Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar 22. september 2026 23:30 Fagráð Félagsráðgjafafélags Íslands um áfengis- og annan vímuefnavanda sendi Önnu Hildi Guðmundsdóttur formanni SÁÁ og Baldvinu Ýr Hafsteinsdóttur forstjóra SÁÁ bréf í dag og lýsti yfir alvarlegum áhyggjum af stöðu meðferðarþjónustu SÁÁ og þeim afleiðingum sem röskun á starfseminni getur haft fyrir fólk með vímuefnaröskun og aðstandendur þess. Fagráðið vil undirstrika að það er á ábyrgð bæði stjórnar og fagfólks SÁÁ og stjórnvalda að koma í veg fyrir þjónusturof í þjónustunni. Það þarf ekki að tíunda frekar mikilvægi starfsemi SÁÁ sem alþjóð þekkir vel og hefur stutt áratugum saman. SÁÁ hefur í tæpa hálfa öld gegnt lykilhlutverki í íslensku heilbrigðis- og velferðarkerfi. Þúsundir einstaklinga og fjölskyldna reiða sig á að þar sé veitt fagleg, örugg og samfelld þjónusta. Því er það alvarlegt þegar innri ágreiningur og óvissa um starfsemi samtakanna hefur áhrif á aðgengi að meðferð. Sérstök ástæða er til að hafa áhyggjur af verulegri fækkun innlagna á Vog á sama tíma og eftirspurn eftir meðferð er mikil og fólk bíður eftir þjónustu. Þegar einstaklingur með vímuefnaröskun er tilbúinn að leita sér aðstoðar getur tíminn skipt sköpum. Meðferð sem ekki er aðgengileg þegar hennar er þörf getur þýtt glatað tækifæri til bata og haft alvarlegar félagslegar og heilsufarslegar afleiðingar. Félagsráðgjafar starfa víða í þjónustu við fólk með vímuefnaröskun, meðal annars innan heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, starfsendurhæfingar og húsnæðis- og búsetuúrræða. Þeir þekkja vel hvernig rof í einni þjónustu getur haft keðjuverkandi áhrif annars staðar í kerfinu. Fólk sem leitar sér meðferðar vegna vímuefnaröskunar glímir oft við fjölþættan vanda. Töf á meðferð getur aukið hættu á versnandi heilsu, félagslegri einangrun, atvinnumissi, húsnæðisóöryggi og auknu álagi á fjölskyldur og aðstandendur. Afleiðingarnar verða jafnframt sýnilegar annars staðar í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Fagráðið leggur því ríka áherslu á að ábyrgð stjórnenda, stjórnvalda og annarra þeirra sem koma að þjónustunni sé skýr: tryggja verður samfellu, faglegt öryggi og aðgengi að meðferð óháð þeim ágreiningi sem uppi er. Fagráðið skorar á hlutaðeigandi aðila að: tryggja þegar í stað að nauðsynleg meðferðarþjónusta skerðist ekki vegna ágreinings eða óvissu í rekstri; tryggja sérstaklega stöðu þeirra sem þegar bíða eftir meðferð og þeirra sem eru í viðkvæmustu stöðunni; upplýsa með skýrum hætti hvernig samfella og öryggi þjónustunnar verði tryggð meðan unnið er að lausn mála; setja hagsmuni þjónustunotenda, faglegt öryggi og gæði þjónustunnar framar öðrum hagsmunum við úrlausn stöðunnar. Fólk sem glímir við vímuefnaröskun getur ekki beðið eftir því að deilur innan kerfisins leysist. Þegar einstaklingur er tilbúinn að þiggja aðstoð verður þjónustan að vera til staðar. Það er sameiginleg ábyrgð þeirra sem reka, fjármagna og skipuleggja meðferðarþjónustu að tryggja að svo sé. Þjónustunotendur mega ekki bera kostnaðinn af ágreiningi innan kerfisins. Höfundur er félagsráðgjafi og formaður Fagráðs Félagsráðgjafafélags Íslands um áfengis- og annan vímuefnavanda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir í nafni almennings Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan leysir ekki húsnæðisvandann ein og sér Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Listamannalaun: Eru tækifærin raunverulega opin öllum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun KFUM og KFUK – rannsókn eða krísustjórnun? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Skoppandi skrítlandi gervigreindartraust Kristján Logason skrifar Skoðun Órói Kolbrúnar: fyrirlitning, ekki röksemdir Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hlaðvarps grátkór – 15 mínútna eyðublaðið Ari Sigurðsson skrifar Skoðun Hver vængstýfði hvern við samningaborðið? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Álagsstýring: Burðarþol er meira en tala Guðmundur Björnsson skrifar Sjá meira
Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson Skoðun