Örvar og María Elísabet nýtt listapar Árni Sæberg skrifar 19. september 2026 16:02 María Elísabet og Örvar til hægri á myndinni í útgáfuhófi ásamt Gísla Marteini, Brynju Hjálmsdóttur, Himma Gau og Friðgeiri Einarssyni sem tekst listilega vel að lauma sér inn á hópmyndina. Jana Björg Þorvaldsdóttir Tónlistarmaðurinn Örvar Smárason og rithöfundurinn María Elísabet Bragadóttir eru nýtt par. Þau geisluðu á útgáfuhófi Margrétar Bjarnadóttur í Tjarnarbíói í vikunni.
Örvar og María Elísabet hafa bæði getið sér gott orð á íslensku listasenunni. Örvar er einn af stofnmeðlimum hljómsveitarinnar múm og hefur einnig verið áberandi í FM Belfast. Örvar hefur jafnframt starfað sem sólótónlistarmaður og gaf árið 2018 út sína fyrstu sólóplötu, Light Is Liquid. Tónlistin er þó ekki eina listformið sem Örvar hefur fengist við. Hann er einnig ljóðskáld og rithöfundur og hefur meðal annars sent frá sér nóvelluna Úfin, strokin og ljóðabókina Gamall þrjótur, nýir tímar. Árið 2022 kom út smásagnasafnið Svefngríman, en fyrir það hlaut hann nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta. María Elísabet er á hinn bóginn eitt af nýlegri nöfnunum í flóru íslenskra rithöfunda. Hún gaf út sína fyrstu bók, Herbergi í öðrum heimi, árið 2020. Bókin er smásagnasafn og vakti töluverða athygli, meðal annars fyrir sérstakan stíl höfundarins, hugmyndaauðgi og húmor. Árið 2022 sendi hún frá sér smásagnasafnið Sápufuglinn en í bókinni eru þrjár sögur þar sem meðal annars er fjallað um losta, valdadýnamík í samböndum, kynverund og arfgengan hæfileika til að ferðast um í tíma. Bókin færði henni tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins árið 2024. Bækur Maríu hafa meðal annars komið út í Danmörku, Ungverjalandi, Hollandi og Serbíu. Nokkur aldursmunur er á parinu en Örvar varð 49 ára í sumar. María Elísabet er sextán árum yngri en hún fagnaði 33 ára afmæli sínu í apríl. Örvar var áður giftur leikkonunni Birgittu Birgisdóttur en nýlega var greint frá sambandi hennar við Pétur Krogh Ólafsson. Örvar og María Elísabet skemmtu sér konunglega saman í útgáfuteiti á dögunum.Jana Björg Þorvaldsdóttir
Ástin og lífið Menning Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira