Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Sindri Sverrisson skrifar 3. október 2026 23:30 Brynjar Ingi Bjarnason hefur ekki spilað mótsleik fyrir Ísland síðan árið 2022. Getty/Juan Mauel Serrano Arce Brynjar Ingi Bjarnason, Alfons Sampsted og Sævar Atli Magnússon hafa allir verið kallaðir inn í íslenska landsliðshópinn sem mætir Eistlandi í Tallinn á þriðjudagskvöld, í Þjóðadeildinni í fótbolta.
Miðvörðurinn Brynjar Ingi spilaði síðast fyrir Ísland árið 2024 en á að baki 17 A-landsleiki og skoraði í þeim tvö mörk. Hann er 26 ára leikmaður Sönderjyske í Danmörku og skoraði í 4-2 sigri liðsins gegn Randers í síðasta deildarleik. Framherjinn Sævar Atli á að baki 9 A-landsleiki og lék þrjá leiki í undankeppni HM í fyrra en er svo til nýkominn af stað með liði Brann að nýju eftir afar langvinn og erfið meiðsli. Sævar Atli Magnússon er klár í slaginn eftir langa baráttu við meiðsli.Getty Hægri bakvörðurinn Alfons á svo að baki 23 A-landsleiki og lék síðast með liðinu í Þjóðadeildinni fyrir tveimur árum. Hann er 28 ára og spilar með Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni. Ísland hefur spilað þrjá leiki á átta dögum og fyrir fjórða og síðasta leikinn í þessari törn hafa orðið skakkaföll. Mikael Egill í banni Ljóst er að Mikael Egill Ellertsson getur ekki spilað í Tallinn því hann er kominn í leikbann vegna tveggja gulra spjalda. Það seinna fékk hann í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu á Laugardalsvelli í kvöld áður en hann skoraði þriðja mark Íslands. Daníel Tristan Guðjohnsen var í hópnum í kvöld eftir að Kristall Máni Ingason meiddist en Daníel fer núna aftur til móts við U21-landsliðið sem mætir Færeyjum á þriðjudag og þarf sigur til að geta komist í umspil um sæti á EM. Þá ríkir óvissa um Gylfa Þór Sigurðsson sem meiddist í rifbeinum undir lok leiks í kvöld og Stefán Teitur Þórðarson kom ekkert við sögu í kvöld eftir að hafa meiðst í 3-0 sigrinum gegn Lúxemborg ytra síðasta þriðjudag. Áður hafði Albert Guðmundsson meiðst í fyrsta leik, í jafntefli við Eistland fyrir viku, en Þórir Jóhann Helgason verið kallaður inn í hans stað.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira