Skoðun

Loft­brú: Ráð­herra í 0% tengingu við lands­byggðina

Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar

Var haft samráð við íbúa landsbyggðarinnar eins og lofað var? Svarið er nei.

Eru það svik við íbúa landsbyggðarinnar? Svarið er já.

Ráðherra á ekki að geta sagt bara eitthvað eða hvað sem er og lofað hinu og þessu sí svona. Orðum fylgir ábyrgð. Loforðum fylgja væntingar. En væntingum fylgja líka vonbrigði.

Skechers-díll ríkisins

Vonbrigðin eru þau að í stað 40% afsláttar af innanlandsflugi fyrir einstaklinga með lögheimili á landsbyggðinni (af 6 flugleggjum á ári), verður sett föst krónutala á þann afslátt: 7.000 króna afsláttur af 6 flugleggjum á ári.

Sem íbúa á landsbyggðinni, þá líður mér smá eins og starfsfólki Landspítalans sem fékk 7.000 króna gjafabréf í Skechers hér um árið. Starfsfólk gat keypt hálft skópar fyrir gjafabréfið, sem er frekar óheppilegt fyrir okkur flest sem erum með tvo fótleggi.

Hvað er málið með þessar 7.000 krónur? Það hlýtur einhver excel-jakkalakki að hafa reiknað út að 7.000 krónur væri einhvers konar holdgervingur gullinsniðs niðurskurðarhnífs ríkisins. Hvað veit maður?

En að öllu gamni slepptu: allir sem hafa einhvern tímann þurft að notast við innanlandsflug vita að þessar 7.000 krónur eru ekki upp í nös á ketti.

Óumbeðnar hrútskýringar til landsbyggðarinnar

Besti brandarinn er samt sá að innviðaráðherra hefur gefið út þau skilaboð að við íbúar á landsbyggðinni þurfum bara að vera skipulagðari. Við þurfum bara að bóka flug með lengri fyrirvara því þá verða þessar 7.000 krónur að hlutfallslega meiri afslætti.

Þarna held ég nefnilega að hnífurinn standi í kúnni. Þessar óumbeðnu hrútskýringar Eyjólfs Ármannssonar til landsbyggðarinnar eru algjör kjörnun á grunnvanda hans í ráðherrastól:

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra og oddviti Flokks fólksins í norðvesturkjördæmi, er í 0% tengingu við landsbyggðina.

Það vantar bein í nef ráðherra

Undirrituð býr á Ísafirði. Íbúar norðanverðra Vestfjarða og aðrir einstaklingar sem eru í sterkri tengingu við svæðið vita að landfræðileg lega Ísafjarðarflugvallar er ekki eins og best verður á kosið. Flugi til og frá Ísafirði er oftar en ekki aflýst vegna veðurs og vinda, sérstaklega á veturna.

En við sem búum hér höfum lært að lifa í takti við veðráttuna. Oft bókar fólk ekki flug fyrr en veðurspáin gefur grænt ljós. Og jafnvel þá getur veðrið breyst á svipstundu og öll plön fara í skrúfuna.

Það er samt ekki bara veðrið sem getur sett strik í reikninginn. Lífið er bara þannig að alls konar getur gerst með stuttum fyrirvara. Lífið er ekki svo einfalt og straumlínulaga að fólk geti bara skipulagt sig betur og planað meira fram í tímann til að allt gangi upp og allir verði sáttir og glaðir.

Þetta myndi ráðherra vita ef hann væri með snefil af tengingu við það hvernig er að búa á landsbyggðinni, þar með talið í sínu eigin kjördæmi.

Í ráðherratíð Eyjólfs Ármannssonar hafa gjörðir hans sýnt að geta hans til að setja sig í spor íbúa á landsbyggðinni er afar takmörkuð. Jafnframt er geta hans til að berjast fyrir og gæta hagsmunum íbúa í sínu eigin kjördæmi engin. Núll prósent.

Á þeim tíma sem hann hefur setið í ráðherrastól hefur verið skorið niður í flugsamgöngum milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Bæði hefur verið dregið úr fjölda ferða á dag og nú er aðeins flogið 5 daga vikunnar í staðinn fyrir 7 daga vikunnar eins og hefur tíðkast. Þessi niðurskurður er verulega bagalegur fyrir hvers kyns starfsemi á svæðinu og íbúa sem þurfa að ferðast á milli landshluta og sækja þjónustu til Reykjavíkur.

Breiðafjarðarferjan Baldur var í algjöru rugli í sumar vegna þess að ráðherra ákvað að senda Baldur til Vestmannaeyja, án þess að gera almennilegar ráðstafanir fyrir Breiðafjörðinn. Í sumar átti ég samtöl við fólk sem búsett er í Breiðafirði og á sunnanverðum Vestfjörðum. Öll sögðu þau sömu söguna: þessi tillitslausa og vanhugsaða ákvörðun ráðherra setti allt úr skorðum og kom verulega illa við íbúa og starfsemi á svæðinu.

Dynjandisheiðin, þessi mjög svo fíni vegur sem ríkið hefur eytt milljörðum króna í að malbika og færa til nútímans, er aðeins þjónustaður af Vegagerðinni á virkum dögum. Sem þýðir að ef það snjóar um helgar (sem það vissulega gerir, veðrið fer nefnilega ekki í frí um helgar) þá er vegurinn ekki mokaður og veginum oft lokað vegna ófærðar.

Í nýjasta fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er boðaður 2,4 milljarða niðurskurður til Vegagerðarinnar og þar með eru vonir Vestfirðinga um vetrarþjónustu á Dynjanda á helgum úr sögunni í náinni framtíð.

Þessi 2,4 milljarða niðurskurður til Vegagerðarinnar drekkir líka von Vestfirðinga um betri almenningssamgöngur milli kjálkans og restarinnar af landinu.

Landsbyggðarstrætó hefur ekki þjónustað norðanverða Vestfirði svo árum skiptir, sem gerir það að verkum að einkabíllinn verður oftar en ekki eini raunhæfi valkosturinn þegar kemur að því að velja ferðamáta.

Þá kemur til sögunnar hið alræmda og afar óvinsæla kílómetragjald, sem stendur einmitt til að hækka um 30% um áramótin. Þetta gjald er ein mesta þvæla sem nokkur ríkisstjórn hefur komið á laggirnar. Kílómetragjaldið er ekkert annað en gjaldtaka sem bitnar hvað mest á íbúum landsbyggðarinnar sem þurfa oftar en ekki að keyra miklar vegalengdir milli staða. Það væri hægt að fyrirgefa þessa gjaldtöku ef þeir digru sjóðir sem myndast vegna kílómetragjaldsins væru í raun og veru eyrnamerktir þannig að þeir færu í að laga vegina eða bæta samgöngur í viðkomandi landshluta. En það er ekki svoleiðis, þessir sjóðir renna bara beint inn í svartholið sem ríkissjóður er og það er bara happ og glapp hvert þessir peningar fara.

Allt þetta er að gerast eða hefur gerst á vakt núverandi innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar. Hann starfar á Alþingi í umboði íbúa norðvesturkjördæmis en raunveruleg dæmi sýna að hann hefur litla sem enga burði til að standa með íbúum þessa kjördæmis. Hvað er þessi maður að gera í vinnunni ef ekki að standa með íbúum síns kjördæmis?

Díll aldarinnar fyrir „landsbyggðarþingmenn”

Eyjólfur Ármannsson er með lögheimili í Lokinhamradal í Arnarfirði þar sem hann var í sveit á sumrin sem strákur. En þrátt fyrir að vera með lögheimili í einum af afskekktustu dölum þessa lands þá á hann ekki heima þar og hefur aldrei átt heima þar. Í fyrsta lagi hefur enginn verið með fasta búsetu í Lokinhamradal svo áratugum skiptir. Í öðru lagi hefur Eyjólfur Ármannsson í raun og veru aldrei búið í norðvesturkjördæmi.

Enda gefur það auga leið að það væri erfitt fyrir starfandi alþingismann að reka heimili í afskekktum eyðidal á Vestfjörðum sem aðeins er fær sjóleiðina mestan hluta úr ári.

Þrátt fyrir lögheimilisskráningu í Lokinhamradal þá rekur innviðaráðherra heimili í hverfi 105 í Reykjavík í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá vinnustað hans, Alþingishúsinu við Austurvöll. En samt sem áður þiggur hann húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðslu frá ríkinu uppá 203.000 krónur í hverjum mánuði vegna mikillar fjarlægðar milli lögheimilis hans í Lokinhamradal og vinnustaðarins á Austurvelli í Reykjavík.

Á mannamáli mætti segja að Eyjólfur Ármannsson fái borgaðar 203.000 krónur í hverjum mánuði frá ríkinu fyrir það eitt að vera með lögheimilið sitt skráð í vestfirskum eyðidal. Lauslega reiknað eru það tæpar 2,5 milljónir á ári sem gerir sirka 10 milljónir á hverju kjörtímabili sem Eyjólfur Ármannsson fær frítt í vasann fyrir að vera með lögheimili á stað sem hann býr ekki á og hefur aldrei búið á. Og það skattfrjálst!

Maðurinn sem þiggur 2,5 milljónir frá ríkinu árlega fyrir það eitt að vera með lögheimilisskráningu á Vestfjörðum ætlar að skera væna sneið af kökunni og skilja landsbyggðarfólk eftir með 7.000 króna Skechers-afslátt af 6 flugleggjum á ári. Okkur sem eigum hér lögheimili og búum raunverulega á landsbyggðinni finnst illa að okkur vegið, af augljósum ástæðum.

„En afslátturinn verður samt alveg hlutfallslega meiri ef þið skipuleggið ykkur bara betur og bókið flug með góðum fyrirvara!”

Þetta heldur einfaldlega ekki vatni. Tengingin er engin. 0%.

Siðferði „landsbyggðarþingmanna”?

Innviðaráðherra þiggur þennan dreifbýlisstyrk vegna þess að hann hefur rétt á honum. Lögin kveða á um þetta og um það verður ekki deilt. En er ekki löngu kominn tími til að endurskoða lög um húsnæðis- og dvalarkostnað þingmanna? Það er ekki eðlilegt að þingmönnum séu úthlutaðar margar milljónir ár hvert til að standast undir kostnaði sem byggir ekki á raunverulegum aðstæðum. Hvernig væri ef ríkið tæki aðeins til í eigin málum áður en íbúum þessa lands er hent undir vagninn í nafni hallalausra fjárlaga?

Því miður er Eyjólfur Ármannsson langt því frá eini þingmaðurinn sem nýtir sér kerfið á þennan hátt fyrir eigin hagsmuni, án nokkurra athugasemda. Ég meina, þetta er náttúrulega svo góður díll fyrir „landsbyggðarþingmenn” eins og Eyjólf að auðvitað er best að vera ekkert að breyta þessu.

Það er alveg fráleitt að þingmenn fái greiddar slíkar himinháar fjárhæðir fyrir ekki neitt. Þetta er einfaldlega bruðl með almannafé.

Hvar er siðferðið?

Af hverju þarf landsbyggðin heila, óskorna Loftbrúartertu?

Samfélagið sem við búum í hefur ákveðið að megnið af miðlægri þjónustu við íbúa þessa lands skuli vera staðsett á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að um þriðjungur landsmanna búi ekki á höfuðborgarsvæðinu. Sérhæfð heilbrigðisþjónusta, menntastofnanir, verslanir og allt sem heitir þjóðar-eitthvað eða ríkis-eitthvað. Þjóðleikhúsið, Þjóðarleikvangurinn, Þjóðaróperan, Ríkisútvarpið, Ríkissjónvarpið og svo lengi mætti telja.

Upphaflega var Loftbrúin sett á laggirnar til að jafna aðgengi fólks á landsbyggðinni að ofangreindri miðlægri þjónustu. Einnig má nefna að á Íslandi búa mörg börn við þær aðstæður að eiga foreldra sem búa hvort í sínum landshlutanum. Loftbrúin gegnir mikilvægu hlutverki í lífi þessara fjölskyldna.

Vestfirsku skrautfjaðrirnar

Það er mikið hagsmunamál fyrir lífsgæði íbúa á landsbyggðinni að ákvörðun um niðurskurð á Loftbrúnni verði felld niður.

Það er mikilvægt að ráðamenn standi við orð sín og standi með íbúum síns kjördæmis. Það hefur innviðaráðherra ekki gert í þessu máli. Íbúar verða að geta treyst á að kjörnir fulltrúar standi með þeim.

Sem kjörnum fulltrúa norðvesturkjördæmis er ekki nóg að vera með skráð lögheimili á Vestfjörðum, hampa vestfirskum ættartengslum og skreyta sig með áratuga gömlum sumardvalarfjöðrum. Því miður, Eyjólfur.

Höfundur er tónlistarkona með lögheimili á norðanverðum Vestfjörðum og er með fasta búsetu þar.

Við vinnslu þessa pistils kom fram á fréttamiðlum að vegna hárra gagnrýnisradda ætli innviðaráðherra að endurskoða ákvörðun sína með því að hækka afsláttinn úr 7.000 krónum upp í 9.000 krónur. Hann ætlar auðvitað að „hlusta á landsbyggðina” og endurskoða þessa ákvörðun. Hins vegar hafi engin ákvörðun tekin í þeim málum.

Af hverju hlustaði ráðherra ekki á landsbyggðina áður en hann tók þessa afleitu ákvörðun, eins og hann sagðist ætla að gera?

2.000 kall er dropi í hafið. Þú færð ekki einu sinni hamborgaratilboð fyrir 2.000 kall á Íslandi. Að hækka þessa krónutölu um 2.000 kall breytir því ekki að þetta er glatað dæmi og ráðherrann er aðeins að reyna að bjarga sér fyrir horn í þessari pattstöðu sem hann kom sér sjálfur í.




Skoðun

Sjá meira


×