Fjögur mótsmet slegin og aðeins sentímetri skildi að í langstökkinu Á öðrum keppnisdegi Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum voru fjögur mótsmet slegin. Keppni í langstökki kvenna var æsispennandi. Sport 30. júní 2024 13:00
Fimmfaldur Ólympíumeistari keppir ekki í París Jamaíski spretthlauparinn Elaine Thompson-Herah getur ekki bætt fleiri Ólympíuverðlaunum í glæsilegt safn sitt á leikunum í París. Sport 27. júní 2024 14:31
Tryggði sér sæti á Ólympíuleikunum hálfu ári eftir hnéaðgerð Anna Hall tryggði sér á dögunum sæti á Ólympíuleikunum sem fram fara í París síðar í sumar. Þar mun hún keppa í sjöþraut en leið hennar á leikana hefur verið þyrnum stráð. Sport 27. júní 2024 08:31
Snoop vottaði Kobe virðingu sína á hlaupabrautinni Tónlistarmaðurinn Snoop Dogg verður í París þegar Ólympíuleikarnir fara fram. Þar mun hann starfa fyrir sjónvarpsstöðina NBC sem sýnir leikina í Bandaríkjunum. Að því tilefni hljóp hinn 52 ára gamli Snoop 200 metra á dögunum. Sport 26. júní 2024 07:31
Ólympíumeistarinn datt í miðju hlaupi og kemst ekki til Parísar Ekkert verður af því að Athing Mu vinni gullverðlaun í átta hundruð metra hlaupi á öðrum Ólympíuleikunum í röð. Sport 25. júní 2024 15:47
Dró fram Yu-Gi-Oh!-spil og tryggði sig inn á Ólympíuleika Noah Lyles, ríkjandi heimsmeistari í 100 metra hlaupi karla, tryggði sig um helgina inn á Ólympíuleikana sem fram fara í París síðar í sumar. Virðist lukkugripur hans hafa hjálpað honum að þessu sinni. Sport 24. júní 2024 12:31
Settu báðar mótsmet á leiðinni að gullinu á Gíbraltar Íslenska frjálsíþróttafólkið vann sjö gullverðlaun á Smáþjóðameistaramótinu á Gíbraltar í gær. Sport 23. júní 2024 09:31
Birta María vann gull og var nálægt Íslandsmetinu Birta María Haraldsdóttir varð í dag Smáþjóðameistari í hástökki kvenna þegar hún fagnaði sigri í Smáþjóðameistaramótinu á Gíbraltar. Sport 22. júní 2024 14:45
Féll á lyfjaprófi en sleppur við refsingu Bandaríski spretthlauparinn Erriyon Knighton á enn möguleika á því að keppa á Ólympíuleikunum í París í sumar þrátt fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi í vor. Sport 20. júní 2024 11:30
Fyrsti Ólympíufari Palestínu dó á Gaza-svæðinu Majed Abu Maraheel er látinn 61 árs gamall. Hann lést í Nuseirat flóttamannabúðunum á Gaza-svæðinu. Sport 19. júní 2024 16:30
Hlaupadrottningin með Bs í læknisfræði: „Erfiðasta og lengsta hlaup lífs míns“ Andrea Kolbeinsdóttir hefur unnið ófá hlaupin á síðustu mánuðum en með fram öllum keppnunum sínum var hún líka að klára erfiðasta og lengsta hlaupið í hennar lífi. Það fór hins vegar fram utan keppnisvallarins. Sport 18. júní 2024 10:01
Ísold stórbætti persónulegt met og varð Norðurlandameistari Ísold Sævarsdóttir varð í dag Norðurlandameistari stúlkna undir 18 ára í sjöþraut. Sport 16. júní 2024 19:57
Komust ekki áfram í sleggjukastinu Sleggjukastararnir Elísabet Rut Rúnarsdóttir og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir komust ekki í úrslit á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í dag. Sport 9. júní 2024 12:18
Sonur Dannys Mills vann silfur á EM í frjálsum George Mills vann silfur í fimm þúsund metra hlaupi á EM í frjálsum íþróttum í gær. Einhverjir ættu að kannast við föður hans úr annarri íþrótt. Enski boltinn 9. júní 2024 12:01
Hilmar varð af úrslitasæti Hilmar Örn Jónsson komst ekki í úrslit í sleggjukasti á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem fer nú fram í Róm. Sport 8. júní 2024 15:18
Ótrúlegt atvik á EM: Fagnaði of snemma og missti af medalíu Það borgar sig aldrei að fagna of snemma. Það kom svo sannarlega í ljós í úrslitum í göngu á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Róm í gær. Sport 8. júní 2024 10:16
Daníel þremur sentímetrum frá því að komast í úrslit á EM Langstökkvarinn Daníel Ingi Egilsson var hársbreidd frá því að komast í úrslit á EM í frjálsum íþróttum, hans fyrsta stórmóti á ferlinum. Sport 7. júní 2024 12:34
Guðni Valur og Erna Sóley riðu á vaðið Guðni Valur Guðnason og Erna Sóley Gunnarsdóttir kepptu fyrst Íslendinga á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í Róm í dag. Sport 7. júní 2024 09:01
Hitaði upp fyrir EM með því að slá Íslandsmetið Elísabet Rut Rúnarsdóttir bætti eigið Íslandsmet í sleggjukasti á bandaríska háskólameistaramótinu í Eugene í Oregon í gær. Sport 7. júní 2024 08:17
Hálfáttræður forsætisráðherra Fídjí vann brons í kúluvarpi Forsætisráðherra Fídjí, Sitiveni Rabuka, vann til bronsverðlauna í kúluvarpi á Eyjaálfuleikunum. Hann er 75 ára. Sport 6. júní 2024 23:30
Í sex ára keppnisbann og heimsmetið talið ólöglegt Rhonex Kipruto frá Kenía hefur verið dæmdur í sex ára keppnisbann vegna misræmis í blóðsýnum. Segir heiðarleikadeild frjálsra íþrótta (Athletics Integrity Unit) að því sé staðfest að Kipruto hafi gerst sekur um svindl. Heimsmetið sem hann setti árið 2020 gildir því ekki. Sport 6. júní 2024 07:01
„Ekkert til að skammast mín fyrir“ Heimsmethafinn Mykolas Alekna finnst gagnrýnin á sig ósanngjörn en hann setti heimsmet í kringlukasti í apríl við sérstakar og mjög hagstæðar aðstæður. Sport 2. júní 2024 15:00
Ekki séð fleiri Íslendinga á EM í 66 ár Átta Íslendingar keppa á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Róm á Ítalíu og hefst á föstudaginn kemur. Sport 2. júní 2024 12:31
„Hlupu eins og vindurinn hér í logninu í Annecy“ Ísland var í efri hlutanum í bæði karla- og kvennaflokki á Evrópumeistaramótinu í utanvegahlaupum í Annecy í Frakklandi sem fór fram í gær. Sport 2. júní 2024 09:31
Vatnsskortur í Stokkhólmsmaraþoninu Stokkhólmsmaraþonið fer fram í dag og er fjöldi fólks með að þessu sinni. Sport 1. júní 2024 12:01
Tryggði sér sigur á heimavelli með því að skutla sér í mark Norðmenn héldu Demantamót í frjálsum íþróttum í gærkvöldi og fór það fram á Bislett leikvanginum í Osló. Sport 31. maí 2024 13:30
Ólympíuboxarar munu líka fá peninga fyrir að komast á verðlaunapall Alþjóða hnefaleikasambandið hefur ákveðið að fylgja alþjóða frjálsíþróttasambandinu eftir og veita verðlaunahöfum á Ólympíuleikunum peningaverðlaun. Sport 29. maí 2024 17:30
Fyrrum Ólympíumeistari dæmdur í bann fyrir lyfjamisnotkun Brasilíski stangarstökkvarinn og fyrrum Ólympíumeistarinn Thiago Braz hefur verið dæmdur í 16 mánaða keppnisbann fyrir lyfjamisnotkun. Sport 29. maí 2024 14:00
Fór í gegnum djúpa dali áður en hann slátraði Íslandsmetinu Langstökkvarinn Daníel Ingi Egilsson gekk í gegnum djúpa dali meðan hann glímdi við meiðsli, en missti aldrei trúna. Hann kom sá og sigraði á Norðurlandamótinu síðustu helgi og stórbætti 20 ára gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar. Sport 25. maí 2024 09:01
Kurr í hlaupaheiminum vegna óvissu með Reykjavíkurmaraþonið Óvíst er hvort keppendur í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar fái tíma sína staðfesta af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Deilur standa yfir milli skipuleggjenda og þeirra sem hafa séð um dómgæslu hlaupsins. Engin lausn virðist í sjónmáli og aðilar málsins eru meira að segja ósammála um hvar ágreiningurinn liggur. Sport 22. maí 2024 08:31