Innlent

Margrét Löf vill komast í opið fangelsi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Margrét hefur dvalið á Hólmsheiði síðan í apríl 2025, lögmaður hennar segir enga betrun felast í dvöl hennar þar.
Margrét hefur dvalið á Hólmsheiði síðan í apríl 2025, lögmaður hennar segir enga betrun felast í dvöl hennar þar.

Margrét Halla Hansdóttir Löf sem varð föður sínum að bana í Súlunesi í Garðabæ vill afplána dóm sinn í fangelsinu Sogni í stað þess að afplána á Hólmsheiði. Lögmaður hennar segir enga betrun felast í því að vista fanga til lengdar á Hólmsheiði sem sé hannað sem gæsluvarðhaldsfangelsi.

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjöllunarefni sínu og segir að verði það að veruleika megi áætla að það muni kosta fjörutíu milljarða eða jafnvel meira.

„Verði þetta fangelsi að raunveruleika yrði það annað mannvirkið sem hannað, teiknað og byggt er sem fangelsi. Hitt fangelsið er að Hólmsheiði. Hólmsheiðar fangelsið átti að vera gæsluvarðhaldsfangelsi. Það er þó ekki hannað með það fyrir augum að gæsluvarðhaldsfangar geta setið mjög lengi inni. Þannig hefur umbjóðandi minn Margrét Halla, setið í gæsluvarðhaldi að Hólmsheiði frá 11. apríl 2025 og ég þekki ágætlega líðan hennar.“

Hann segir að hjá Margréti líkt og öðrum föngum sem dvelja á Hólmsheiði séu dagarnir lengi að líða. Fátt sé í boði, útivist takmörkuð, aðstaða til líkamsræktar bágborin og vinna lítil og ekki uppbyggileg, nema þegar planta megi örfáum sumarblómum.

„Mestur tími fanga fer í að horfa á hvíta veggi ganga og annarra rýma eða sjónvarp. Þetta umhverfi bætir ekki andlega heilsu fanga og þó sálfræðingar og jafnvel geðheilsuteymi sé til að dreifa nær það ekki að sinna föngum með þeim hætti að til bóta horfi.“

Hann segir fangelsið líta vel út frá lofti og utan frá séð. Fangelsið sé hinsvegar lekt eins og þorri bygginga með flöt þök, byggingin sé mannfjandsamleg.

„Fullyrða má að betra sé að eyða minna fé í umbúðir en meira fé í innihald þegar kemur að fangelsum og refsingum. Engin betrun felst í því að vista fanga til lengdar að Hólmsheiði og af myndum af 30 milljarða fangelsinu að dæma virðist þar mikið hugað að útliti. Það var uppörvandi að heyra nýjan fangelsismálastjóra tala um öll þau úrræði sem föngum standa til boða. Þau virðast þó ekki standa gæsluvarðhaldsföngum til boða í það minnsta hefur ekki verð svarað erindi Margrétar Höllu um að fara að Sogni til að njóta örlítið meira frelsis.“

Fangelsið að Sogni er staðsett í Ölfusi, skammt frá Hveragerði. Það var tekið í notkun 1. júní 2012 og þar er pláss fyrir 21 fanga við góðar aðstæður. Fangelsið er skilgreint sem opið fangelsi sem felur í sér að þar eru engar girðingar eða múrar sem afmarka fangelsið en fangar þurfa að vera tilbúnir til að fylgja skýrum reglum, að því er segir á vef Fangelsismálastofnunar.


Tengdar fréttir

Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá

Hálfbróðir Margrétar Löf krafðist þess fyrir dómi að ákveðið yrði að með því að drepa föður sinn hafi hún fyrirgert rétti sínum til þess að erfa hann. Kröfu hans var vísað frá dómi og vísað til þess að svipting erfðaréttar teljist samkvæmt lögum til refsikenndra viðurlaga við afbroti og að ákvörðun um slíka kröfu verði að koma frá ákæruvaldinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×