Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. september 2026 12:57 Guðni Ágústsson er formaður Njálufélagsins sem gefur í fyrsta skipti út bók. Vísir/Vilhelm Ný viðhafnarútgáfa Njálu frá Guðna Ágústssyni og félögum í Njálufélaginu hefur selst upp eins og heitar lummur í forsölu. Guðni segir þetta til marks um hve djúpt Brennu-Njáls saga risti í rótum þjóðarsálarinnar en Njálufélagið hefur ekki gefið út bók áður.
Guðna þarf vart að kynna, hann er formaður Njálufélagsins og eru fáir sem standast honum snúning þegar kemur að fróðleik um söguna. Síðast ræddi Vísir við hann um Njálufélagið í mars þegar hann var í óðaönn við að setja upp Njálusýningu í Salnum í Kópavogi. Hlutverk félagsins er að hefja Brennu-Njáls sögu til vegs og virðingar og á nýja bókin að vera hornsteinn starfsins. Félagið hélt auk þess Njáluvöku í fyrra á söguslóðum á Suðurlandi. Búinn að éta hatt sinn tvisvar „Sjálfur er ég nú þegar búinn að éta hatt minn tvisvar vegna þess hvað ég misreiknaði mig varðandi mætingu á Njáluvökuna í fyrra og mér sýnist að nú verði enn einn hatturinn af Portobello sveppi étinn fljótlega,“ segir Guðni. Ástæðan eru þær miklu viðtökur sem bókin hefur fengið í forsölu. Að sögn Guðna er um að ræða viðhafnarútgáfu Brennu-Njáls sögu sem byggir á rómaðri útgáfu Jóns Böðvarssonar. Textinn er með nútímastafsetningu og orðskýringum auk þess sem bókin er myndskreytt af Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey í Fljótshlíð. Guðni segir svo mikla stemningu í kringum forsöluna að hann láti sig nú dreyma um jólabókaflóðið. Það fari ekki á milli mála að Brennu-Njálssaga sé fremst á meðal jafningja þegar kemur að Íslendingasögum. „Söguþráðurinn er margslungin flétta ásta og afbrýði, átaka og hefnda, sæmdar og auðmýktar, hreinlyndis og fláttskapar. Við kynnumst skúrkum og öðlingum, glæsimennum og þrælum, fögrum konum og fláráðum, orðheldni og undirferli. En ljósar hliðar finnast jafnvel á hinum örmustu þrjótum.“ Þegar Guðni var spurður að því í mars hvort til væru fleiri Njálusérfræðingar hér á landi en hann, sagði hann: „Jájá, það eru gríðarlega margir sérfræðingar, kennarar og lögfræðingar sem eru spakir í Njálu. Ég hef tekið að mér hlutverk Jóns Böðvarssonar, ég hef verið leiðsögumaður og þá fer ég með söguna einn. Við komum á Bergþórshvol og á Hlíðarenda og etum kjötsúpu. Ég er svona sá sem er frægastur í dag í nafni Jóns Böðvarssonar að segja söguna.“ Kristján Már Unnarsson kíkti á Njáluslóðir með Guðna í fyrra í aðdraganda fyrstu Njáluvökunnar.
Bókmenntir Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira