„Stundum ertu með hálfvita sem þjálfara“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. september 2026 15:47 Leikmenn McVay svöruðu rækilega fyrir sig í nótt eftir tapið í fyrsta leik. Harry How/Getty Images Sean McVay, þjálfari Los Angeles Rams, gerði grín að sjálfum sér á blaðamannafundi eftir stórsigur á New York Giants í nótt. Rams svöruðu fyrir erfitt tap í fyrsta leik.
Þrátt fyrir að vera án stjörnuútherjans Puka Nacua unnu Hrútarnir sérlega sannfærandi 28-6 sigur á Risunum frá New York á SoFi-vellinum í Los Angeles í gær. Reynsluboltinn Davante Adams steig upp í fjarveru Nacua þar sem hann greip átta sendingar fyrir 195 stikum og skoraði tvö snertimörk. Þá hjálpaði það Giants ekki að leikstjórnandinn Jaxson Dart meiddist á hné snemma leiks og Jameis Winston, sem tók við af honum, var ekki upp á sitt besta. Dart virðist hafa sloppið með skrekkinn þar sem fregnir vestanhafs herma að hann hafi aðeins tognað á krossbandi en ekki slitið það. Rams svöruðu fyrir tap fyrir San Francisco 49ers í fyrsta leik sem fram fór í Melbourne. Mikið var látið með nálgun Rams fyrir leikinn en samkvæmt rannsóknum sem liðið hafði unnið átti að vera betra að mæta stuttu fyrir leik og reyndu leikmenn að sofa í 17 klukkustunda löngu fluginu. #Rams HC Sean McVay on the difference between Week 1 (blowout loss) and Week 2 (blowout win):"Sometimes you win, sometimes you learn. And sometimes you have a dumbass coach that makes travel plans that puts you in bad spots." 😂😅(🎥 @ArashMarkazi) pic.twitter.com/KLQtDbhE6z— Ari Meirov (@MySportsUpdate) September 22, 2026 49ers mættu töluvert fyrr til Ástralíu og má segja að nálgun San Francisco-liðsins hafi verið hefðbundnari. Gert var þá grín að því hve kokhraustir Rams-menn voru með sína nálgun, áður en þeir töpuðu leiknum. McVay var hress á blaðamannafundi eftir sigur næturinnar og sló á létta strengi undir lok hans þegar hann var spurður út í fyrstu umferðina. „Stundum taparðu og stundum lærirðu. Og stundum ertu með hálfvita þjálfara (e. dumbass coach) sem gerir ferðaáætlun sem kemur þér í slæma stöðu,“ sagði McVay áður en hann gekk út af fundinum á meðan blaðamenn á staðnum hlógu vel og innilega að gríni McVay að sjálfum sér. Öll umferðin í NFL-deildinni verður gerð upp í Lokasókninni sem er á dagskrá á Sýn Sport klukkan 20:00 í kvöld.
NFL Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira