Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar 23. september 2026 07:30 Nýjar tölur um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi minna okkur á að við eigum enn langt í land með að ná loftslagsmarkmiðum okkar. Samkvæmt nýjum framreikningi stefnir Ísland í 21% samdrátt í samfélagslosun fyrir árið 2030 miðað við 2005, á meðan gert er ráð fyrir að krafa Íslands verði um 41%. Samgöngur skipta þar miklu máli og jesús hvað við eigum langt í land. Vegasamgöngur eru í dag um þriðjungur samfélagslosunar Íslands og í stað þess að losun frá þeim haldi áfram að dragast saman jókst hún um 1,3% á síðasta ári. Það segir okkur bara það að við þurfum að hugsa öðruvísi um hvernig við komumst á milli staða. Bíllinn þarf ekki alltaf að vera fyrsta svarið Í áratugi hefur einkabíllinn verið sjálfgefinn hluti af daglegu lífi margra. Við eigum bíl sem stendur stóran hluta sólarhringsins kyrr en grípum í hann þegar við þurfum að komast í vinnuna, búðina, ræktina eða sækja börnin. En hvað ef við þyrftum ekki alltaf að eiga farartækið sem við notum og hvað ef að við hefðum aðgang að þeim ferðamáta sem hentar hverju sinni? Stundum er það rafskúta, stundum deilibíll, stundum leigubíll og stundum er besta lausnin að ganga, hjóla eða taka strætó. Markmiðið er ekki að einn ferðamáti leysi alla aðra af hólmi heldur einfaldlega það að gera fleiri valkosti raunhæfa. Deilibíll í stað bíls númer tvö… eða þrjú Deilibílar geta gegnt gríðarlega mikilvægu hlutverki í þeirri breytingu. Það eru fjölmargar ferðir, hvað þá í þessu veðurfari okkar íslendinga, þar sem fólk raunverulega þarf á bíl að halda. Þá skiptir öllu máli að hægt sé að nálgast bílinn auðveldlega án þess að þurfa endilega að eiga hann eða öllu heldur vera með marga bíla á einu heimili. Með deilibíl getur notandi opnað app, fundið lausan bíl, keyrt þangað sem hann þarf og skilið bílinn eftir fyrir næsta notanda þegar ferðinni lýkur en þannig getur sami bíll þjónað mörgum notendum. Fyrir sum heimili getur slíkur aðgangur skapað raunhæfan valkost við annan bíl heimilisins. Fyrir aðra getur hann einfaldlega gert mögulegt að velja rafskútu, almenningssamgöngur, hjól eða göngu oftar vitandi að bíll er alltaf tiltækur þegar hans er þörf. Orkuskipti eru mikilvæg en ferðavenjur líka Rafvæðing bílaflotans er mikilvægur hluti af orkuskiptum í samgöngum. En framtíð samgangna snýst ekki aðeins um að skipta bensínbíl út fyrir rafbíl heldur snýst hún líka um að nýta farartækin betur og gefa fólki val um hvernig það ferðast á milli staða. Þar kemur deilihagkerfið sterkt inn.. Í stað hugsunarinnar “ég þarf bíl” getum við færst nær hugsuninni “ég þarf að komast þangað” og lausnin getur verið mismunandi frá einum degi til annars. Kannski þurfum við ekki fleiri bíla en kannski þurfum við bara betri aðgang að þeim þegar við þurfum á þeim að halda og fleiri valkosti í samgöngumálum á Íslandi. Höfundur er markaðsstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar