Norðurlandameistarar í ávísunum
Leggja þarf að meðaltali einn inn á gjörgæsludeild Landspítalans í hverri viku vegna afleiðinga eða notkunar á morfínskyldum verkjalyfjum. Yfirlæknir segir Íslendinga eiga Norðurlandamet í ávísunum slíkra lyfja og hvetur fólk til að taka ekki lyf sem öðrum var ávísað.