Umræðan

Tug­milljarða fjár­festingar bíða eftir skýrum leik­reglum stjórn­valda

Einar Örn Ólafsson skrifar

Í Þorlákshöfn er orðin til ný íslensk útflutningsgrein. Hjá First Water höfum við fjárfest fyrir tugi milljarða króna í landeldi, byggt upp sérhæfða starfsemi og hafið reglulegan útflutning á laxi til Evrópu og Norður-Ameríku. Í fyrra náði First Water mikilvægum áfanga þegar félagið varð eitt fyrsta landeldisfyrirtækið á heimsvísu til að hefja reglulega slátrun og pökkun á fimm kílóa slægðum laxi. Sá áfangi sýndi að forsendur eru hér til staðar til að ala hágæða landeldislax við íslenskar aðstæður. Nú er hafinn næsti áfangi uppbyggingar First Water í Þorlákshöfn sem mun tvöfalda framleiðslugetu fyrirtækisins úr 5.000 í 10.000 tonn á ári.

Milljarða verkefni í pípunum

Fleiri íslensk fyrirtæki eru með stór landeldisverkefni í undirbúningi eða framkvæmd. Samanlagt gætu fjárfestingar greinarinnar numið 500–600 milljörðum króna og áætlað er að hún geti innan fimm til sjö ára skilað 150–200 milljörðum króna í árlegar útflutningstekjur.

Þetta eru háar tölur og auðvitað mun ekki allt ganga nákvæmlega eftir áætlun. En tækifærið er sannarlega fyrir hendi. Ísland býr einfaldlega yfir aðstæðum sem henta afar vel fyrir landeldi.

Við hjá First Water höfum t.a.m. aðgang að hreinum jarðsjó sem hefur síast í gegnum hraunlög og skilar einstökum vatnsgæðum. Jarðsjónum er dælt í lokuð eldisker sem skapa stöðugt umhverfi og kjöraðstæður fyrir fiskinn. Við höfum einnig aðgang að endurnýjanlegri orku, mikilli þekkingu á framleiðslu sjávarafurða og sterkum tengslum við alþjóðlega markaði.

Þetta er samkeppnisforskot sem Íslandi ber að nýta.

Samanlagt gætu fjárfestingar greinarinnar numið 500–600 milljörðum króna og áætlað er að hún geti innan fimm til sjö ára skilað 150–200 milljörðum króna í árlegar útflutningstekjur.

Staðsetning landsins skiptir þar einnig máli. Evrópa er og verður okkar mikilvægasti markaður á næstu árum, en nálægðin við austurströnd Bandaríkjanna skapar um leið mikil tækifæri til framtíðar. Lax er ferskvara og því skipta stuttar og öruggar flutningsleiðir máli. Ísland er vel staðsett gagnvart báðum þessum mörkuðum.

Við höfum því góða möguleika á að byggja hér upp öfluga útflutningsgrein. En það þarf meira en náttúrulegar aðstæður og metnaðarfull fyrirtæki. Lagaumhverfið verður einnig að vera skýrt.

Skýra lagasetningu um landeldi

Í dag fellur landeldi undir sömu lög um lagareldi og eldi í sjókvíum. Þar er verið að setja mjög ólíka starfsemi undir einn hatt. Í landeldi er fiskurinn alinn í kerjum á landi þar sem hægt er að stýra og vakta vatnsgæði, aðbúnað, heilbrigði og aðra mikilvæga þætti framleiðslunnar. Rekstrarforsendur og umhverfisáhrif eru því ekki þau sömu og í sjókvíaeldi. Reglurnar þurfa því að taka mið af því.

Það er mikilvægt að það komi hér fram að við erum ekki að fara fram á undanþágur eða minni kröfur. Þvert á móti er hagur okkar fólginn í ströngum og skýrum kröfum sem treysta orðspor íslenskrar framleiðslu að því gefnu að þær dragi ekki úr samkeppnisfærni greinarinnar. Það sem mestu skiptir er að regluverkið eigi við okkar starfsemi og sé þannig úr garði gert að fyrirtæki geti séð fyrir hvaða skilyrði gilda til lengri tíma litið.

Stjórnvöld hafa þegar viðurkennt þessa þörf. Í atvinnustefnu Íslands til ársins 2035 er lögð áhersla á aukna framleiðni, fjölbreyttari útflutning og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Þar segir jafnframt að fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi og skýrari umgjörð um fjárfestingar séu nauðsynleg til að bæta samkeppnisstöðu landsins.

Alþingi þarf að setja sérstaka lagaumgjörð um landeldi og stjórnvöld þurfa að birta skýran tímaramma fyrir þá vinnu.

Í aðgerðaáætlun stefnunnar fyrir árin 2026–2027 er sérstaklega kveðið á um að setja eigi sérstaka og afmarkaða umgjörð um landeldi, aðgreinda frá regluverki sjókvíaeldis. Markmiðið er að einfalda leyfisveitingar, skapa skýr fjárfestingarskilyrði og tryggja sjálfbæran vöxt greinarinnar.

Það er vel. En stefna ein og sér breytir litlu ef henni er ekki fylgt eftir.

Óvissa tefur fjárfestingu

Verkefni af þessari stærðargráðu eru fjármögnuð til langs tíma. Þau kalla á mikið eigið fé, lánsfé og traust fjárfesta. Óvissa um leyfisveitingar, gjaldtöku eða framtíðarregluverk hefur því bein áhrif á ákvarðanir um fjárfestingar og hversu hratt hægt er að byggja upp starfsemina. Fjármagn er kvikt í alþjóðalegu umhverfi og Ísland á í grimmri samkeppni við önnur lönd um það.

Alþingi þarf því að setja sérstaka lagaumgjörð um landeldi og stjórnvöld þurfa að birta skýran tímaramma fyrir þá vinnu.

Við búum yfir auðlindunum, þekkingunni og markaðsaðganginum. Fyrirtækin í greininni, hluthafar þeirra og aðrir fjárfestar hafa þegar sýnt vilja og getu til að ráðast í umfangsmiklar fjárfestingar. Nú þurfa stjórnvöld að fylgja eftir eigin stefnu og tryggja að lagaumhverfið verði ekki dragbítur á vöxt og uppbyggingu í greininni.

Höfundur er forstjóri First Water.


Tengdar fréttir




Umræðan

Sjá meira


×