Ikea-geitin komin á sinn stað

Ikea-geitin svokallaða var færð á sinn stað í Kauptúni í dag. Ljósin voru jafnframt tendruð á sex metra hárri geitinni og markar viðburðurinn eflaust upphaf jólavertíðarinnar í hugum einhverra. Lengi vel var geitin sérstakt skotmark brennuvarga en hún hefur fengið að standa óáreitt yfir hátíðirnar allra síðustu árin.

91
00:54

Vinsælt í flokknum Fréttir