Sport

Heims­meistara­mótið í rallýakstri hættir við keppni í Sádi-Arabíu

Andri Broddason skrifar
Ökumennir Thierry Neuville og Sebastien Ogier munu ekki geta endurtekið sigurinn sinn í Sádi-Arabíu.
Ökumennir Thierry Neuville og Sebastien Ogier munu ekki geta endurtekið sigurinn sinn í Sádi-Arabíu. Luca Barsali/Getty Images

Hætt hefur verið við síðustu umferð heimsmeistaramótsins í rallýakstri sem átti að fara fram í Sádi-Arabíu. Mótið verður stytt úr 14 umferðum niður í 13 og mun mótið klárast á Ítalíu í staðinn.

Mikil átök eru í Mið-Austurlöndum milli hinna ýmsu ríkja sem hefur vafist fyrir íþróttum á svæðinu. Fyrr í ár gaf Formúla 1 út að færa þyrfti tvær keppnir sem áttu að fara þar fram og nú hefur heimsmeistaramótið í rallýakstri gert slíkt hið sama.

Lausn Formúlu 1 var að finna aðrar brautir í staðinn en það mun ekki gerast á heimsmeistaramótinu í rallýakstri. Keppnin í Sádi-Arabíu var haldin í fyrsta skipti á síðasta ári en nú er óvíst hvenær næsta keppni verður haldin þar.

Ben Sulayem, forseti alþjóðaakstursíþróttasambandsins FIA, sagði ákvörðunina hafa verið erfiða.

„Við höfum unnið náið með félögum okkar í Sádi-Arabíu til að reyna að halda Rallýkeppnina í Sádi-Arabíu en vegna aðstæðna á svæðinu verður ekki hægt að halda þennan hluta heimsmeistaramótsins í rallýakstri.“

Síðasta keppnin verður því haldin eftir tvær vikur og munu úrslitin ráðast þar. Bretinn Elfyn Evans situr á toppi heimsmeistaramótsins fyrir síðustu keppnina en hann er með sautján stiga forskot á Sami Pajari frá Finnlandi. 35 stig eru í boði í síðustu keppninni og því mikilvægt fyrir Pajari að ná sem flestum stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×