Fótbolti

„Líf markmannsins að vera til­búinn alltaf“

Andri Broddason skrifar
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur staðið sig frábærlega í marki Íslands.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur staðið sig frábærlega í marki Íslands. Daniela Porcelli/Getty Images

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er komið heim til Íslands fyrir seinni leikinn gegn Króatíu í undankeppni fyrir HM sem haldið er í Brasilíu á næsta ári. Ísland er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn þar sem Ísland er með fjögurra marka forystu.

„Geggjað að vera komin heim og ánægð að vera komin með 4-0 forskot í næsta leik. Þetta eru tveir leikir þannig við þurfum áfram að halda fókus en ég er ánægð með frammistöðuna hjá liðinu,“ sagði Cecilia Rán Rúnarsdóttir, markmaður landsliðsins. Seinni leikurinn gegn Króatíu verður spilaður á þriðjudaginn á Laugardalsvelli.

Klippa: Cecilía Rán fyrir seinni leikinn gegn Króatíu

„Við vissum að við værum betra liðið en við þurftum að sýna þeim þá virðingu að mæta hundrað prósent í þennan leik og mér fannst við gera það. Ég er mjög ánægð að við náðum að nýta föstu leikatriðin og færin okkar.“

Þrátt fyrir að Ísland væri sterkara í leiknum þurfti Cecelia Rán að vera tilbúin í markinu. Þegar kallið kom þá var hún klár og náði að bægja hættunni frá.

„Það er líf markmannsins að vera tilbúinn alltaf. Ég er vön því hjá Inter að fá kannski eitt skot á mig í leik og ég þarf að vera tilbúin í það. Það gerir góðan markmann að góðum markmanni.“

Cecilía Rán er búin að vera leikmaður Inter Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í nokkur ár og virðist kunna vel við sig þar.

„Við erum komnar í Meistaradeildina og ætlum okkur stóra hluti í ár. [Að komast í Meistaradeildina] var markmið sem klúbburinn var búinn að hafa síðan okkur byrjaði að ganga vel. Þetta var geggjað og ég er ótrúlega stolt af liðinu.“

Þrátt fyrir að íslenska liðið sé með góða forystu þá er viðureignin ekki búin. Cecilía Rán er hógvær og segir liðið þurfa samt að mæta klárt í leikinn.

„Við vitum að þær hafa engu að tapa þannig að þær munu pressa mikið og gefa allt í leikinn en við erum með gott lið og ætlum að spila okkar leik. Ef við gerum það þá siglum við þessu heim.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×