Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Sindri Sverrisson skrifar 6. október 2026 10:02 Ísland og Eistland gerðu 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli fyrir tíu dögum. vísir/Anton Eistlendingar eru á sinni fjórðu leiktíð í C-deild Þjóðadeildarinnar en hefur aldrei vegnað eins vel og núna og ættu að mæta með gott sjálfstraust í toppslaginn við Íslendinga í 4. riðli í Tallinn í kvöld.
Eistland hefur enn ekki tapað leik í riðlinum en liðið gerði 1-1 jafntefli við Ísland á Laugardalsvelli, markalaust jafntefli við Búlgaríu í öðrum útileik og vann svo 1-0 gegn Lúxemborg. Fyrir leikinn í kvöld er því skallamark Andra Lucasar Guðjohnsen eina markið sem Eistland hefur fengið á sig og uppskeran fimm stig. Það eru fleiri stig en Eistland hefur áður fengið í C-deildinni en liðið hlaut fjögur stig á síðustu leiktíð líkt og tímabilið 2020-21 og 2018-19. Tímabilið 2022-23 lék Eistland í D-deildinni, þeirri allra neðstu, og vann þá alla fjóra leiki sína. Eistneska landsliðið hefur aldrei komist á stórmót en komst næst því að fara á EM 2012 þegar liðið féll út í umspili. Stuðningsmenn liðsins hafa ekki haft margt til að gleðjast yfir hvað árangur snertir en eistneski miðillinn Delfi segir að núna séu leikmenn og þjálfarar Eistlands fullir sjálfstrausts. Það sagði Arnar Gunnlaugsson sömuleiðis á blaðamannafundi í gær. Klippa: Arnar býst við kokhraustum Eistum „Ég býst við að þeir verði smá „cocky“. Komi aðeins framar gegn okkur. Þeir hafa núna það sem ég tel sterkasta vopn íþróttamannsins, sjálfstraust og „momentum“. Í þeirra huga voru það örugglega frábær úrslit að ná jafntefli gegn okkur og svo Búlgörum á útivelli og að hafa fylgt því svo eftir með sigri [gegn Lúxemborg] á heimavelli,“ sagði Arnar. „Miðað við hvernig hópur þeirra og fjölmiðlamenn eru að tala þá líta þeir á sig sem jafnoka okkar og það er bara í fínu lagi. Ég held því að þeir muni stíga framar gegn okkur, nýta sér völlinn sem er þungur og erfiður. Ég held að þeir sjái enga ástæðu til að vera hræddir við okkur,“ sagði Arnar sem benti einnig á að Íslendingar væru fullir sjálfstrausts eftir tvo 3-0 sigra í röð. Þeir eru á toppi riðilsins með sjö stig og halda toppsætinu ef þeir forðast tap gegn Eistum í kvöld. Leikur Íslands og Eistlands hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira