Sport

Ó­trú­leg frum­raun á Ís­landi og heims­metið var í hættu

Sindri Sverrisson skrifar
Cassandra Goyette byrjaði feril sinn á Íslandi með stórkostlegum hætti. Hún býr yfir reynslu úr úr bandarísku háskólaíshokkíi og atvinnumennsku.
Cassandra Goyette byrjaði feril sinn á Íslandi með stórkostlegum hætti. Hún býr yfir reynslu úr úr bandarísku háskólaíshokkíi og atvinnumennsku. Fjölnir

Hin bandaríska Cassandra Goyette gleymir seint fyrsta íshokkíleik sínum á Íslandi því hún setti þá Íslandsmet í sannkallaðri maraþonvítakeppni.

Fjölnir vann lygilegan sigur gegn SR í Toppdeildinni í gærkvöld, í Skautahöllinni í Laugardal, í vítakeppni sem fer í sögubækurnar.

Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því var gripið til vítakeppni sem lauk ekki fyrr en eftir 42 vítaskot.

Liðin skoruðu bæði úr fyrsta víti en eftir það tók við sýning markvarðanna. Hin kanadíska Julianna Thomson varði 18 skot fyrir SR auk þess sem eitt víta Fjölnis fór framhjá en Goyette bætti um betur og varði 20 víti!

Á vef íshokkídeildar Fjölnis segir að um Íslandsmet sé að ræða hjá Goyette og lengstu vítakeppni í íslensku íshokkí svo vitað sé.

Þá sé það ansi nálægt því að vera heimsmet að 42 víti hafi verið tekin í einni og sömu vítakeppninni í íshokkí kvenna. Heimsmetið hafi verið sett í Svíþjóð árið 2015 þegar 56 víti þurfti til að knýja fram úrslit í leik AIK Stockholm og Brynäs Gävle.

Goyette verður aftur á ferðinni eftir rúma viku, laugardaginn 7. nóvember, þegar Fjölniskonur sækja SA heim á Akureyri. SA hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum en tapaði í vítakeppni gegn SR sem þó var langtum styttri en vítakeppnin í gærkvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×