Sport

Dómari fót­braut ó­vart leik­mann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Coleman Jr, þurfti aðstoð við það að fara af vellinum.
David Coleman Jr, þurfti aðstoð við það að fara af vellinum. @ECU_NoQuarter

Óheppilegt og furðulegt atvik átti sér stað í háskólafótboltanum í Bandaríkjunum um helgina.

Dómari leiksins fótbraut óvart leikmann í sigri East Carolina Pirates á Temple Owls í ameríska háskólafótboltanum.

David Coleman Jr, varnarmaður East Carolina-skólans, stóð á vellinum ásamt liðsfélögum sínum á milli leikkerfa þegar einn dómaranna hljóp inn á völlinn til að sinna einhverju nálægt fjörutíu jarda línunni.

Þegar dómarinn nálgaðist leikmennina aftan frá rann hann til á vellinum og skall á Coleman Jr, sem féll fram fyrir sig í jörðina.

Coleman Jr. lá eftir á grasinu áður en tveir starfsmenn liðsins aðstoðuðu hann loks af vellinum og báru hann svo hann þyrfti ekki að stíga í slasaða fótinn.

Blake Harrell, þjálfari East Carolina, staðfesti síðar að Coleman Jr. hefði farið í röntgenmyndatöku í hálfleik sem leiddi í ljós að hann hefði brotið dálkinn í atvikinu.

„Hugur okkar og bænir eru hjá honum en svona getur bara gerst. Það er hálfgalið að þetta skuli gerast, ég hafði aldrei séð dómara gera þetta,“ sagði Blake.

East Carolina vann leikinn 17-9 og Coleman Jr. náði einni tæklingu í leiknum áður en hann fór af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×