Framtíð kanslarans í húfi Agnar Már Másson skrifar 20. september 2026 11:41 Þó Friedrich Merz hafi aðeins verið kanslari Þýskalands í sextán mánuði finnur hann fyrir pressu um að segja af sér. Það gæti allt ráðist í kvöld. Vísir/EPA Framtíð Friedrich Merz sem kanslara Þýskalands er sögð í húfi í kosningum sem haldar eru í tveimur sambandslöndum í dag. Fylgi flokks hans hefur dalað verulega í báðum sambandslöndunum og hefur honum verið kennt um. „
Örlagadagur fyrir kanslarann“ „Á hann enn þá séns?“ „Fyrir kanslarann snýst þetta um embættið“ „Standa Merz og CDU frammi fyrir enn öðrum ósigri í kosningum?“ Þessu slá þýskir fjölmiðlar upp í fyrirsögnum vegna þingkosninga sem haldnar eru í sambandslöndunum Berlín og Mecklenburg-Vorpommern í dag. Íbúar í sambandslöndunum Berlín og Mecklenborg-Vorpommern ganga að kjörborðinu í dag.AP Þótt aðeins sé um að ræða þingkosningar innan þessara tveggja sambandslanda þykja þær hafa mikla þýðingu fyrir Friedrich Merz og framtíð hans sem kanslara Þýskalands þar sem flokki hans, Kristilegum demókrötum (CDU), er spáð afhroði í skoðanakönnunum. Hitnar undir sæti Merz Vangaveltur hafa verið uppi um það hvort Merz gæti verið skipt út sem kanslara á miðju kjörtímabili ef ekki rætist úr fylgi flokksins. Fyrir tveimur vikum vann öfgahægriflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland (Alternative fur Deutschland, AfD) stórsigur í ríkinu Saxlandi-Anhalt fyrir tveimur vikum, á meðan fylgi CDU dróst saman um helming. Í Berlín keppir flokkur hans nú við vinstri flokkinn Die Linke um fyrsta sætið. Elif Eralp leiðir Die Linke í Berlín sem gætu unnið kosningasigur í dag.AP Á sama tíma hefur CDU í Mecklenburg-Vorpommern í norðausturhluta landsins mælst rétt yfir fimm prósenta þröskuldinum til að komast inn á þingið í ríkinu en það gætu reynst verstu úrslit þeirra í ríkiskosningum frá upphafi. Merz hefur sagst ætla að halda áfram en nýtur lítils fylgis og á sama tíma eru uppi sögusagnir um kanslaraskipti, en þýski fréttavefurinn Tagesschau skrifar þó að þeir sem orðaðir eru við hugsanlega atlögu að kanslarastólnum séu enn tvístígandi við að gefa kost á sér. Merz hefur aðeins verið við völd í um sextán mánuði en samkvæmt skoðanakönnun INSA eru 78 prósent kjósenda í Mecklenburg-Vorpommern ósáttir við störf Merz í embætti og aðeins um 14 prósent sáttir. Merz verður því líklega kennt um ósigurinn enda upplifa margir kjósendur hann sem hrokafullan og ekki í snertingu við hversdagslegt líf kjósenda, að því er DR greinir frá. Mikil verðbólga hefur verið í Þýskalandi auk þess sem bensínverð hefur hækkað verulega. Stuðningsmenn hans benda þó á að vendingar á alþjóðasviðinu hafi haft mikil vandræði í för með sér, auk þess sem mörg af þeim vandamálum sem þjóðin horfir upp á í dag hafi hann erft frá fyrri ríkisstjórn. „Die Frau gegen Blau“ Á sama tíma reynir flokkur hans að stemma stigu við uppgangi AfD víða um Þýskaland en jafnframt hafa sósíaldemókratarnir í SPD sótt í sig veðrið á lokametrunum og slást nú um efsta sætið. Manuela Schwesig, „Die Frau gegen Blau“, leiðir SPD í Mecklenborg-Vorpommern.AP Manuela Schwesig er oddviti SPD í sambandslandinu og virðist flokkurinn hafa sópað til sín atkvæðum þeirra sem eru á móti AfD enda hefur Schwesig kynnt sig sem „konuna gegn bláum“ (þ. „Die Frau gegen Blau“) en blár er litur AfD-flokksins. Þó nýtur flokkur hennar ekki sama fylgis á landsvísu. Kjörstaðir loka klukkan 16 að íslenskum tíma og má þá búast við fyrstu útgönguspám um svipað leyti.
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Sjá meira