Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar 26. október 2026 14:02 Öryggi lands og þjóðar verður ekki tryggt með því einu að sýna fram á að Ísland verji tilteknu hlutfalli landsframleiðslu til varnarmála. Það sér hver maður. Fjármunirnir verða að skila raunverulegri getu til að mæta ógnum, verja borgarana og standa við skuldbindingar okkar gagnvart bandamönnum. Fjárlaganefnd Alþingis hefur nú eftir langa bið fengið yfirlit yfir þau ríkisútgjöld sem flokkuð eru sem varnartengd útgjöld. Áætlað er að þau komi til með að nema rúmlega 51 milljarði króna árið 2027, eða tæplega 1% vergrar landsframleiðslu. Þar undir falla meðal annars útgjöld til löggæslu, Landhelgisgæslu og ýmissa borgaralegra innviða. Hjá herlausri þjóð getur slík flokkun sannarlega átt rétt á sér þótt öllu óljósara sé hvaða auknu viðbragðsgetu útgjöldin skapa. Alþingi hefur markað veginn Í febrúar samþykkti Alþingi samhljóða stefnu í varnar- og öryggismálum. Þar er kveðið á um „auknar og stigvaxandi fjárveitingar til varnartengdra verkefna og innviða“, aukna innlenda getu og þátttöku í varnarsamstarfi. Þar segir einnig að tryggja þurfi mannauð, áætlanir, varnarmannvirki og búnað til að mæta öryggisáskorunum og efla áfallaþol samfélagsins, almannavarnir og vernd borgara. Engu að síður er óljóst hvernig þessi stefna birtist í fjárlögum næsta árs. Hvaða nýju verkefni verða fjármögnuð, hvaða geta verður byggð upp og hvernig verður árangurinn mældur? Ríkisstjórnin stefnir að því að varnartengd útgjöld nái 1,5% af landsframleiðslu árið 2035. Eðlilegt er að hún sýni á spilinn, hvaða skref hún hyggist stíga til að því markmiði verði náð, í stað þess að láta eftirmönnum sínum alfarið um að efna gefin fyrirheitin. Þá samþykkti Alþingi árið 2024 stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu til ársins 2028. Við þurfum að fá skýrt yfirlit um hvernig henni er fylgt eftir. Hafa framlög Íslands haldið í við aukinn stuðning nágrannaþjóðanna og samræmast þau markmiðum okkar? Stuðningur við Úkraínu er samtímis ákvörðun um sjálfsákvörðunarrétt þjóða og öryggi Evrópu. Öryggis- og varnarmál mega ekki vera einkamál ríkisstjórna. Þau kalla á opna umræðu, reglulegt samráð ráðherra við Alþingi og breiða pólitíska samstöðu. Nú þarf að fylgja samþykktri stefnu Alþingis eftir með fjármagnaðri áætlun. Hvar er landhelgisgæsluáætlunin? Landhelgisgæslan er ein mikilvægasta öryggisstofnun landsins. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað bent á þörf fyrir langtímaáætlun um starfsemi hennar og tækjakost. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis tók undir það og kallaði eftir landhelgisgæsluáætlun og í kjölfarið langtímafjárfestingaráætlun um búnað. Ráðuneytið stefndi að því að fyrri áætlunin lægi fyrir á árinu 2026. Ekkert bólar þó á henni. Á sama tíma varar Landhelgisgæslan við því í umsögn um fjárlagafrumvarp ársins 2027 að fjárveitingar til hennar dugi ekki til að viðhalda starfseminni í óbreyttri mynd. Hvernig samræmist það áformum um aukna öryggisgetu? Nokkuð hefur verið til umræðu að bæta við fjórðu björgunarþyrlunni sem yrði með starfsstöð á Akureyri. Forsætisráðherra hefur tekið undir slík sjónarmið. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu gæti fjórða þyrlan og sjöunda áhöfnin tryggt að tvær þyrlur væru tiltækar 95–98% ársins í stað um 60% nú. Þetta yrði mælanleg aukning í öryggi landsmanna. Að vera verðugur bandamaður Undirstaða varna Íslands er aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin frá 1951. Þá hafa skapast ný tækifæri til svæðisbundins samstarfs eftir inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í NATO en þátttaka Íslands í JEF, varnarsamstarfi tíu Norður-Evrópuríkja undir forystu Breta, er gott dæmi um það sem vel hefur tekist í þessum efnum. JEF styrkir samstarfið innan NATO og Ísland hefur lagt ríka áherslu á þátttöku sína. Við getum og erum verðugur bandamaður þótt við höfum ekki eigin her til umráða. Lega landsins, aðstaða okkar, þekking og mannauður skipta máli. Ýmis tækifæri felast í enn auknu norrænu samstarfi. Í svari við fyrirspurn minni um sameiginlegt drónaverkefni Norðurlandanna kom fram að Ísland hefði ekki tekið þátt í undirbúningnum þar sem hann snerist fyrst og fremst um hernaðarnotkun. Samstarf um rannsóknir, þróun, þjálfun og upplýsingaskipti getur skapað tækifæri fyrir Landhelgisgæsluna, lögreglu og almannavarnir og ótækt að herleysi útiloki okkur frá samstarfi sem þessu. Að vera verðugur bandamaður snýst ekki aðeins um prósentur heldur um trúverðugar skuldbindingar og raunverulegt framlag til sameiginlegs öryggis. Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali. Það krefst aðgerða, fjárfestinga og samstöðu. Þegar öryggi lands og þjóðar er annars vegar eigum við öll að vera í sama liði. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Haraldsdóttir Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Skoðun Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun