Ungir veiðimenn skemmtu sér í sólinni

Fjöldi barna renndi fyrir fiski í veðurblíðunni á Flensborgarhöfninni í Hafnarfrði þegar árleg dorgveiðikeppni fór þar fram. Veiðimennirnir snjöllu voru á aldrinum sex til tólf ára og fengu þrír verðlaun fyrir særsta fiskinn sem kom á land, þann furðulegasta og verðlaun fyrir mesta aflann. Þeir veiðimenn sem fréttastofa ræddi við voru sammála um skemmtanagildi dorgveiðinnar þrátt fyrir dræman afla.

139
01:17

Vinsælt í flokknum Fréttir