Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Stefán Árni Pálsson skrifar 6. október 2026 15:15 Erling Haaland fór meiddur af velli í síðasta leik með norska landsliðinu. Vísir/Gualter Fatia/Getty Images Fyrsta landsliðshlé tímabilsins 2026/27 er senn á enda en það hefur verið óvenju langt eins og margir hafa tekið eftir. Í fyrsta sinn var gert þriggja vikna hlé á stærstu deildum Evrópu í stað tveggja vikna eins og hefur verið undanfarin ár.
Breytingin var gerð að frumkvæði FIFA, meðal annars með velferð leikmanna að leiðarljósi. En hvernig hefur það virkað? BBC hefur tekið saman helstu meiðsli leikmanna sem spila í ensku úrvalsdeildinni. Þar telja þeir saman fimmtán leikmenn sem sjá má hér að neðan. Undanfarin ár hefur FIFA gert ráð fyrir fimm landsliðshléum á tímabilinu. Þau hafa yfirleitt verið í tvær vikur í mars, júní, september, október og nóvember. Frá og með þessu tímabili hefur landsliðshléum hins vegar verið fækkað í fjögur og hléið í lok september og byrjun október lengt í þrjár vikur. Þetta ku hafa verið gert til að gæta að velferð leikmanna, ekki síst vegna ferðalaga. Með færri landsliðshléum fækkar ferðum sem sumir leikmenn þurfa að fara í milli heimsálfa. Lengra landsleikjahlé þýðir vissulega ekki að leikmenn meiðist frekar í landsleik en í leik með sínu félagsliði en ferðalög og breyting á þjálfunaraðferðum milli félagsliðs og landsliðs gætu spilað inn í. Fjölmargir leikmenn snúa aftur til félagsliða sinna með meiðsli eftir þetta hlé. Hafa miklar áhyggjur Erling Haaland þurfti að fara af velli eftir 67 mínútur í leik Noregs gegn Portúgal á sunnudag eftir að hafa beðið um skiptingu. Framherjinn haltraði af velli og yfirgaf svo landsliðsverkefnið á mánudag. Liðsfélagi hans hjá Manchester City, Nico O'Reilly, sneri einnig aftur til félagsins til frekari rannsókna. Samtök atvinnuknattspyrnumanna í Noregi, NISO, lýstu áhyggjum af auknu álagi eftir meiðsli Haalands. „Með tímanum höfum við séð áhyggjuefni þar sem álagið á bestu leikmennina er orðið allt of mikið,“ sagði Kristoffer Vatshaug, framkvæmdastjóri NISO. Hann kallaði eftir skýrari reglum um álag og endurheimt leikmanna, þar á meðal lengd hvíldar milli leikja, fjölda leikja í röð, ferðalög og þann tíma sem leikmenn fá til að jafna sig eftir langt tímabil. Liverpool hefur einnig orðið fyrir áföllum. Cody Gakpo dró sig úr hollenska landsliðshópnum vegna ökklameiðsla og Alexander Isak hætti við þátttöku í verkefni Svíþjóðar vegna vægra meiðsla í læri. Jorge Jesus, landsliðsþjálfari Portúgals, hefur sagt frá því að Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hafi verið að spila þrátt fyrir verki og væg meiðsli. Fyrir utan úrvalsdeildina hafa einnig komið upp stór meiðslamál. Kylian Mbappé meiddist með franska landsliðinu og Raphinha sneri aftur til Barcelona frá landsliðsverkefni Brasilíu með meiðsli í læri.
Enski boltinn Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Lið sem enginn vill mæta núna“ Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Fylkir kennir fjölmiðlum um og Magnús heitur í Kópavoginum 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Sjá meira