Birgir í basli með Bermúda-grasið Birgir Leifur Hafþórsson er í 23.-31. sæti á móti í Marokkó þegar aðeins á eftir að leika einn hring en þetta mót er liður í áskorendamótaröð Evrópu. Birgir Leifur lék á 68 höggum í gær eða þrem undir pari en hann er sex undir pari samtals. Sport 29. maí 2005 00:01
Örugg forysta Leonards Justin Leonard frá Bandaríkjunum hefur átta högga forystu eftir þrjá hringi á PGA-meistaramóti sem fram fer í Memphis, en hann er samtals á 17 höggum undir pari fyrir lokahringinn. Peter Hedblom frá Svíþjóð og Angel Cabrera frá Argentínu hafa tveggja högga forystu á Evrópumóti atvinnumanna í Wentworth á Englandi og eru á tíu höggum undir pari. Sport 29. maí 2005 00:01
Örlygur og Þórdís efst á Hellu Örlygur Helgi Grímsson er með tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á Toyota-mótaröðinni í golfi sem fram fer á Hellu. Örlygur, sem er frá Vestmannaeyjum, lék frábært golf í gær og var á fimm höggum undir pari og var aðeins einu höggi frá vallarmeti Ómars Halldórssonar sem sett var árið 2002. Þórdís Geirsdóttir úr GK hefur eins höggs forystu í kvennaflokki á þær stöllur úr GR, Ragnhildi Sigurðardóttur og Önnu Lísu Jóhannsdóttur. Sport 29. maí 2005 00:01
Birgir Leifur endaði í 8. sæti Íslandsmeistarinn í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson, endaði í 8.-12. sæti á áskorendamótinu í Marokkó en hann lék á 66 höggum í dag og samtals á 11 höggum undir pari. Birgir Leifur fékk í dag 8 fugla, 8 pör, einn skolla og einn tvöfaldan skolla. Sport 29. maí 2005 00:01
Leonard efstur í Memphis Bandaríski kylfingurinn Justin Leonard hefur fimm högga forystu eftir tvo hringi á PGA-mótinu í Memphis og er samtals á 13. höggum undir pari. Fredric Jakobson frá Svíþjóð er annar á átta höggum undir pari. Í Wentworth á Englandi er sænski kylfingurinn Peter Hedbolm efstur með þriggja högga forystu eftir tvo hringi. Sá sænski er samtals á 11. höggum undir pari. Sport 28. maí 2005 00:01
Ólöf María úr leik Íslandsmeistari kvenna í golfi, Ólöf María Jónsdóttir náði ekki að fylgja eftir velgengni sinni undanfarið í dag og er úr leik á opna austurríska mótinu sem er hluti af evrópsku mótaröðinni. Hún lék annan hringinn í dag á 75 höggum, þremur yfir pari. Sport 27. maí 2005 00:01
Birgir Leifur á 5 undir pari Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér í dag áframhaldandi þátttöku á golfmótinu á Golf du Soleil-vellinum í Marokkó sem er hluti af Áskorendamótaröðinni. Hann lék með eindæmum vel í dag eða á 5 höggum undir pari, 66 höggum og er í 34. sæti fyrir lokahringina tvo. Sport 27. maí 2005 00:01
Ólöf á 5 yfir - Birgir á 1 undir Ólöf María Jónsdóttir, Íslandsmeistari í golfi kvenna, náði sér ekki á strik á fyrsta degi Evrópamótaraðarinnar í Austurríki í morgun. Hún lék fyrsta hringinn á 77 höggum eða fimm yfir pari. Birgir Leifur Hafþórsson er á einu höggi undir pari á móti í Marokkó. Sport 26. maí 2005 00:01
Perry sigraði á Colonial-mótinu Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry vann Colonial-mótið í bandarísku mótaröðinni með miklum yfirburðum í gærkvöldi. Hann lék á 261 höggi, eða á 19 undir pari sem er jafnbesti árangurinn á mótaröðinni í ár. Þetta var annar sigur Perrys á þremur árum á mótinu og annar sigur hans á tímabilinu. Billy Mayfair varð í öðru sæti sjö höggum á eftir Perry. Sport 23. maí 2005 00:01
Perry með sjö högga forystu Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry hefur sjö högga forystu fyrir lokahringinn á Colonial-mótinu í golfi sem er hluti af bandarísku mótaröðinni. Perry lék þriðja hringinn á 64 höggum og er samtals á 192 höggum eða 18 höggum undir pari. Sport 22. maí 2005 00:01
Perry með þriggja högga forystu Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry hefur forystu á Colonial-mótinu í golfi á bandarísku mótaröðinni. Perry, sem vann mótið fyrir tveimur árum, lék á sjö höggum undir pari vallar í gærkvöld og er samtals á 12 höggum undir pari, 128 höggum, og hefur þriggja högga forystu á DJ Trahan og Ted Purdy. Sport 21. maí 2005 00:01
Purdy sigraði á 15 undir Bandaríkjamaðurinn Ted Purdy sigraði á Byron Nelson mótinu í golfi í gærkvöldi. Hann lék samtals á 15 höggum undir pari. Annar, höggi á eftir, varð landi hans Sean O´Hair og Fídjieyingurinn Vijay Singh varð í þriðja sæti ásamt Bob Tway og Doug Barron. Sport 16. maí 2005 00:01
Woods úr leik á Byron Nelson Tiger Woods féll í gær úr leik á Byron Nelson mótinu í golfi sem fram fer í Texsas. Woods komst ekki í gegnum niðurskurðinn og var einu höggi frá því að komast áfram. Þetta er í fyrsta skipti í sjö ár sem Tiger Woods kemst ekki í gegnum niðurskurðinn og í þriðja skiptið á ferlinum. Bandaríkjamennirnir Sean O'Hair og Brett Wetterich eru efstir á níu höggum undir pari en sýnt verður beint frá mótinu á Sýn 2 annað kvöld. Sport 14. maí 2005 00:01
Ólöf María úr leik á Spáni Ólöf María Jónsdóttir er úr leik á Opna spænska meistaramótinu í golfi sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Ólöf María lék á þremur höggum yfir pari í gær og var samtals á sjö höggum yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Sport 14. maí 2005 00:01
Brian Davis efstur á Bretlandi Englendingurinn Brian Davis hefur eins höggs forystu eftir tvo hringi á breska Masters-mótinu í golfi. Davis er á fjórum höggum undir pari en síðan koma landi hans, David Howell, og hinir dönsku Thomas Björn og Sören Hansen á þremur höggum undir pari. Sport 14. maí 2005 00:01
Ólöf María á tveimur yfir pari Ólöf María Jónsdóttir Íslandsmeistari í golfi lék á fjórum höggum yfir pari á fyrsta keppnisdegi á spænska meistaramótinu sem hófst í gær, en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Ólöf María lék fyrstu 12 holurnar í morgun á tveimur höggum undir pari og er á tveimur yfir samtals í 78.-88. sæti. Sport 13. maí 2005 00:01
Appleby efstur á Byron Nelson Ástralski kylfingurinn Stuart Appelby lék vel á fyrsta degi á Byron Nelson mótinu í golfi eða á sjö höggum undir pari. Hann hefur eins höggs forskot á Ernie Els frá Suður-Afríku og John Daly sem kemur frá Bandaríkjunum. Vijay Singh, stigahæsti kylfingur heims, er á tveimur höggum undir pari og Tiger Woods er á einu undir. Sport 13. maí 2005 00:01
Heiðar Davíð komst í gegn Heiðar Davíð Bragason kylfingur úr GKJ komst í dag í gegnum fyrsta niðurskurð fyrir Brabazone Trophy, Opna enska áhugamannameistaramótið í golfi sem hefst á Oxfordshire-vellinum á föstudag. Heiðar lék á 2 höggum undir pari í dag eða 70 höggum og varð efstur ásamt 5 öðrum kylfingum. Þrír aðrir Íslendingar keppa á mótinu. Sport 11. maí 2005 00:01
Singh sigraði í Charlotte Vijay Singh frá Fídjieyjum sigraði í gær á PGA-stórmóti í golfi í Charlotte í Bandaríkjunum eftir umspil við Sergio Garcia frá Spáni og Jim Furyk frá Bandaríkjunum. Eftir 72 holur voru þeir félagar jafnir á 12 höggum undir pari. Sport 9. maí 2005 00:01
Sigur hjá Webster eftir 10 ár Englendingurinn Simon Webster sigraði í gær á Telecom-mótinu í golfi á Ítalíu sem er liður í evrópsku mótaröðinni. Hann lék á 18 höggum undir pari og varð þremur höggum á undan næsta manni. Webster vann síðast í evrópsku mótaröðinni fyrir 10 árum og hafði spilað á 247 mótum frá þeim degi þar til hann vann loks í gær. Sport 9. maí 2005 00:01
Garcia náði sex högga forystu Spánverjinn Sergio Garcia náði í gær sex högga forystu á Wachovia-mótinu í golfi í Charlotte í Norður-Karólínu. Garcia lék í gær á fimm höggum undir pari og er samtals á tólf undir parinu þegar 18 holur eru eftir. Sport 8. maí 2005 00:01
Birgir hefur lokið keppni Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á Telecom-mótinu í golfi á Ítalíu í gær. Birgir Leifur lék tvo fyrstu hringina á tveimur höggum yfir pari og vantaði þrjú högg til þess að komast í gegnum niðurskurðinn. Sport 7. maí 2005 00:01
Garcia með tveggja högga forystu Spánverjinn Sergio Garcia hefur forystu þegar keppni á Wachovia-mótinu í golfi í Charlotte í Norður-Karólínu er hálfnuð. Garcia er á sjö undir pari og hefur tveggja högga forystu á Vijay Singh, Joey Sindelar og DJ Trahan. Sport 7. maí 2005 00:01
Birgir í 85-106. sæti Birgir Leifur Hafþórsson lék í gær á einu höggi yfir pari á Telecom mótinu í golfi á Ítalíu. Birgir Leifur hefur leik nú á eftir en hann var í 85-106. sæti eftir fyrsta keppnisdag. Englendingurinn Richard Finch hafði nú áðan forystu, var á tíu höggum undir pari eftir tólf holur í dag. Sport 6. maí 2005 00:01
Birgir Leifur á Evrópumóti í golfi Íslandsmeistarinn í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson, hóf í morgun keppni á Evrópumótinu á Ítalíu, en þar etur hann kappi við marga sterka kylfinga. Birgir Leifur er í 57.-78. sæti á einu höggi yfir pari eftir 12 holur. Sport 5. maí 2005 00:01
Birgir Leifur á einu yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, lauk keppni á einu höggi yfir pari á fyrsta hring á Evrópumótaröðinni á Ítalíu í dag. Birgir Leifur er í 85. sæti af 160 keppendum en ekki hafa allir lokið leik. Eftir fyrstu níu holurnar í dag var Birgir Leifur á tveimur höggum yfir pari en fékk fugl á tíundu holu og paraði eftir það. Sport 5. maí 2005 00:01
Stóru nöfnin verða með á Wachovia Sjö af tíu efstu mönnum á heimslista kylfinga munu taka þátt á Wachovia mótinu í Norður-Karólínufylki í Bandaríkjunum, sem hefst á morgun. Sport 4. maí 2005 00:01
Els þakkar þjálfara sínum Suður-afríski kylfingurinn Ernie Els þakkar þjálfara sínum stórbætt gengi sitt að undanförnu og segir hann manninn á bak við 13 högga sigur sinn á opna Asíumótinu um helgina. Sport 3. maí 2005 00:01
Kylfusveinn Woods í kröppum dansi Steve Williams, sem er kylfusveinn golfsnillingsins Tiger Woods slapp naumlega við meiðsli um helgina, þegar hann lenti ók bíl sínum útaf í kappakstri í heimalandi sínu, Nýja-Sjálandi. Sport 3. maí 2005 00:01
Fádæma yfirburðir Els Suður-Afríkumaðurinn Ernie Els hafði fádæma yfirburði á atvinnumannamóti kylfinga sem lauk í Shanghai í Kína í nótt en mótið er hluti af evrópusku mótaröðinni. Hann lék holurnar 72 á 26 höggum undir pari og var 13 höggum á undan næsta manni sem var Bretinn Simon Wakefield. Daninn Thomas Björn varð þriðji. Sport 2. maí 2005 00:01