Erlent

Sveppamorðingi fær enga reynslu­lausn

Lovísa Arnardóttir skrifar
Patterson myrti þrjá ættingja sína með því að eitra fyrir þeim.
Patterson myrti þrjá ættingja sína með því að eitra fyrir þeim. Vísir/EPA

Þrír dómarar við áfrýjunardómstól Viktoríuríkis í Ástralíu vísuðu í dag frá áfrýjun Erin Patterson, ástralska sveppamorðingjans svokallaða, og þyngdu refsingu hennar með því að fjarlægja möguleikann á því að hún yrði einhvern tímann látin laus úr fangelsi.

Erin Patterson, 52 ára, var fundin sek um að hafa myrt þrjá ættingja sína og reynt að myrða einn til viðbótar með því að bera fram eitraða máltíð með sveppum árið 2023. Hún var dæmd í lífstíðarfangelsi, með 33 ára lágmarksafplánun áður en hún gæti sótt um reynslulausn. Dómarar hafa nú úrskurðað að hún losni aldrei úr fangelsi.

Brot Patterson voru að sögn dómaranna „einstaklega köld og úthugsuð“ og bæri að „fordæma með afdráttarlausustu hætti“.

Dauðahattasveppir. BC Center

„Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að um svo hrottafengna glæpi hafi verið að ræða að ekki sé við hæfi að ákveða lágmarksafplánun áður en hægt er að sækja um reynslulausn,“ sagði Stephen McLeish dómari fyrir hönd dómsins.

Getur áfrýjað

Patterson hefur 28 daga til að ákveða hvort hún hyggist leita til Hæstaréttar Ástralíu og óska eftir því að hann taki málið fyrir á ný.

Að loknum umfangsmiklum réttarhöldum á síðasta ári fann kviðdómur Patterson seka um að hafa myrt tengdaforeldra sína, Don og Gail Patterson, og Heather Wilkinson, systur Gail, með því að bera fram nautakjötsréttinn Beef Wellington. Í réttinum voru dauðahattarsveppir, sem eru baneitraðir.

Patterson var einnig fundin sek um tilraun til manndráps á Ian Wilkinson, eiginmanni Heather og presti í heimabyggðinni. Hann borðaði einnig eitraða máltíðina á heimili Patterson í dreifbýli Viktoríuríkis. Hann lifði eitrunina af eftir að hafa dvalið vikum saman á sjúkrahúsi en glímir enn við heilsufarsvandamál vegna hennar.

Patterson drap eiginkonu Ian Wilkinson, Heather, og reyndi að drepa hann. Vísir/EPA

Simon Patterson, eiginmaður Erin, sem þau voru þá skilin að borði og sæng, átti að vera viðstaddur hádegisverðinn en afboðaði sig á síðustu stundu. Það gerði hann meðal annars vegna þess að hann taldi eiginkonu sína hafa ítrekað reynt að eitra fyrir sér.

Hún áfrýjaði dómnum skömmu eftir að hann féll og var í áfrýjun meðal annars vísað til hótelbókana sem hefðu haft „stórfelldar afleiðingar“ og grafið undan réttmæti réttarhaldanna en kviðdómendur höfðu gist á sama hóteli og saksóknarar, lykilvitni lögreglu og fjölmiðlafólk.

Hótelbókun og áhugamál

Lögmenn hennar héldu því einnig fram að ákveðin sönnunargögn sem lögð hefðu verið fyrir kviðdóminn hefðu verið óviðkomandi málinu og til þess fallin að hafa áhrif á afstöðu kviðdómenda. Þar á meðal voru gögn úr farsímasendum sem bentu til þess að Patterson hefði farið á svæði þar sem dauðahattarsveppi væri að finna, auk færslna á Facebook þar sem hún kvartaði undan tengdafjölskyldu sinni.

Þá hefðu dómarar ranglega meinað verjendum að leggja fram önnur gögn sem hefðu sýnt fram á að sveppatínsla hefði lengi verið áhugamál Patterson, sem á tvö börn.

Verjendur héldu því jafnframt fram að fimm daga yfirheyrsla ákæruvaldsins yfir Patterson hefði verið „ósanngjörn og þrúgandi“ og að ákæruvaldið hefði verið ósamkvæmt sjálfu sér í málflutningi sínum um hugsanlega ástæðu verknaðarins. Dómararnir höfnuðu þessu öllu þegar þeir tóku málið fyrir í dag.


Tengdar fréttir

Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum

Kviðdómur í Ástralíu hefur fundið Erin Patterson, 50 ára, seka um að hafa myrt þrjá ættingja og gert tilraun til að myrða þann fjórða, þegar hún gaf þeim beef wellington sem innihélt eitraða sveppi.

Reyndi að bragðbæta ban­eitruðu máltíðina

Áströlsk kona sem er sökuð um að hafa myrt skyldmenni sín með baneitruðum sveppum viðurkenndi fyrir dómi að villtir sveppir kynnu að hafa verið í banvænni máltíð sem hún gaf þeim. Hún hefði bætt þurrkuðum sveppum út í réttinn vegna þess að hann hefði verið of bragðlaus.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×