Fótbolti

Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn

Sindri Sverrisson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir spilar sin 150. A-landsleik í kvöld.
Glódís Perla Viggósdóttir spilar sin 150. A-landsleik í kvöld. Getty/Bradley Collyer

Þrjár breytingar eru á byrjunarliði Íslands gegn Króatíu í dag frá því í 4-0 sigrinum í fyrri leik liðanna, í fyrri umferð umspils um sæti á HM kvenna í fótbolta.

Fanney Inga Birkisdóttir fær tækifæri í marki Íslands og þær Katla Tryggvadóttir og Ída Marín Hermannsdóttir koma einnig inn í byrjunarliðið.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Thelma Karen Pálmadóttir og Hildur Antonsdóttir eru hins vegar á varamannabekknum í dag.

Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir nær risastórum áfanga í dag og spilar sinn 150. A-landsleik.

Sigurliðið í riðlinum kemst í úrslitaeinvígi við Portúgal eða Norður-Írland um sæti á HM.

Byrjunarlið Íslands gegn Króatíu á Laugardalsvelli í dag.KSÍ

Leikur Íslands og Króatíu hefst á Laugardalsvelli klukkan 17:30 og er í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Ísland - Króatía | Króatar þurfa kraftaverk

Hér fer fram bein textalýsing frá seinni leik Íslands og Króatíu í undanúrslitum umspils fyrir HM 2027 sem fer fram í Brasilíu. Ísland leiðir einvígið fyrir seinni leikinn hér heima á Laugardalsvelli 4-0. Flautað verður til leiks klukkan hálf sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×