Tímamótadómur gæti haft mikil áhrif á samfélagsmiðla
Tímamótadómur var kveðinn upp í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær í máli þar sem andleg veikindi ungrar konu voru rakin til notkunar á samfélagsmiðlunum Instagram og Youtube. Fyrirtækin Meta og Google voru dæmd til þess að greiða fjölskyldu konunnar sex milljónir Bandaríkjadala í miskabætur, eða um 840 milljónir íslenskra króna.