Sport

KA í hræði­legri stöðu og Kane verður að spila í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Adam Ægir Pálsson sussar hér á stuðningsmenn Vals um helgina. Hann sussaði ekki mikið eftir leik.
Adam Ægir Pálsson sussar hér á stuðningsmenn Vals um helgina. Hann sussaði ekki mikið eftir leik. vísir/guðmundur

Besta sætið óð á súðum í þætti dagsins enda gekk mikið á er lægðin gekk yfir landið um helgina.

KA er í skítamálum í Bestu deild karla og Þór getur sent nágranna sína niður um næstu helgi. Ekki beint staða sem margir sáu fyrir.

Í kvennaboltanum getur Breiðablik orðið meistari í kvöld eftir skipbrot FH í gær.

Man. Utd getur ekkert og góður leikur Florian Wirtz fyrir Liverpool vakti athygli. Eðlilega því þeir koma ekki endilega á færibandi.

DeAndre Kane er lentur á Íslandi og líkur eru á því að hann spili með vængbrotnum Grindvíkingum í bikarnum í kvöld. Kane fór í fýlu út í Cedrick Bowen, leikmann Vals, um helgina og Stefán Árni rifjar upp skemmtilega sögu af Kane frá því í lok síðasta tímabils.

Svo fá Bakgarðshlaupararnir okkar sérstakt hrós. Þrír enn að hlaupa og ein hljóp í nítján tíma með ælupest. Það er alvöru afrek.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×