Sport

Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Man. Utd ganga skömmustulegir af velli í gær.
Leikmenn Man. Utd ganga skömmustulegir af velli í gær. vísir/getty

Málefni Man. Utd áttu hug og hjörtu Besta sætisins í dag enda er beðið eftir því að félagið reki Michael Carrick sem þjálfara liðsins.

Stuðningsmenn Man. Utd kenna Carrick ekki um hörmulegt gengi liðsins. Þeir klöppuðu hann af velli eftir tapið gegn Bournemouth í gær en bauluðu hraustlega á andlausa og lélega leikmenn liðsins.

Nú er spurt hver eigi að taka við liðinu en flestir stuðningsmenn United virðast vilja fá hinn harða Antonio Conte. Ekki er víst að stjórnendur United séu aftur á móti til í þann dans.

KA féll úr Bestu deildinni. Dýrasta lið sögunnar til að falla og þar á bæ þurfa menn að fara í naflaskoðun. Má búast við miklum breytingum þar á næstunni.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×