Stefán Hilmarsson fagnar stórafmæli
Það stendur mikið til í Hörpu í kvöld þar sem Stefán Hilmarsson fagnar sextugsafmæli sínu með stórtónleikum. Þar verður farið yfir feril sem spannar rúmlega fjóra áratugi, meðal annars með hinni goðsagnakenndu Sálinni hans Jóns míns og á sólóferli Stefáns.