Fótbolti

„Erum að spila á móti of­boðs­lega slöku liði“

Sindri Sverrisson skrifar
Bjarni Guðjónsson og Kári Árnason þekkja það vel að spila á Laugardalsvelli.
Bjarni Guðjónsson og Kári Árnason þekkja það vel að spila á Laugardalsvelli. Sýn Sport

„Tja, það er fjölbreytni í leiknum…“ sagði Bjarni Guðjónsson á Sýn Sport í hálfleik, ekkert sérstaklega hrifinn af frammistöðu manna í fyrri hálfleik í leik Íslands við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli.

Íslendingar fóru inn til búningsklefa með 1-0 forskot eftir frábært mark sem Orri Steinn Óskarsson skoraði eftir undirbúning Hákonar Arnars Haraldssonar og Ísaks Bergmanns Jóhannessonar.

„Við erum búnir að eiga ágætis sóknir en þetta er ekki búið að vera glæsilegt. Þeir [Búlgarar] hafa fengið tvö fín færi til að gera eitthvað en við erum að spila á móti alveg ofboðslega slöku liði. Bara ótrúlega slöku liði. Það sem gerir þá enn slakari og er þeirra versti óvinur er að þeir halda að þeir séu góðir. Ég held að það þvælist mikið fyrir þeim,“ sagði Bjarni í hálfleiksumræðum á Sýn Sport.

Kári Árnason var ágætlega sáttur við íslensku leikmennina:

„Þeir hafa gert það sem við báðum um fyrir leik. Taka þá skyndisóknarmöguleika sem við fáum og átt 2-3 góðar þannig sóknir. Svo hefur okkur einu sinni tekist að finna Hákon í þessu svæði sem ég talaði um fyrir leik, svæðið milli varnar og miðju, og þannig kom markið.“


Tengdar fréttir

Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra?

Hér fer fram textalýsing frá leik Íslands og Búlgaríu í þriðju umferð í riðlakeppni Þjóðadeildar karla í fótbolta. Flautað verður til leiks á Laugardalsvelli klukkan 16:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×