Fótbolti

„Átti erfitt með að bæta Barça“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Luis Enrique býst við frábærum leik tveggja öflugra liða í kvöld.
Luis Enrique býst við frábærum leik tveggja öflugra liða í kvöld. Getty/Antonio Borga

Stórleikur kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er milli PSG og Barcelona í París. Sá leikur er ekki eins og hver annar fyrir Luis Enrique, þjálfara PSG, sem tengist Barcelona sterkum böndum.

Enrique var leikmaður Barcelona um árabil og síðar þjálfari bæði B-liðs og aðalliðs félagsins þar sem hann var sigursæll í þjálfarastólnum.

Engum dylst að í kvöld eru að mætast tvö af allra bestu félagsliðum Evrópu og kvöldið verður sérstakt fyrir Enrique í ljósi tengingarinnar. Hann segist þó hafa vanist því eilítið að mæta Börsungum.

„Ég einbeiti mér að gæðum þeirra. Ég hef bæði spilað fyrir og stýrt Barça og ég á mjög náið samband við Katalóníu. Ég er mjög tengdur Barça, en ég er knattspyrnustjóri PSG,“ sagði Enrique á blaðamannafundi í gær og sagði þar enn fremur:

„Í fyrstu átti ég erfitt með að spila gegn Barça, en ég hef vanist því. Þeir eru með leikmenn í hæsta gæðaflokki og lið sem byggir á gildum. Þrátt fyrir það vil ég vinna á morgun. Það er gríðarleg hvatning fyrir mig að mæta félaginu sem hefur skipt mig mestu máli á ferlinum.“

Að stöðva Lamine Yamal, ungstirnið í liði Börsunga, er lykillinn að góðum úrslitum Parísarliðsins í kvöld. Aðspurður um hvernig hann hyggist stöðva spænska kantmanninn segir Enrique:

„Besta leiðin til að verjast Lamine Yamal er að hafa boltann. Það er draumastaðan okkar, en við vitum að það verður ekki þannig því það er svo erfitt að spila gegn Barça. Við höldum þó einbeitingu og erum á varðbergi, því við þurfum að sigrast á því sem lið.“

Leikur Paris Saint-Germain og Barcelona hefst klukkan 19:00 og er sýndur beint á Sýn Sport 2.

Sjö leikir hefjast í Meistaradeildinni klukkan 19:00 í kvöld og hægt er að fylgjast með þeim öllum samtímis í Meistaradeildarmessunni á Sýn Sport frá klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×