Erlent

Fundu elsta skips­flak heims

Bjarki Sigurðsson skrifar
Amfóra á botni sjávar við Kekovaeyju.
Amfóra á botni sjávar við Kekovaeyju. Getty/Menningarmálaráðuneyti Tyrklands

Fornleifafræðingar telja sig hafa fundið elsta skipsflak heims úti fyrir ströndu Kekovaeyju í Tyrklandi. Talið er að skipið hafi sokkið fyrir 4.400 til 4.700 árum, um svipað leyti og pýramídarnir í Gísa voru reistir. 

Þetta er þó í raun ekkert skipsflak enda er viðurinn sem skipið var smíðað úr búinn að eyðast eftir þúsundir ára á hafsbotni. Keramíkamfórur sem skipverjar voru með um borð hafa þó varðveist öll þessi ár sem og akkeri sem gerð voru úr steini.


Amfóra er há leirkrukka með tveimur handföngum sem Grikkir og Rómverjar notuðu til forna til að geyma korn og olíu og fleira.


Fornleifafræðingar kynntu sér hönnun amfóranna og báru hana saman við gögn um hvaða stílar voru notaðir á hvaða tímabilum á svæðinu. Kannanir á hönnuninni leiddu í ljós að amfórurnar voru að öllum líkindum gerðar í Egyptalandi eða Miðausturlöndum og 4.400 til 4.700 ára gamlar. 

Kekovaeyja er við suðurströnd Tyrklands og er merkt með rauðri pílu á kortinu hér fyrir neðan.

Nú er unnið að því að skoða amfórurnar nánar og reynt að finna út úr því hvað var geymt í þeim þegar skipið sökk. Í grein BBC er haft eftir fornleifafræðingi við Macquarie-háskóla í Ástralíu að mögulega hafi það verið ólífuolía, vín eða trjákvoða. 

Fyrir uppgötvunina var elsta skipsflak heims 4.200 ára gamalt skip sem fannst við strendur Dokos í Grikklandi. Elsta skipsflakið þar sem viðurinn hefur varðveist er 2.400 ára gamalt og fannst í Svartahafi. 

Kafari flytur amfóru af hafsbotni.Getty/Menningarmálaráðuneyti Tyrklands



Fleiri fréttir

Sjá meira


×