Festist á leikmannafundi Chelsea
Nokkuð spaugilegt atvik átti sér stað fyrir leik Chelsea og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Þá fann Paul Tierney dómari leiksins sjálfan sig fastan í liðsræðu heimamenna á miðjuhringnum. Sjá mátti til að mynda Cole Palmer faðma dómarann en hann vissi lítið hvað hann ætti að gera við sjálfan sig á þessu augnabliki.