Sport

Ældi blóði, braut rif­bein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Christian Watson fagnar eftir leikinn í nótt.
Christian Watson fagnar eftir leikinn í nótt. vísir/getty

Leikmenn í NFL-deildinni virðast vera gerðir úr einhverju öðru en fólk almennt og það sannaðist enn eina ferðina í nótt.

Þá vann Green Bay Packers sigur, 27-19, á Carolina Panthers en leiksins verður alltaf minnst fyrir ótrúlega hörku Christian Watson, útherja Packers.

Hann meiddist alvarlega í öðrum leikhluta er hann greip boltann og fékk menn ofan á sig.

Skömmu síðar var hann byrjaður að æla blóði og því var ákveðið að flytja hann upp á spítala. Það gerði hann í fullum herklæðum.

Á spítalanum kom í ljós að hann var með brotið rifbein. Okei, ekkert mál. Nennið þið að skutla mér aftur á völlinn sagði Watson við sjúkraflutningamennina.

Þeir keyrðu í forgangsakstri á Lambeau Field og það ætlaði allt um koll að keyra er Watson birtist aftur á vellinum.

Hann var ekki bara að horfa á leikinn heldur spilaði hann og greip tvo bolta í viðbót áður en yfir lauk. Ómannleg frammistaða.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×