„Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2026 20:27 Ída Marín Hermannsdóttir skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og lagði upp mark í fyrri hálfleiknum. vísir/Anton Ída Marín Hermannsdóttir kom inn í byrjunarlið Íslands gegn Króatíu í dag og setti heldur betur mark sitt á leikinn. Hún skoraði auk þess að leggja upp og var ánægð með sína frammistöðu í leikslok. „
Ég er stolt af hvernig ég stóð mig í dag. Við kláruðum leikinn eiginlega í fyrri hálfleik og ég reyndi mitt besta og ég er mjög ánægð með mína frammistöðu,“ sagði Ída Marín að leik loknum en markið í dag var hennar fyrsta fyrir landsliðið. Eftir 4-0 sigur í fyrri leiknum ytra voru kannski einhverjir sem höfðu áhyggjur af því að lið Íslands myndi mæta værukært til leiks. Svo var aldeilis ekki. „Það er bara að gíra sig upp af því við erum að fara að spila fyrir hönd Íslands á Laugardalsvelli og allir leikir skipta máli. Líka til að fá að spila saman fyrir næstu leiki og fá smá takt. Allir leikir eru mikilvægir.“ Líkt og fyrir fjórum árum verður Portúgal síðasta hindrun Íslands á leið sinni á fyrsta heimsmeistaramótið frá upphafi. Þá hafði Portúgal betur en Ída Marín segir þó ekkert tal um hefnd innan leikmannahóps Íslands. „Ég hérna hef allavega ekki heyrt það og ég held við séum ekkert að spá í því. Það er bara að klára það og reyna okkar besta,“ segir Ída og bætir við að þangað mæti liðið með fullt sjálfstrauts. „Það eru allar með sjálfstraust, hér gegn Króatíu og líka í sínum félagsliðum. Ég held að allar muni verða upp á sitt besta þegar við mætum Portúgal.“
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Tengdar fréttir Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir. 13. október 2026 16:45 Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Portúgal var ekki frekar en Ísland í neinum vandræðum með að komast áfram í lokaumferð umspilsins um sæti á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu. Liðin mætast í tveggja leikja einvígi og þar eiga Íslendingar svo sannarlega harma að hefna. 13. október 2026 20:11 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Sjá meira
Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Ísland er komið áfram í úrslitaeinvígi um sæti á HM í Brasilíu á næsta ári eftir samanlagðan 9-0 sigur í einvígi gegn Króatíu. Ísland vann 5-0 sigur á Laugardalsvelli í kvöld og mætir að öllum líkindum Portúgal í úrslitum þar sem sæti á HM verður undir. 13. október 2026 16:45
Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Portúgal var ekki frekar en Ísland í neinum vandræðum með að komast áfram í lokaumferð umspilsins um sæti á HM kvenna í fótbolta í Brasilíu. Liðin mætast í tveggja leikja einvígi og þar eiga Íslendingar svo sannarlega harma að hefna. 13. október 2026 20:11