Frakkar kveiktu í 1.193 bílum á gamlárskvöld Íslendingar kveikja í brennum á gamlárskvöld en Frakkar kveikja í æ fleiri bílum við sama tækifæri. Mjög margir bílar hafa orðið fyrir barðinu á brennuvörgum síðustu tvö gamlárskvöld, en örlítið færri bílar voru brenndir ári fyrr, eða 1.147. Þeir voru hinsvegar “aðeins” um 400 árin 2007 og 2008, en tölur um brennda bíla voru ekki birtar næstu tvö ár. Líkleg ástæða þess er talin sú að þáverandi stjórnvöld töldu brunana vera mótmæli og fjöldi þeirra væri ekki heppilegur til birtingar. Engu að síður liggja þessar tölur fyrir frá síðustu tveimur áramótum og litlu máli virðist skipta hver er við stjórnvölinn, Nicolas Sarkozy fyrir ári eða Francois Hollande nú. Mjög er deilt á birtingu þessara talna um bílabruna og er talið að þær hvetji til enn fleiri bruna við næstu áramót og espi hugsanlega hin ýmsu gengi til keppni í bílabruna. Bílar 4. janúar 2013 09:19
Volt er mættur Rafbíllinn Chevrolet Volt er kominn til landsins og verður bíllinn kynntur hjá Bílabúð Benna næstkomandi laugardag. Volt kemst um 60 km á rafhleðslunni einni saman og framleiðir auk þess eigin raforku sem lengir heildarökudrægi bílsins í allt að 500 km. "Volt er staðfesting á stöðu Chevrolet sem eins framsæknasta bílaframleiðanda heims", er haft eftir forsvarsmönnum Bílabúðar Benna. Segja þeir að stór orð hafi nú þegar verið höfð um hann og Volt hafi hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar á mörkuðum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. "Volt hefur verið á Bandaríkjamarkaði í tvö ár og eigendurnir þar hafa sett hann á topp ánægjulistans bæði árin. Volt var einnig útnefndur Bíll ársins 2011 af bæði Automobile Magazine og fagritinu Motor Trend. Hann hefur jafnframt hlotið sæmdarheitið "Umhverfisbíll ársins 2011“ hjá tímaritinu Green Car Journal. Nýjasta afrekið er afgerandi sigur á bílasýningunni í Genf þar sem hann hlaut titilinn "Bíll ársins 2012“. Dómnefndin var skipuð 59 leiðandi bílablaðamönnum frá 23 Evrópuríkjum.“ Chevrolet Volt verður frumsýndur gestum og gangandi laugardaginn 5. janúar, frá kl. 12 til 18 í Bílabúð Benna, Tangarhöfða 8. Bílar 3. janúar 2013 16:00
Audi hættir við A2 rafbílinn Á bílasýningunni í Frankfurt árið 2011 kynnti Audi þessa útgáfu A2-bílsins, eingöngu drifinn áfram með rafmagni. Audi hafði þá uppi áform um að verða enginn eftirbátur annarra bílaframleiðenda í smíði rafbíla. Dræm sala á rafdrifnum bílum síðan þá hefur hinsvegar fengið fyrirtækið af þessum áformum og ekkert verður af smíði þessa bíls, sem keppa átti við BMW i3 og Mercedes Benz A-Class. Forsvarsmenn Audi létu hafa eftir sér að hönnun þessa bíls hafi verið ágætis verkfræðiæfing sem nýtist í framtíðinni, en lítil eftirspurn eftir rafmagnsbílum nú réttlæti hinsvegar ekki að þróuninni verði haldið áfram. Bíllinn átti að koma á markað árið 2014, bæði sem rafmagnsbíll og tvinnbíll. Hann var mjög léttur, eða ríflega 1.100 kg og mest smíðaður úr áli og koltrefjum. Hann var 114 hestöfl og átti að komast um 200 km á fullri hleðslu. Bílar 3. janúar 2013 13:45
VSÓ leigir rafbíl af Thrifty Rafbílavæðingin er augljóslega hafin á Íslandi þótt hún fari hægt af stað. Rafbílar eru boðnir til sölu hjá nokkrum bílaumboðum landsins. Auk þess eru þeir nú orðnir aðgengilegir fyrirtækjum og fólki landsins á annan hátt því bílaleigan Thrifty, sem rekin er af Brimborg, býður nú Citroën C-Zero rafbíl til leigu. Í tilkynningu frá Thrifty segir að bílaleigan gæti þess jafnan að bjóða bíla sem eru útbúnir nýjustu spartækni en líklega er ekki hægt að ganga lengra í spartækninni en að bjóða bíl sem notar ekkert innflutt eldsneyti. Sífellt fleiri leigutakar á íslenskum bílaleigumarkaði leggja áherslu á að leigja sparneytna bíla. Bílaleigumarkaðurinn hefur tekið töluverðum breytingum á síðustu árum enda hefur fall krónunnar á ýmsan hátt stutt við aukinn straum ferðamanna til Íslands. Veik króna þýðir einnig að íslensk fyrirtæki þurfa að leita ýmissa leiða til að ná markmiðum sínum í umhverfismálum, eins og að leigja rafbíl fremur en kaupa hann. Frá árinu 2010 hefur bílaleigan Thrifty boðið bíla sem fá frítt í stæði í 90 mínútur í Reykjavík. Bíll sem uppfyllir þau skilyrði getur verið mjög þægilegur fyrir fyrirtæki sem þurfa að sinna mörgum erindum innan dagsins í miðborginni. Af 412 bíla heildarflota Thrifty eru 273 bílar knúnir sparneytnum dísilvélum. Í íslensku samhengi er einnig áhugavert fyrir verkfræðistofu að ráða yfir ökutæki sem nýtir íslenska orku sem framleidd er af viðskiptavinum fyrirtækisins sem gerir rekstur bílsins eins umhverfisvænan og kostur er. Í samtali við Egil Jóhannsson, forstjóra Brimborgar sem flytur inn Citroën rafbílinn, kemur fram að töluvert rekstrarlegt hagræði náist með því að leigja rafbíl. Til að mynda er miklu fyrirsjáanlegra hver rekstarkostnaður bílsins er þar sem allur kostnaður bílsins, fyrir utan rafhleðsluna sjálfa, er innifalinn í leiguverðinu. Það má einnig horfa í kostnað á hverja ekna 100 kílómetra því þar er munurinn gríðarlegur. Á Citroën C-Zero kosta 100 kílómetrar aðeins um 170-260 krónur en til samanburðar kostar um 1920 krónur að reka sparneytinn bíl sem gengur fyrir hefðbundnu eldsneyti. Guðjón Jónsson, sviðsstjóri öryggismála og stjórnunar hjá VSÓ ráðgjöf, segir það jákvætt fyrir fyrirtækið að leigja rafbíl þar sem VSÓ ráðgjöf er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi og samgöngustefnu sem kalli á viðeigandi eftirfylgni. Slík eftirfylgni felst meðal annars í því að starfsmönnum fyrirtækisins standa til boða afnot af vespu, reiðhjóli og nú rafmagnsbíl auk þess sem starfsfólk fær frítt í strætó. Allt miðar þetta að því að draga úr umhverfisáhrifum rekstrarins. Bílar 3. janúar 2013 10:16
Skíðalyftur fyrir almenningssamgöngur Af hverju eru skíðalyftur með lokuðum vögnum ekki notaðar fyrir almenningssamgöngur? Þessari spurningu velti Michael McDaniel fyrir sér þegar hann hann stakk uppá þeirri samgönguleið fyrir þéttustu byggð bandarísku borgarinnar Austin í Texas. Bílar 3. janúar 2013 09:57
Audi spreðar í baráttunni við BMW Audi, sem er í eigu Volkswagen, ætlar að eyða 2.200 milljörðum króna á næstu þremur árum í þróun nýrra bíla. Er þetta hluti af því aðgerðarplani Volkswagen að verða stærsti bílaframleiðandi heims árið 2018, en einnig í því augnamiði að Audi taki fram úr BMW í sölu bíla ekki seinna en í enda þessa áratugar. Audi ætlar að selja yfir tvær milljónir bíla á ári þegar áratugurinn er á enda. BMW áætlar að selja 1,54 milljón bíla á þessu ári. Fjármunirnir verða að stórum hluta settir í þróun á léttum yfirbyggingum bíla Audi, sem og þróun nýrra bílvéla. Þá verða settar upp nýjar verksmiðjur í Ungverjalandi, Kína og Mexíkó. Bílar 3. janúar 2013 09:49
Toyota Crown enn í fullu fjöri Hver man ekki eftir Toyota Crown, flaggskipi Toyota, sem seldist vel hér á landi fyrir nokkrum áratugum og entist von úr viti? Þessi bíll hefur ekki verið til sölu hérlendis lengi, en það þýðir ekki að framleiðslu hans hafi verið hætt. Öðru nær, nú er hann kominn á fjórtándu kynslóð og framleiddur í Japan fyrir heimamarkað. Bílar 2. janúar 2013 17:00
Voldugur á alla kanta Fyrst þegar tekið er af stað á Ford Expedition Limited jeppanum er tilfinningin svolítið eins og maður hafi stigið upp í vörubíl. Stærðin á bílnum venst þó ótrúlega fljótt og er hann raunar furðulipur miðað við umfang. Bílar 1. desember 2010 09:00
Gladiator á götuna Handsmíðaða mótorhjólið hans Jakobs Inga Jakobssonar laganema nefnist The Gladiator og er enginn venjulegur gæðingur. Það hannaði Jakob algjörlega sjálfur í skylmingarþrælastíl og skreytti með um 200 myndum. Bílar 17. maí 2008 00:01
Rafknúinn sportbíll rennir úr hlaði Tveggja sæta sportbíll, Tesla Roadster, sem eingöngu er knúinn rafmagni hefur litið dagsins ljós. Hann er knúinn lithium-ion rafhlöðum og kostar tæplega 8 milljónir kr. Bílar 4. maí 2008 12:55
Land Rover sextugur 30. apríl fyrir 60 árum var sögulegur í breskri bílasögu: Fyrsti Land Roverinn var kynntur til sögunnar á bílasýningunni í Amsterdam. Enn þann dag í dag má finna erfðavísa þessa fyrsta bíls í Defender-línunni frá Land Rover. Þótt ótrúlegt megi virðast þá eru enn nokkrir vélarhlutir algjörlega óbreyttir frá upphafi: Meðal annars olíutappi og festing til þess að binda niður seglþakið. Aðrir hlutir í bílnum hafa þó breyst umtalsvert, samhliða því sem tækninni hefur fleygt fram. Bílar 30. apríl 2008 14:28
Lipur eins og fólksbíll Þótt hressilega gusti á Kjalarnesinu á köflum kemst Þorsteinn Einarsson sjúkraliði allra sinna ferða. Hann ekur um á Hummer sem haggast ekki þó að vindurinn fari í sextíu metra á sekúndu. Bílar 5. janúar 2008 06:00
Hlegið í umferðinni Sumir bílar fá vegfarendur til að brosa og jafnvel hlæja. Til dæmis sá með skrásetningarmerkið HEHEHE. Eigandinn Haraldur Leví Gunnarsson var tekinn á beinið. Bílar 15. desember 2007 11:00
Svöl mótorhjólamamma Anna Málfríður Jónsdóttir fékk sér mótorhjól fyrir nokkrum árum, en uppátækið vakti ekki furðu dætranna sem voru vanar því að móðirin umgengist húðflúraða og skeggjaða Snigla. Bílar 15. desember 2007 08:00
Saga Harley Davidson: Byrjaði allt í litlum skúr Saga Harley Davidson-risans er löng og farsæl en hófst með gerð mótors í litlum garðskúr árið 1901. Bílar 8. desember 2007 09:00
Gæti lagt inni í herbergi Mini Cooper er snaggaralegur bíll, ekki síst með blæju. Haraldur Guðmundsson, nemandi í Flugskólanum, ekur um á einum slíkum. Bílar 8. desember 2007 00:01
Dónaskapur að aka um á bíl með biluð ljós Ljósin á bílnum eru eitt af þýðingarmestu öryggistækjum hans, ekki síst í skammdeginu þegar myrkur er meirihluta sólarhringsins. Hér eru nokkur heilræði ljósastillingarmanns. Bílar 5. desember 2007 08:00
Óskabíllinn alla tíð Að fara með Þrúðmari Kára Ragnarssyni vélamanni á rúntinn á Chevrolet Corvette C6 er eins og að svífa á dúnmjúku skýi. Bílar 2. nóvember 2007 06:00
Ökuleikni í óbyggðum Daglangt námskeið fyrir óvana ökumenn á óbreyttum jeppum og jepplingum verður haldið á vegum Arctic Trucks hinn 3. nóvember. Arctic Trucks býður upp á námskeið í jeppaakstri í byrjun nóvember fyrir þá sem ekki eru bugaðir af reynslu. Markmiðið er að að kenna ökumönnum að aka við hinar ýmsu aðstæður en framkvæmdin er háð færð og veðri. Bílar 2. nóvember 2007 06:00
Ófært á rétt rúmum tíma Á veturna er í raun engum fjallvegum lokað en þeir eru á hinn bóginn merktir ófærir og þá er fólk á ferð á eigin ábyrgð. Einu skiptin sem þeim er lokað er við sérstakar aðstæður eins og í leysingum. Bílar 2. nóvember 2007 06:00
Löng leið niður Ewan McGregor og Charlie Boorman eru komnir á leiðarenda eftir 24 þúsund kílómetra langa hjólaferð. Heilsuvísir 23. ágúst 2007 07:00
Sölumet slegin VW slær sölumet sjöunda mánuðinn í röð. Sala hefur aukist mikið á fyrstu sjö mánuðum ársins hjá Volkswagen-samstæðunni. Sett var sölumet í júlí þegar seldust 522 þúsund bílar, sem er 10,2% söluaukning miðað við sama mánuð í fyrra. Heilsuvísir 23. ágúst 2007 04:00
Bara Dodge-merkið uppi Ólafur Rögnvaldsson veðurfræðingur ekur um á athyglisverðum bíl sem hann hefur látið breyta eftir sínu höfði. Heilsuvísir 23. ágúst 2007 03:00