

Besta deild kvenna
Leikirnir
Landsbankadeild kvenna 5. júlí
Þrír leikir verða í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Stórleikurinn er viðureign efstu liðanna Breiðabliks og Vals sem mætast á heimavelli Vals að Hlíðarenda. Breiðablik hefur unnið alla 7 leikina í deildinni í sumar.
6 marka sigur Keflvíkinga
Keflavík lagði FH 0-6 í fyrsta leik 8. umferðar Landsbankadeildar kvenna í kvöld. Vesna Smiljkovic og Nína Ósk Kristinsdóttir skoruðu tvö mörk hvor en Ágústa Jóna Heiðdal og Hrefna Magnea Guðmundsdóttir eitt hvor. Nýliðar Keflavíkur eru nú með 12 stig en ennþá í 5. sæti með jafnmörg stig og ÍBV og KR.

Breiðablikskonur ósigrandi
Breiðablik er enn ósigrað í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu eftir stórsigur á FH 7-0 í Hafnarfirði í gærkvöldi. Gréta Mjöll Samúelsdóttir skoraði 3 mörk, Erna Sigurðardóttir 2 og þær Ólína Viðarsdóttir og Casey McCluskey sitt markið hvor.
ÍBV stúlkur lögðu Stjörnuna
Einum leik er lokið í Landsbankadeild kvenna en þrír leikir eru á dagskrá í kvöld. ÍBV lagði Stjörnuna á útivelli, 2-3 og eru Eyjastúlkur komnar með 12 stig í 4. sæti. Enn er markalaust í stórleik KR og Vals vestur í bæ en Breiðablik er 4-0 yfir gegn FH á útivelli.

Leikir kvöldsins
Þrír leikir verða á dagskrá í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld, þar á meðal stórleikur KR og Vals í Frostaskjóli klukkan 20. Einn leikur er á dagskrá í fystu deild karla.

Valsstúlkur lögðu KR naumlega
Valsstúlkur lögðu KR naumlega, 1-2 í Landsbankadeildar kvenna í kvöld en sigurmarkið kom skömmu fyrir leikslok. Breiðabliksstúlkur unnu stórsigur á FH, 0-7 á útivelli í kvöld en þrír leikir fóru fram í 7. umferð.

Keflavík skellti ÍA á útivelli
Keflavík skellti ÍA, 5-0, á útivelli í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í gærkvöldi. Ágústa Jóna Heiðdal, Lilja Íris Guðmundsdóttir, Hrefna Guðmundsdóttir, Nína Ósk Kristinsdóttir og Vesna Smiljkovic skoruðu mörkin.
Tveir leikir hjá konunum í kvöld
Tveir leikir eru í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í kvöld. Stjarnan tekur á móti ÍBV klukkan 19 og klukkutíma síðar hefst viðureign ÍA og Keflavíkur á Akranesvelli.
Heil umferð hjá konunum
Heil umferð verður í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Breiðablik tekur á móti ÍA, Valur fær FH í heimsókn, Keflavík og Stjarnan eigast við og ÍBV mætir KR í Eyjum . Flautað verður til leiks klukkan 20.

Blikastúlkur enn með fullt hús
Breiðablik heldur áfram sigurgöngu sinni í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu en heil umferð fór fram í deildinni í kvöld. Blikastúlkur völtuðu yfir botnlið ÍA, 6-0 í kvöld og eru með fullt hús eftir 6 umferðir. ÍBV lagði KR óvænt, 3-2 á Hásteinsvelli í Eyjum og Íslandsmeistarar Vals unnu sinn fimmta sigur í röð þegar FH lá 4-1 á Hlíðarenda.

ÍBV burstaði Keflavík
ÍBV sigraði Keflavík 5-1 í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í gær. ÍBV er í 4. sæti með sex stig en Keflavík í 7. sæti með þrjú stig.
ÍBV fór létt með Keflavík
ÍBV vann stórsigur á Keflavík, 1-5 í Lansbankadeild kvenna í dag og lauk þar með fimmtu umferð. ÍBV er með 6 stig í fjórða sæti, 9 stigum á eftir toppliði Breiðabliks. Nýliðar Keflavíkur sitja í næst neðsta sæti með aðeins 3 stig í fimm leikjum en einu stig þeirra í deildinni eru fyrir óvæntan stórsigur á Íslandsmeisturum Vals í fyrstu umferð.

Blikastúlkur enn ósigraðar
Breiðablik heldur áfram órofinni sigurgöngu sinni í Landsbankadeild kvenna. Kópavogsstúlkur lönduðu sínum fimmta sigri í röð í deildinni í kvöld þegar þær fóru yfir bæjarmörkin og lögðu Stjörnuna 1-2 á Stjörnuvelli. KR vann nýliða Keflavíkur 4-1 á KR-velli og FH sótti þrjú stig upp á Skaga þar sem ÍA tapaði 1-3.

Þrír leikir hjá konunum
Þrír leikir eru í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. KR og Keflavík eigast við í Vesturbænum, ÍA tekur á móti FH og Stjarnan og Breiðablik mætast í Garðabæ. Flautað verður til leiks klukkan 20.

Laufey með fjögur í stórsigri Vals
Íslandsmeistarar Vals skutust á topp Landsbankadeildar kvenna í dag með stórsgiri á ÍBV, 1-7 á Hásteinsvelli í Eyjum. Laufey Ólafsdóttir skoraði fernu fyrir Val, Margrét Lára Viðarsdóttir tvö og Rakel Logadóttir eitt. Bryndís jóhannesdóttir skoraði mark heimastúlkna.

Enn frestað hjá Keflavík og ÍBV
Leik Keflavíkur og ÍBV í Landsbankadeild kvenna hefur enn á ný verið frestað vegna veðurs en hann átti upphaflega að fara fram á Keflavíkurvelli í gær. Leikurinn var svo settur á kl. 18 í dag en ekki hefur enn verið flugfært til Eyja og hefur leikurinn nú verið settur á kl. 14:00 á laugardag, 18. júní á Keflavíkurvelli.

Nína Ósk er hætt hjá Val
Nína Ósk Kristinsdóttir leikur með Keflavík í kvöld gegn ÍBV í Landsbankadeild kvenna. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en var frestað vegna ófærðar.

Blikastúlkur unnu toppslaginn
Blikastúlkur eru með fullt hús eftir fjórar umferðir í Landsbankadeild kvenna en Breiðablik vann KR 4-0 á Kópavogsvellinum í kvöld en fyrir leikinn höfðu liðin unnið alla 3 leiki sína í deildinni. Valsstúlkur komust í annað sætið með naumum 3-2 sigri á botnliði ÍA og Stjarnan vann sinn annan 1-0 sigur í röð, nú á FH á útivelli.

Heil umferð hjá konunum
Heil umferð verður í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Keflavík og Íslandsmeistarar Vals eigast við suður með sjó, Stjarnan og ÍA mætast í Garðabæ, KR tekur á móti FH og ÍBV fær Breiðablik í heimsókn. Leikirnir hefjast klukkan 20.

Hrefna með fernu fyrir KR
Heil umferð fór fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld og varð engin breyting á tveimur efstu sætum deildarinnar. Topplið KR lagði FH, 6-1 þar sem Hrefna Jóhannesdóttir skoraði fernu og eru Vesturbæjarstúlkur efstar með 9 stig eins og Breiðablik sem vann erfiðan útisigur á ÍBV, 1-2. Íslandsmeistarar Vals rassskelltu nýliða Keflavíkur, 0-9.

Tvö glæsimörk frá Dóru Maríu
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu byrjaði vel undir stjórn Jörundar Áka Sveinsssonar en liðið vann 2-0 sigur á Skotum í vináttulandsleik þjóðannna í Perth í gær. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en íslenska liðið var mun sterkara í þeim síðari og var sigurinn fyllilega verðskuldaður.
Blikastúlkur sigruðu nýliða naumt
Greta Mjöll Samúelsdóttir tryggði Breiðablik nauman sigur á nýliðum Keflavíkur í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu en sigurmark hennar kom 2 mínútum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 3-2 á Kópavogsvelli. Valur er 2-0 yfir gegn Stjörnunni en sá leikur hófst kl. 14.00.

Sjö marka sigur meistaranna
Dóra María Lárusdóttir skoraði þrennu fyrir Íslandsmeistara Vals í 7-0 sigri á Stjörnunni á Hlíðarenda í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í dag. Fyrr í dag vann Breiðablik-Keflavík, 3-2 og ÍA steinlá fyrir KR, 1-7. Staðan í leik FH og ÍBV sem hófst kl. 15 er enn 0-0.

Tvær frá Everton til ÍBV
Kvennalið ÍBV í Landsbankadeildinni sem vann 12-2 sigur á ÍA í fyrstu umferð hefur fengið til sín tvær 17 ára stelpur frá enska liðinu Everton. Þetta eru markvörðurinn Danielle Hill og miðjuleikmaðurinn Chantell Parry en kvennalið Everton er mjög sterkt og með því leika m.a. Sammy Britton og Rachel Brown, landsliðsmarkvörður Englands, sem báðar hafa leikið með ÍBV.

KR sigraði Stjörnuna
Keppni í Landsbankadeild kvenna hófst í gærkvöldi þegar KR sigraði Stjörnuna, 3-1. Vanja Stephanovic skoraði tvö mörk fyrir KR og Fjöla Dröfn Friðriksdóttir eitt. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði mark Stjörnunnar.

Sparkað í sólinni í kvöld
Í kvöld fara fram þrír leikir í Landsbankadeild kvenna og einn í karlaflokki en fyrstu umferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld. Fylkismenn taka á móti KR kl. 20.00 og verður leikurinn í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Að auki fara fram tveir leikir í forkeppni VISA bikarkeppni KSÍ.

Fjórar nýjar til Keflavíkur
Lið Keflavíkur í Landsbankadeild kvenna hefur fengið liðsstyrk frá Bandaríkjunum fyrir átökin í sumar að því er fram kemur á heimasíðu Keflavíkurliðsins. Um er að ræða fjórar stúlkur frá sama háskólanum.
Meistarar Vals steinlágu
Íslandsmeistarar Vals í Landsbankadeild kvenna töpuðu mjög svo óvænt stórt fyrir Breiðabliki í kvöld, 4:1, í fyrstu umferð deildarinnar. Blikastúlkur sem léku reyndar einum fleiri í 60 mínútur. ÍBV tók ÍA í barkaríið, 12-2 og nýliðar Keflavíkur unnu FH, 2:0.
Nýliðarnir með 5 erlenda leikmenn
Nýliðarnir í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu, Keflavík, tefla fram fimm erlendum leikmönnum í sumar. Tvær serbneskar stúlkur eru á leiðinni: Katarina Jovic, 27 ára varnar- eða miðjumaður, og Vesna Smilijkovic, 22 ára framherji.

Bandarískar stúlkur með KR
Kvennalið KR í knattspyrnu hefur samið við tvær bandarískar stúlkur sem spila með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Þær heita Carmen Watley og Katherine Winstead og að sögn Írisar Eysteinsdóttur, þjálfara KR, koma þær til landsins 11. maí og munu þær styrkja KR-liðið til mikilla muna.