerðir standa yfir í Rauðahafinu eftir að hersveitir Húta í Jemen gerðu handsprengjuárás á fraktskip í gær. Minnst þrír voru drepnir í árásinni og sextán er enn saknað. Erlent 9. júlí 2025 18:13
Trump segir fólki að yfirgefa Tehran hið snarasta Íranar halda áfram að skjóta eldflaugum á Ísrael, eftir að Ísraelar hafa gert umfangsmiklar loftárásir í Íran. Eldflaugunum virðist þó fara sífellt fækkandi og Ísraelar segjast hafa tryggt sér yfirráð í háloftunum yfir Íran. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti því yfir í kvöld að allir íbúar Tehran, höfuðborgar Íran, ættu að flýja en Bandaríkin hafa verið að flytja umtalsverðan herafla til Mið-Austurlanda. Erlent 16. júní 2025 22:57
Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir umfangsmiklar árásir hafa verið gerðar á Húta í Jemen í dag. Miklar skemmdir hafi verið unndar á höfnum undir stjórn Húta og flugvellinum í Sanaa. Erlent 16. maí 2025 15:52
Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður yfir því hver erfiðlega honum hefur gengið að binda enda á átök sem hann hafði heitið að stöðva fljótt. Fyrir forsetakosningarnar í fyrra hafði forsetinn heitið því að stöðva átökin í Úkraínu og á Gasaströndinni mjög fljótt. Erlent 10. maí 2025 15:25