Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. október 2026 21:01 Ragna Bjarnadóttir er fangelsismálastjóri. Vísir/Anton Brink Nýting fangelsisrýma er í hámarki og hefur ekki tekist að úthluta öllum föngum hefðbundnum klefum á fangagangi. Í einstaka tilvikum hafa fangar þurft að dvelja tímabundið í einangrunarklefum.
Þetta kemur fram í skriflegu svari Rögnu Bjarnadóttur, forstjóra Fangelsismálstofnunar, við fyrirspurn fréttastofu. Nýlega var fjallað um kvörtun kvenkyns fanga sem vistaður er í Fangelsinu Hólmsheiði. Hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavélaklefa og/eða einangrunarklefa í stað þess að fá úthlutaðan fangaklefa. Hún kvartaði til Umboðsmanns Alþingis sem vísaði henni á dómsmálaráðuneytið. „Í slíkum tilvikum hefur tímabundið þurft að nýta klefa sem að jafnaði eru ætlaðir til einangrunar eða sérstakrar vistunar en þeir fangar sem þannig hefur verið háttað um dvelja þó á almennum fangagöngum yfir daginn og taka þátt í daglegu starfi fangelsisins eftir því sem við á,“ segir Ragna. Umræddir fangar séu því ekki vistaðir í einangrun og sæti ekki frekari takmörkunum á vistuninni. Staðan í fangelsiskerfinu sé þröng og nýting fangelsisrýma í hámarki. Taka ekki saman tölfræði Óskað var eftir tölfræði um hversu oft slík tilfelli koma upp en segir í svari forstjórans að stofnunin haldi ekki utan um sérstaka tölfræði yfir þau tilvik sem fangar hafa þurft tímabundið að dvelja í annars konar fangaklefum. Hins vegar er tekið fram að alltaf sé um skammvinna ráðstöfun að ræða, yfirleitt í nokkra daga, þar til hægt hefur verið að úthluta viðkomandi hefðbundnum fangaklefa. „Rétt er að árétta að um er að ræða tímabundna ráðstöfun sem hefur verið gripið til vegna mikils álags á fangelsiskerfið og skorts á fangelsisrýmum, en þetta skerðir ekki möguleika fangans á að vera í samskiptum við aðra eða taka þátt í starfsemi fangelsins,“ segir Ragna.
Fangelsismál Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sjá meira