Hjörvar svaraði "fávita-stimpli" Ferguson í Messunni
Sunnudagsmessan tók fyrir markmannsmál Manchester United í þættinum í gær en Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, gerði á dögunum lítið úr þeim sem voru að gagnrýna spænska markvörðinn David de Gea en Hjörvar Hafliðason er í þeim hópi.