Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Sindri Sverrisson skrifar 13. október 2026 07:02 Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson lék ýmist með 10., 11 eða 12. flokki á síðustu leiktíð en var haldið utan meistaraflokks. Valur Senuþjófur fyrstu umferðar í Bónus-deild karla útskrifaðist úr grunnskóla í sumar. Sú ákvörðun að halda honum utan við meistaraflokk Vals á síðustu leiktíð var hárrétt að mati sérfræðinga Bónus Körfuboltakvölds.
Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson fór á kostum í sínum fyrsta leik í Bónus-deildinni og skoraði 18 stig, hitti úr öllum þremur þriggja stiga skotum sínum, tók flest fráköst allra á vellinum eða 12 og skilaði langflestum framlagspunktum eða 27, í 90-77 sigri Vals á Stjörnunni. „Þetta var það sem ég vonaði fyrir hönd Valsmanna því það er komið svolítið langt síðan uppalinn Valsari hefur verið á háu stigi. Þessi strákur er bara frábær,“ sagði Hlynur Bæringsson í Körfuboltakvöldi á föstudaginn en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Körfuboltakvöld - Umræða um hinn sextán ára Atla Frey Hlynur hefur fylgst vel með Atla Frey í yngri flokkum og nefndi hann sérstaklega í upphitunarþætti fyrir deildina. Atli náði samt að koma honum á óvart: „Hann hefur gríðarlega margt. Ég er auðvitað ekki að segja að hann fari í gegnum tímabilið án þess að klikka á skoti en hann er með góða boltatækni, líkamlega tilbúinn og líka, fyrir utan fyrstu mínúturnar, að taka þessa fullorðnu karlmenn í Stjörnunni og halda sínu varnarlega. Það er það sem ég hélt að yrði mögulega vandamálið hans en það var ekki og þessi strákur er gríðarlega öflugur,“ sagði Hlynur. Minnti Benedikt á Ölla heitinn Atli Freyr, sem í sigrinum á Stjörnunni var 16 ára og 178 daga, er einn sá yngsti í sögunni til að ná að skora 18 stig í einum leik í úrvalsdeild karla. Hann er líka einn sá yngsti sem nær að skora að minnsta kosti 10 stig og taka að minnsta kosti 10 fráköst í einum leik í úrvalsdeild karla. Benedikt Guðmundsson hefur verið afar lengi í bransanum en er einhver unglingur sem hefur komið af viðlíka krafti inn í deildina? „Örlygur Sturluson kemur fyrst upp í hugann. Kom upp með þvílíkum látum og leiddi bara Njarðvík til Íslandsmeistaratitils það ár. Hann er ofboðslega flottur og efnilegur en við værum að ljúga ef við segðumst hafa átt von á þessari frammistöðu,“ sagði Benedikt. Liggur ekkert á að koma grunnskólakrökkum í meistaraflokk Atli Freyr var frábær með U16-landsliði Íslands í sumar en hann spilaði síðasta vetur með 11. flokki í stað þess að fá eitthvað hlutverk í meistaraflokki. Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals segir það hafa verið meðvitaða ákvörðun að halda Atla utan við meistaraflokk. Hlynur sagði alltaf erfitt að meta hvenær rétt væri að hleypa mönnum inn í meistaraflokk en að þarna hefðu Valsmenn tekið hárrétta ákvörðun. Benedikt tók undir það. „Börn eiga að fá að vera börn. Grunnskólakrakkar eiga ekki að fara upp í meistaraflokk. Alveg sama hversu góðir þeir eru þá liggur ekkert á. Svo má skoða þetta á fyrsta ári í framhaldsskóla en það er bara fyrir þá sem eru alveg einstakir,“ sagði Benedikt áður en Hlynur benti á að enginn jafnaldri Atla, ári eða tveimur árum eldri, væri í neinu sérstöku hlutverki hjá liðunum í Bónus-deildinni.
Bónus-deild karla Valur Körfuboltakvöld Tengdar fréttir 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson átti sögulega frumraun fyrir Val í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Hann var bestur á vellinum í öruggum sigri á Stjörnunni. 8. október 2026 22:25 Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson stal senunni í öruggum 90-77 sigri Vals á Stjörnunni í fyrstu umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Frammistaða drengsins var lygileg. 8. október 2026 21:00 Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Sjá meira
16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson átti sögulega frumraun fyrir Val í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Hann var bestur á vellinum í öruggum sigri á Stjörnunni. 8. október 2026 22:25
Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson stal senunni í öruggum 90-77 sigri Vals á Stjörnunni í fyrstu umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Frammistaða drengsins var lygileg. 8. október 2026 21:00