Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. september 2026 11:18 Göngunni hefur verið frestað ótímabundið. Getty Mörg þúsund kaþólskir mótmælendur hafa stillt sér upp á leið skrúðgöngu Óraníureglunnar um bæinn Portadown í Armagh-sýslu Norður-Írlands. Göngunni hefur verið frestað vegna þessa en fylkingarnar stefna hvor í átt að annarri í mígandi rigningu og spennan minnir á sorgleg átök síðustu aldar.
Greint var frá því í gærkvöldi að Óraníureglunni, mótmælendasamtök á Norður-Írlandi nátengd vopnuðum sveitum sambandssinna á síðustu öld, hefði verið veitt leyfi til umdeildrar skrúðgöngu með aðeins nokkurra klukkustunda fyrirvara. Tæp þrjátíu ár eru síðan skrúðganga þessi, iðulega kennd við Drumcree-kirkju í bænum Portadown, var tilefni blóðugra óeirða um allt Norður-Írland sem setti nýundirritaðan friðarsamning í uppnám. Áfrýjunardómstóll í Belfast felldi seint í gær úr gildi tímabundið bann sem hafði verið lagt við göngunni fyrr sama dag. Óraníureglan hafði um langt skeið gengið árlega frá Drumcree-kirkju og niður Garvaghy Road. Gangan á sér langa sögu allt frá nítjándu öld en íbúasamsetning hverfisins hefur síðan breyst og hefur hverfið í kringum Garvaghy Road orðið kaþólskt og sameiningarsinnað að mestu. Árin 1995 til 1998 einkenndust af gríðarlegum öryggisviðbúnaði í kringum göngurnar, götubardögum, vegatálmum og óeirðum. Á seinni hluta tíunda áratugarins árum voru þúsundir lögreglumanna og hermanna kallaðir út til að halda fylkingunum aðskildum. Síðan 1998 hefur reglunni verið meinað að halda gönguna þrátt fyrir árleg mótmæli hennar. Samkvæmt úrskurði dómara mátti gangan fara fram nú í morgunsárið með smærra sniði. Gangan skyldi fara af stað klukkan átta um morgun, aðeins 35 manns mættu taka þátt í henni og engin lúðrasveit mætti leika undir. Bíða merkis lögreglunnar Klukkan átta í morgun að staðartíma höfðu þúsundir safnast saman við Garvaghy-veg til að tálma gönguna. Greinilegt er að fjöldi fólks hefur komið til bæjarins í þessum tilgangi, þeirra á meðal Mary Lou MacDonald, formaður Sinn Féin, flokks sameiningarsinna og áður stjórnmálaarmur Írska lýðveldishersins, IRA. Allt var til reiðu fyrir skrúðgöngu Óraníureglunnar en þegar fregnir bárust af fjölda mótmælenda hefur skrúðgöngunni verið frestað ótímabundið. Fylkingarnar eru því ekki í sjónmáli hvor annarrar og óljóst hvort af göngunni verði. Mótmælendur hafa myndað keðju þvert um Garvaghy-veg.Getty Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins stefna Óraníumenn enn á að ganga en lögregla hafi sagt þeim að bíða þeirra merkis um að öruggt sé að hefja gönguna. Spennustigið er hátt og ekki er að furða að margir hafi áhyggjur af stöðunni. Skíðagrímur og appelsínugulir borðar vekja enda eðlilega ekki upp góðar minningar meðal íbúa. Margir mótmælenda eru einnig fæddir á þessari öld að því er virðist og muna því ekki eftir harmleikjum þeirrar síðustu. Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands hefur biðlað til viðstaddra að halda friðinn. „Það hafa nást miklar framfarir í Norður-Írlandi og við viljum ekki fara til baka. Þetta er erfið staða sem upp er kominn en það er mikilvægt að við höldum ró okkar,“ sagði hann við breska ríkisútvarpið. „Skrílsræði“ Michelle O'Neill varaformaður Sinn Féin og forsætisráðherra Norður-Írlands er meðal mótmælenda. Hún biðlaði til Chris Bryant, breska ráðherrans í málefnum Norður-Írlands, að grípa inn í. „Finnst einhverjum þetta góð hugmynd? Enginn heilvita maður myndi taka þessa ákvörðun. Ég skil þetta ekki enn, hvers vegna, eftir 28 ára sátt um að banna þessa göngu, myndi skrúðgöngunefndin halda að rétt væri að koma með þetta rugl aftur hingað í bæinn?“ sagði hún við fréttamenn á svæðinu. Óraníumenn voru prúðbúnir í morgunsárið.Twitter Hópur þingmanna Lýðræðislega sambandsflokksins, helsta stjórnmálaafl sambandssinna á norður-írska þinginu sem hefur verið óstarfhæft mestalla 21. öldina, er einnig viðstaddur mótmælin. Jonathan Buckley þingmaður sagði „skrílsræði“ (mob rule) kaþólikka setja sig upp á móti ákvörðun dómstóla. „Lög gilda ekki aðeins þegar Sinn Féin líst á niðurstöðuna. Samfélagið okkar grundvallast á virðingu fyrir löggæslu, dómstólum og lögum,“ sagði hann.
Norður-Írland Bretland Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira