Sport

Browns byrjar ó­vænt með látum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
 Deshaun Watson fagnar þriðja sigrinum í röð í nótt.
 Deshaun Watson fagnar þriðja sigrinum í röð í nótt. vísir/getty

Cleveland Browns hefur ekki byrjað eins vel í NFL-deildinni í fimm ár og gengi þeirra hefur komið gríðarlega á óvart.

Liðið sendi sinn besta leikmann, Myles Garrett, frá sér fyrir leiktíðina og er að spila á leikstjórnandanum DeShaun Watson sem hefur ekki spilað í tvö ár.

Í nótt vann liðið sinn þriðja sigur í fyrstu fjórum leikjum sínum er liðið skellti Pittsburgh Steelers, 27-24.

Watson átti aftur ljómandi leik og kláraði 24 af 33 sendingum sínum fyrir 268 jördum. Ein sending endaði sem snertimark og einu sinni kastaði hann frá sér. Hann keyrði sigursókn þriðja leikinn í röð. Cleveland vann leikinn á vallarmarki tíu sekúndum fyrir leikslok.

Steelers er aftur á móti með árangurinn 2-2 eftir tapið og liðið verið allt annað en sannfærandi.

Hinn 42 ára gamli leikstjórnandi liðsins, Aaron Rodgers, kláraði 22 af 40 sendingum sínum fyrir 299 jördum og kastaði þar af þrisvar fyrir snertimarki.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×