Markaveislur og stórsigrar í Evrópudeildinni Andri Broddason skrifar 17. september 2026 21:21 Juventus vann fimm marka stórsigur í Evrópudeildinni í kvöld. (Photo by Image Photo Agency/Getty Images) Fyrsta umferð Evrópudeildarinnar kláraðist í dag og er erfitt að segja að margir jafnir leikir hafi verið á dagskrá. Juventus vann 5-0 sigur á NEC Nijmegen, Crystal Palace vann 4-0 sigur á Lech Poznan og Celtic tapaði fyrir ungverska liðinu Ferencvaros.
Willum Willumsson sat á bekknum hjá hollenska liðinu NEC Nijmegen þegar liðið fór í heimsókn til Juventus á Ítalíu. Óhætt er að segja að leikurinn hafi ekki verið jafn en fimm mismunandi leikmenn skoruðu öll fimm mörk Juventus. Nicolas Gonzalez kom Juventus yfir strax á níundu mínútu og Kerim Alajbegovic bætti við öðru markinu þrettán mínútum síðar. Nick Woltemade skoraði þriðja mark Juventus úr víti en hann kann vel við sig í svarthvítu þar sem hann kom til Juventus frá Newcastle. Í seinni hálfleik kórónuðu svo Zeki Celik og Randal Kolo Muani fimm marka stórsigur Juventus og ætlar liðið sér stóra hluti í Evrópudeildinni. Ernirnir halda áfram góðu gengi í Evrópu Crystal Palace þekkja það að ganga vel í Evrópukeppnum en liðið vann Sambandsdeild Evrópu á síðasta tímabili. Liðið fékk pólska liðið Lech Poznan í heimsókn í fyrsta leik og var þetta erfið ferð til Englands fyrir pólsku gestina. Yeremi Pino kom Örnunum í Crystal Palace yfir strax á tíundu mínútu leiksins. Sautján mínútum síðar tvöfaldaði Chris Richards forystu liðsins og átti staðan aðeins eftir að versna fyrir Lech Poznan. Eftir rétt rúmlega hálftíma leik fengu heimamenn vítaspyrnu og fór Jorgen Strand Larsen á vítapunktinn. Hann skoraði úr vítaspyrnunni og fór Crystal Palace með þriggja marka forystu í hálfleik. Edward Nketiah gulltryggði svo fjórða og síðasta mark Crystal Palace í öruggum 4-0 sigri. Gestirnir í Póllandi kláruðu leikinn manni færri eftir að Radoslaw Murawski fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt undir lok leiksins. Óvænt tap Celtic Skoska stórliðið Celtic tók á móti ungverska liðinu Ferencvaros í Evrópudeildinni í kvöld. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir heimamenn í Skotlandi eftir að skot Bamidele Yusuf fór í varnarmann og svo í netið sem tryggði ungverska liðinu forystuna. Mika Baur náði að jafna metin fyrir Celtic en aðeins tveim mínútum síðar náði Kristoffer Zachariassen að koma Ferencvaros aftur í forystuna. Snemma í seinni hálfleik kom Daniel Arzani ungverska liðinu í tveggja marka forystu og reyndust lok leiksins ætla að vera erfið fyrir Celtic. Heimamennirnir náðu ekki að minnka muninn og byrjar Ferencvaros frábærlega í Evrópudeildinni.
Fótbolti Evrópudeild UEFA Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Sjá meira